Fréttablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 12
Hvað kom Íslending- um þetta við? Áttu þeir að sýna sam- stöðu með smáþjóð- um í lífs- og sálar- háska? Eða áttu þeir að lúffa eins og venjulega – halda kjafti og selja sinn fisk? Kemur fiskur í staðinn fyrir „foreign policy“ á Íslandi? Makríll í staðinn fyrir mannréttindi? Hagsmunir í staðinn fyrir hugsjónir – grund- vallarsjónarmið? Þetta var meðal þeirra spurninga, sem Eiríkur heitinn Guðmundsson í Víðsjá (RÚV) reifaði í þætti sínum fyrir nokkrum árum. Allt saman þýðingarmiklar spurningar – og tilefni til að leita svara – ærin. Lífs- háski Úkraínu- og Palestínumanna frammi fyrir yfirþyrmandi her- valdi; sjálfsákvörðunarréttur þjóða frammi fyrir hernaðarástandi; mannréttindi hinna varnarlausu frammi fyrir drápsmaskínum styrjalda. Kemur þetta okkur við? Eiríkur fékk dr. Guðna Th. Jóhann- esson – annálaðan sagnfræðing og virtan álitsgjafa, til að ganga til spurninga. Er lífið saltfiskur? var spurt – og svar sagnfræðingsins var: „Já“. Þora Íslendingar að styðja lög og rétt í samskiptum þjóða? Eða lúffa þeir alltaf, þegar á reynir, ef komið er við pyngjuna? Ef fiskmarkaðir eru í hættu? Svar sagnfræðingsins var: Lífið er saltfiskur – Íslendingar lúffa alltaf, þegar á reynir. Svo barst talið að sjálfstæðisbar- áttu Eystrasaltsþjóða og stuðningi Íslands við hana, frammi fyrir hern- aðarof beldi Sovétríkjanna sálugu. Þar var sama sagan, sagði sagn- fræðingurinn. Þegar Sovétstjórnin hótaði Íslendingum að þeir þeir skyldu hafa verra af „runnu tvær grímur á okkar menn“. Þetta verður ekki skilið á annan veg en þann, að þá hafi íslensk stjórnvöld látið sér segjast. Lúffað eins og venjulega – enda fiskmarkaður í Sovétríkjunum í húfi, og olía og bensín í staðinn – sjálft lífsblóð hagkerfisins. En er þetta satt? Nú eru liðnir rúmir þrír áratugir frá því að þessar smáþjóðir við Eystra- salt sluppu út úr þjóðafangelsi Sovétríkjanna og fengu endurreist sjálfstæði sitt viðurkennt að lögum og í reynd. Á árunum 1987-92 háðu þessar þjóðir tvísýna sjálfstæðis- baráttu við ofurefli. Þetta voru her- numdar þjóðir (eins og Palestína) og áttu við ofurefli að etja (eins og Úkraínumenn). Stuðningur leiðtoga vestrænna lýðræðisríkja lét á sér standa vegna meiri hagsmuna af samningum við leiðtoga Sovétríkjanna um gagn- kvæma afvopnun og endalok kalda stríðsins. Hvað kom Íslendingum þetta við? Áttu þeir að sýna samstöðu með smáþjóðum í lífs- og sálarháska? Eða áttu þeir að lúffa eins og venju- lega – halda kjafti og selja sinn fisk? Svar sagnfræðingsins var, að þegar á reyndi, hefðu Íslendingar lúffað eins og venjulega. Þetta er í sam- ræmi við kenningar, sem kenndar eru í háskólum í nafni stjórnvísinda og alþjóðatengsla, að smáþjóðir eigi ekki erindi upp á dekk í alþjóða- málum; þær sitji yfirleitt og standi, eins og þeim er skipað af gera, af stórveldum. En er þetta satt? Hvers vegna nefna þá Eistlendingar torgið fyrir framan utanríkisráðuneyti sitt (sem áður hýsti aðalstöðvar kommún- istaf lokksins) Íslandstorg? Hvers vegna skýrðu Litháar götu í grennd við þinghúsið sitt Íslandsgötu? Hvers vegna reistu Lettar minnis- merki við Túngötuna í Reykjavík – í kallfæri við rússneska sendiráðið – í þakklætisskyni við íslensku þjóð- ina? Fyrir hvað? Látum staðreyndirnar tala sínu máli: Í janúar 1991 ákváðu Kremlverj- ar að binda endi á sjálfstæðisbrölt þessara þjóða í eitt skipti fyrir öll – með hervaldi. Lýðræðislega kjörnar ríkisstjórnir þessara þjóða sendu frá sér neyðarkall með beiðni um stuðning. Utanríkisráðherra Íslands var sá eini, sem hlýddi kallinu. Hann mætti á vettvang, lýsti yfir pólitísk- um og siðferðilegum stuðningi og gerði sitt besta til að skýra málstað þeirra fyrir alþjóðasamfélaginu. Ríkisstjórn Íslands, undir for- sæti Steingríms Hermannssonar, skoraði á Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að láta málið til sín taka, stöðva blóðsúthellingar og beita sér fyrir friðsamlegri lausn deilumála. Sovétstjórnin mótmælti þessu framferði íslenskra stjórnvalda harðlega sem „íhlutun um innri málefni Sovétríkjanna“. Íslenski sendiherrann í Moskvu var kallað- ur á teppið og sá sovéski í Reykjavík kallaður heim. Þetta er næsti bær við að slíta stjórnmálasambandi. Hótun um að rifta viðskiptasamn- ingum fylgdi í kjölfarið. Og þá er komið að kjarna máls- ins: Hver voru viðbrögð íslenskra stjórnvalda? Lúffuðu þau – eða héldu þau stefnu sinni til streitu? Utanríkisráðherrann brást við með því að setja saman lögmanna- teymi (fékk m.a. léðan atbeina þjóðréttarfræðings frá Eistlandi, sem var sovéskum hnútum kunn- ugur) til að svara mótmælaorð- send ing u Sovét st jór na r inna r málefnalega. Í þessu skjali voru færð fyrir því þjóðréttarleg rök, að Íslendingar hefðu ekki gert sig seka um íhlutun um innanlands- mál Sovétríkjanna af þerri ein- földu ástæðu, að hernám og inn- limun Eystrasaltsþjóða í Sovétríkin hefðu verið ólögleg á sínum tíma. Þjóðfulltrúaráð Sovétríkjanna (e. Congress of Peoples‘ Deputies) hefði þá þegar viðurkennt þetta með því að lýsa Molotov- Ribben- trop samninginn, sem var upp- haf seinni heimsstyrjaldarinnar og seldi Eystrasaltsþjóðir – þ.m.t. Finnland – undir ógnarstjórn Stal- íns, ólöglegan. Sérhagsmunir eða þjóðarhagsmunir? Þessi afstaða var studd ítarlegum -, þjóðréttarlegum rökum um skuld- bindingar Sovétstjórnarinnar skv. alþjóðasáttmálum og samningum um að virða lög og rétt í samskipt- um þjóða – einkum þó Helsinki- sáttmálann frá 1975. Landsbergis, leiðtogi sjálfstæðis- hreyfingar Litháen, sagði undirrit- uðum síðar, að þarna birtist besta greining á þjóðréttarlegri stöðu Eystrasaltsþjóða, sem hann hefði séð. Hún hefði komið að góðum notum síðar í samningum við Sovétmenn um heimkvaðningu hernámsliða. Það væri kannski ráð að falast eftir aðgangi að þessari skýrslu við utanríkisráðuneytið? Var þá ekkert hugsað um fisk og olíu fyrir fiskiskipaflotann? Jú, að sjálfsögðu – enda væri það full- komið ábyrgðar- og fyrirhyggjuleysi að gæta ekki viðskiptahagsmuna þjóðarinnar. Það tilheyrir nú bara hinu daglega uppvaski. Viðskipta- hagsmuna þjóðarinnar er svo best gætt með því að leita markaða, þar sem bjóðast hæstu verð fyrir mestu gæði vöru og þjónustu. Þá markaði var ekki að finna í Sovétríkjunum, sem voru bæði í efnahagslegri og pólitískri upplausn á þessum árum. Þörfum þjóðarbúsins fyrir olíu og bensín var auðvelt að fullnægja fyr- irhafnarlítið á öðrum mörkuðum. Þetta var að sjálfsögðu tryggt. Auðvitað hefðu einstök fyrir- tæki, sem voru orðin hagvön í fyrir- hafnarlausri tilveru á Sovétmark- aðnum í skjóli milliríkjasamninga, orðið fyrir tímabundnum skakka- föllum. Þarna þurfti því að ákveða, hvort ætti að ráða: sérhagsmunir einstakra fyrirtækja eða íslenskir þjóðarhagsmunir. Þjóðarhagsmunir smáþjóða eru ævinlega að styðja við lög og rétt og friðsamlegar lausnir í deilumálum þjóða. Það varðar bæði sjálfan tilverugrundvöll þeirra og orðstír. Í trássi við stórveldin Allan tímann hélt íslenski utan- ríkisráðherrann áfram að tala máli þessara þjóða á vettvangi alþjóða- stofnana – svo sem S.Þ., NATO og Öryggis-og samvinnustofnunar Evrópu – þar sem rödd þeirra sjálfra heyrðist ekki. Það var reyndar í óþökk - ekki bara Sovétstjórnar- innar – heldur líka helstu leiðtoga Vesturveldanna, sem töldu sig eiga of mikið i húfi í samningum við Kremlverja. Bush eldri Bandaríkjaforseti vildi t.d. tryggja, að Sovétmenn snerust ekki gegn innrás hans í Írak í janú- ar 1991. Í augum Kohls, kanslara Þýskalands, mátti ekkert segja né gera, sem gæti spillt friðsamlegri endursameiningu Þýskalands, sem Þjóðverjar borguðu fyrir milljarða marka. Allt var það, að hans mati, undir því komið, að Gorbachev héldi völdum. Útganga Eystrasaltsþjóða úr þjóðafangelsi Sovétríkjanna mundi að hans mati leiða til þess, að Gor- bachev yrði steypt af stóli – og að harðlínumenn kæmust aftur til valda í Kreml. Það var því mikið í húfi. Enda skrifuðu Kohl og Mit- terrand, Frakklandsforseti, Lands- bergis sameiginlegt bréf, þar sem þeir sárbændu hann að fresta fram- kvæmd sjálfstæðisyfirlýsingar Lit- háa. Í staðinn ætti hann að ganga til samninga við Kremlverja, án fyrir- fram skilyrða. Þessi viðbragðapólitík leiðtoga Vesturveldanna hrundi eins og spilaborg með falli Gorbachevs og valdatöku Jeltsíns. Við reyndumst einfaldlega hafa raunsærra mat á innanlandsástandinu í Sovétríkj- unum og þróun mála þar en leyni- þjónustur stórveldanna til samans. Hver lúffaði? Þegar valdalánstilraun harðlínu- manna í Kreml var að renna út í sandinn í lok ágúst 1991, tókum við frumkvæðið. Meðan upplausnar- ástand ríkti í Moskvu, og Vestur- veldin voru eins og höfuðlaus her, buðum við ráðherrum Eystrasalts- landanna þriggja til fundar í Höfða í Reykjavík, þar sem viðurkenning Íslands á endurreistu sjálfstæði þessara þjóða var formlega staðfest. Þar með var endir bundinn á óvissuástand og hrundið af stað ferli, svo að ekki varð aftur snúið. Það mat okkar, að aðrar þjóðir myndu breyta afstöðu sinni og fylgja í kjölfar Íslendinga, reyndist rétt. Eftirminnilegt er, að sænski utanríkisráðherrann hafði lýst stefnu síns íslenska starfsbróður sem dæmi um „óábyrga ævintýra- mennsku“. Fáum dögum síðar slóst hann í hóp hinna „óábyrgu ævin- týramanna“. Bandaríkin urðu númer fjörutíu og eitthvað til að endurtaka það sem gerðist í Reykja- vík – einum degi á undan Sovétríkj- unum. Nokkrum vikum seinna voru Sovétríkin ekki lengur til. Lúffuðu íslensk stjórnvöld? Um það getur hver og einn dæmt fyrir sig af rás viðburðanna. En það mun reynast snúið að telja leiðtogum Eystrasaltsþjóða trú um það, þegar þær fagna 30 ára afmæli hins endur- heimta sjálfstæðis – að Íslendingar hafi lúffað. n Tilvistarvandi smáþjóða – hver lúffaði? Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra Íslands 1988-95 og heiðursborgari í Vilníus, höfðuborg Litháen Jón Baldvin, Lennart Meri frá Eistlandi, Janis Jurkans frá Lettlandi og Algirdas Saudargas frá Litháen hér á landi 25. ágúst 1991. 12 Skoðun 25. ágúst 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.