Fréttablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 22
Snyrtifræðingurinn Rakel
Sunna Pétursdóttir telur að
þarameðferðir muni ryðja
sér æ meira til rúms innan
snyrtifræðibransans sem og
spa-meðferðarbransans.
Rakel lærði snyrtifræðina í FB.
„Námið er tvö ár á verklegri braut,
1-2 ár í undanfaraáföngum í
ýmsum fögum og svo níu mánuðir
á samningi. Núna er ég að klára
samninginn minn,“ segir Rakel
Sunna.
Á síðustu námsönninni skrifa
nemendur ritgerð um umfjöllunar-
efni sem þau velja sjálf. „Ég valdi
að skoða þarameðferðir á Íslandi,
og einblíndi á þörunga við Ísland,
íslenskar snyrtivörur og matvæla-
framleiðslu. Ég held að þörunga-
og þarameðferðir séu það næsta
sem mun spretta upp á komandi
árum innan snyrtifræðinnar og
spa-menningarinnar. Í báðum
þessum geirum er hægt að gera
mjög margt spennandi með þara
og þörunga.“
Áhrif og árangur
Árangurinn segir hún vera það
sem sé svo spennandi við þara- og
þörungafræðin og meðferðirnar.
„Þörungar finnast víða í nátt-
úrunni, ekki bara í sjó heldur líka
í ferskvatni og jarðhitavatni, eins
og reyndin er með kísilþörungana
í Bláa lóninu. Þörungar eru stút-
fullir af vítamínum og steinefnum
sem er erfitt að fá nóg af í fæðunni.
Eftir því sem við eldumst verður
erfiðara fyrir líkamann að við-
halda þessum næringarefnum í
líkamanum og þá getur inntaka
á þörungum hjálpað mjög til við
það.
Hrossaþarinn og spirulina eru
þær þarategundir sem eru notaðar
hvað mestar í spa- og snyrtimeð-
ferðum á Íslandi, á meðan
astaxanthin og spirulina er hægt
að taka inn. Spirulina inniheldur
mjög mikið af prótíni sem og A, C,
E og B-vítamínum. Hún er líka rík
af steinefnum eins og kalki, magn-
esíumi, sínki og seleni. Spirulina
getur bætt meltingu og þarma-
flóru, getur lækkað kólesteról og
blóðþrýsting og er því góð vörn
gegn hjartasjúkdómum. Spirulina
getur líka aukið efnaskipti, dregið
úr ofnæmiseinkennum og er bæði
andoxandi og bólgueyðandi.
Astaxanthin er nafnið á
litarefninu í grænþörungum og
er öflugasta og breiðvirkasta
Þörungar
finnast
víða í nátt-
úrunni,
ekki bara í
sjó heldur
líka í fersk-
vatni og
jarðhita-
vatni.
Rakel Sunna
Jóhanna María
Einarsdóttir
jme
@frettabladid.is
Heillaðist af
krafti þarans
Þari og þörungar
bjóða upp á
spennandi
möguleika í
matvælaiðnað-
inum sem og
spa- og snyrti-
meðferðum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Rakel Sunna er
snyrtifræðingur
að mennt.
andoxunarefni sem hefur fundist
í náttúrunni. Það er 550 sinnum
öflugra en E-vítamín og 6.000
sinnum áhrifaríkara en C-vítamín.
Komið hefur í ljós að astaxanthin
hefur góð áhrif á húðina, augun,
heilann og hjartað. Það hjálpar til
við ótímabæra öldrun húðar og ver
hana gegn frumudauða af völdum
útfjólublárra geisla sólarinnar.
Það gerir það að verkum að húðin
brennur síður og heldur betur lit.
Því er sniðugt að byrja að taka
það inn fyrir sumarið og á sumrin
og sérstaklega þegar fólk fer til
sólarlanda. Það má samt alls ekki
gleyma sólarvörninni því asta-
xanthin kemur ekki í staðinn fyrir
hana.“
Þarameðferðir og snyrtivörur
Í framleiðslu á snyrtivörum með
þara segir Rakel það skipta máli
hvenær ársins þarinn er tíndur og
hvenær hann er þurrkaður. „Það
þarf að tryggja að öll vítamín
og steinefni haldist í honum við
undirbúning og verkun til þess
að geta notað hann í snyrtivörur
til dæmis. Helstu fyrirtækin hér á
landi sem framleiða vörur úr þara
eru Key Natura, Geo Silica og Bláa
lónið. Eftir þurrkun er svo hægt að
mala þarann í duft og blanda út í
olíur, vatn og önnur efni til að búa
til snyrtivörur eða maska sem er
svo borinn á líkamann.“
Upp á síðkastið hafa sprottið
upp ýmis baðhús víða um land.
Sum bjóða upp á bjórböð, önnur
eru með sjóböð og enn önnur eru
með böð í kísilríku jarðhitavatni.
„Svo bjóða sum upp á þaraböð.
Þá fer fólk í kör með þara í, ýmist
heilum eða maukuðum. Sum
bjóða upp á þarainnpakkanir. Þá
er þarinn settur á húðina og fólk
vafið inn í hitateppi, en hitinn
eykur innsíun húðarinnar á víta-
mínum og steinefnum.“
Þarinn virkar líka vel fyrir hár
og neglur. „Þarinn er líka notaður
í hármeðferðir. Þá er þarablanda
notuð í hármaska og sett í hárið.
Þarinn gefur fallegan glans í hárið
og viðheldur honum. Þarinn hefur
líka virkað vel á exemsjúklinga
og fólk með þurran hársvörð og
flösuvandamál. Þarinn hefur líka
innbyrðis áhrif við inntöku, eins
og á spirulina eða astaxanthin.
Vítamín og steinefni úr þaranum
næra þá húðina, hárið og neglur
innanfrá.“
Þarinn og sjóböð
Nú eru komin nokkur ár síðan
farið var að nota þara og þörunga
í snyrtivörur en ólíkt ýmsum
öðrum þekktum efnum á snyrti-
vörumarkaðnum, virðist ekki vera
aldalöng hefð fyrir notkun þara.
„Það er þó aldalöng hefð fyrir sjó-
sundi hér á landi og annars staðar,
og sjórinn er talinn hafa góð áhrif
á húðina. Saltið í sjónum hjálpar
til við húðflögnun og svo er ekki
ólíklegt að þarinn gefi mýkt og
næringu. Það hlýtur að vera eitt-
hvað samspil þarna á milli,“ segir
Rakel. n
Léttari lund,
alla daga
MAG-YOUR-MIND® er öflug blanda af magnesíum,
B6 & B9 ásamt burnirót og adaptógenum.
Vinnur gegn streitu og skerpir hugsun.
4 kynningarblað 25. ágúst 2022 FIMMTUDAGURHÚÐVÖRUR