Fréttablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 48
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 Mér líður best á þessum tíma árs, akkúrat núna. Ég veit að hátindi ársins er náð þar sem ég sit og skrifa þennan texta. Sumrinu fylgir oft óregla og ég ræð illa við hana. Þá vaki ég oft lengi og sef lítið, þá sest sólin aldrei og ég veit ekki hverju ég á að klæðast. Á sumrin er lítið fyrir mig að gera, ég fer út að ganga kannski, grilla fyrir vini mína eða geng eitthvað fjall en eftir situr orkan. Ég ofhleðst á sumrin og get ekki komið orkunni í neinn uppbyggilegan farveg. Á sumrin er ég spenntur og órólegur. Og sveittur. Ég á svo lítið af sumarfatnaði að ég er yfirleitt sveittur á sumrin, sveittur, spenntur, þreyttur og órólegur. Ekki gott lúkk. Haustin eru betri. Þá fara verkefnin að hlaðast upp aftur, það er auðveldara að fela sig á bak við þau. Leikhúsin opna og það er frískandi að fara út úr húsi. Í mínum bókum jafnast ekkert á við fyrsta haustdaginn, þegar maður stígur úr úr húsi og er gjörsamlega lúbarinn af vindinum, þegar hann snýr mann niður, brókar og skipar manni að drulla sér aftur undir sæng. Þann morgun finn ég alltaf líkamlega tengingu við forfeður mína, þessa sem kusu að dvelja áfram á Íslandi þrátt fyrir allt, þrátt við veðrið og matinn. Eini vandinn er hve stutt haustið er. Ég rétt blikka og veturinn er genginn í garð. Veturinn er að sjálfsögðu skárri en sumarið, en það jafnast ekkert á við íslenska haustið. n Haust Stefáns Ingvars Vigfússonar n Bakþankar Faxafeni 11 • Sími 534 0534 Allt fyrir veisluna Skreytingar Borðbúnaður Búningar Tækjaleiga Sigraðu innkaupin með appinu nova.is Svaraðu haustinu! Þær mæta á morgun! Snjalllokur frá Samsung á nova.is Apple iPhone 13 128GB 152.990 kr. 5G 5G Apple iPhone 13 Pro 128GB 199.990 kr. Þú finnur allskonar farsíma sem lýsa upp skammdegið og opna nýjan heim! Prófaðu samt að leggja skjáinn frá þér inn á milli, loggaðu þig út í smá stund og spjallaðu við þína nánustu! Nothing Phone (1) 128GB 99.990 kr. 5G 10.000 króna afsl. Samsung Galaxy A22 5G 128GB 39.990 kr. 49.990 kr. Farðu í bíó hvað þetta er góður díll! Sæktu Nova appið og fáðu 2F1 í bíó alla mánudaga og fimmtudaga. Toppaðu kvöldið með popp & gos í FríttStöff. 2F1 5G

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.