Fréttablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 44
Þetta er
B-mynda
viðfangs-
efni og ég
er ekkert
feiminn
við það
enda finnst
mér svo
gaman að
prufa nýja
hluti.
Stórleikarinn Idris Elba tekst
á við risastórt mannýgt ljón
í Beast, sem Baltasar Kor-
mákur hefur sleppt lausu í
bíó á Íslandi. Leikstjórinn
segist hafa tekið óargadýrinu
fagnandi þegar það stökk í
fangið á honum úr kófinu
enda freistandi að vinna með
Elba, dvelja í Afríku og bregða
á leik í mátulega einfaldri
spennusögu.
„Verkefnið kom að einhverju leyti til
mín þegar ég var að ræða við Uni-
versal út af Covid,“ segir leikstjórinn
Baltasar Kormákur um sína nýjustu
Hollywood-mynd, Beast, sem hverf-
ist um brjálað ljón sem hann fékk í
hendurnar eftir að sóttvarnalausnir
hans á tökustað Netflix-þáttanna
Kötlu vöktu heimsathygli.
„Þetta var mjög áhugavert. New
York Times fjallaði um þetta og
stúdíóin hringdu í mig og vildu fá að
vita hvernig ég hefði farið að þessu.
Fólk var svo ráðalaust og það er nú
svo furðulegt að ég var bara með
einhver armbönd fá sundlaugunum
í Kópavogi,“ segir Balti, sem stjórn-
aði einfaldlega umferð fólks um
sóttvarnahólfin á tökustað Kötlu
með mislitum armböndum.
„Ég setti fólk bara í polla. Gulir
mega vera hérna og rauðir mega
vera þarna og rauðir fara upp úr
eftir 25 mínútur,“ heldur hann
áfram, þegar hann útskýrir sund-
laugalausnina sem varð til þess að
heimsfaraldurinn tafði tökurnar
aðeins um þrjár vikur að páskum
meðtöldum.
Varstu ekki bara svolítið að taka
Íslendinginn á þetta?
„Jú, þetta var ekkert öðruvísi, en
ég hef aldrei á ævinni lent í ann-
arri eins hrinu af viðtölum og jafn
miklum viðbrögðum og við þessu.
Við vorum síðasta fyrirtækið í
heiminum sem fór niður og það
fyrsta sem fór aftur í gang,“ segir
Balti og fer aftur á upphafsreit Beast
hjá Universal, en eftir að hafa rætt
sóttvarnir við lausnamiðaða Íslend-
inginn var hann spurður hvað hann
væri að fara að gera næst.
„Þeir spurðu hvort ég vildi tékka á
þessu handriti og ég gat ekki fundið
neitt því til fyrirstöðu að ég færi til
Afríku og eyddi hálfu ári þar.“ Eins
og gefur að skilja var dvölin í Afríku
bæði gefandi og krefjandi og hætt-
urnar leyndust víða.
Hanaslagur við fíl
„Þetta tók á. Við tókum þetta í Lim-
popo sem er rétt hjá Mósambík og
við hliðina á Kruger Park sem er
stærsti þjóðgarður í heiminum
og allt morandi í villtum dýrum,“
heldur Balti áfram, en tökuliðið
hélt til á afmörkuðu svæði sem
ekki kom til greina að fara út fyrir
í myrkri. „Það væri bara sjálfs-
morð og maður heyrði ljón öskra
alla nóttina og það voru grínlaust
stundum bara villtir fílar fyrir utan
húsið hjá mér.“
Baltasar og unnusta hans, Sunn-
eva Ása Weishappel, komust í full
mikið návígi við einn fílinn. „Ég
lenti í fíl sem ætlaði að ráðast á mig
þegar við Sunneva vorum að ganga
þarna saman. Ég varð svo æstur að
ég fór í hálfgerðan hanaslag við
fílinn og fékk hann til að bakka,“
segir Balti, sem segist þarna hafa
notið þess að hafa smá skilning á
dýrum eftir alla áratugina í hesta-
mennskunni.
Störukeppni
í Afríku og
tár á Everest
Einfalt tækifæri
Baltasar segist þó hafa talið mikil-
vægt að taka Beast upp í Afríku enda
leggi hann sem leikstjóri mikið upp
úr því að komast sem næst raun-
veruleikanum. „Mér finnst það
rosalega mikilvægt. Jafnvel í svona
mynd þar sem áherslan er mikil á
skemmtanagildið og manninn gegn
villidýrinu, þá langaði mig að hafa
þetta ósvikið og teygja mig langt í
því.
Baltasar segist einnig hafa séð
skemmtilegt tækifæri í því að
sagan í Beast sé að mörgu leyti ein-
föld. „Það var líka ákveðin freisting
að fara í svona einfalda sögu og fá
tækifæri til að leika sér dálítið með
kvikmyndavélina og stemninguna
vegna þess að það fer ekki mikil
orka í plottið og útskýringar,“ segir
Baltasar, sem tekst vel að magna
upp ógnina og draga áhorfendur
inni í atburðarásina og umhverfið
með löngum tökum.
„Þetta er B-mynda viðfangsefni
og ég er ekkert feiminn við það enda
finnst mér svo gaman að prufa nýja
hluti og teygja mig í allar áttir,“ segir
Balti sem hefur komið við í f lestum
kvikmyndagreinum; kómedíu með
101 Reykjavík og Brúðgumanum,
spennu í Contraband og 2 Guns,
verið í anda film noir í Mýrinni
og Ófærð. „Og svo dýfði ég tánni í
vísindaskáldskap í Kötlu. Einhvers
konar eldfjalla sci-fi eða eitthvað,“
segir hann og hlær.
Öðruvísi náttúruafl
Þá eru ótaldar myndir Baltasars
um manninn gegn náttúruöflun-
um; Djúpið, Everest og Adrift sem
hefur borið það hátt að ranglega er
stundum reynt að gera slík yrkisefni
að einhvers konar rauðum þræði í
gegnum höfundarverk hans.
„Sko, svona er þetta með mig.
Þegar ég gerði 101 þá var ég „Almo-
dovar on ice“, þegar ég gerði Hafið
þá var ég „Icelandic Bergman“ og svo
var ég orðinn einhver aksjónmeist-
ari eftir Contraband og 2 Guns.“
Everest, Djúpið og Adrift eru þó
mjög ólíkar myndir og Beast sker
sig einnig hressilega úr, þótt vissu-
lega megi segja að í grunninn fjalli
hún um átök manns og náttúru og
að ljónið í henni sé á vissan hátt
náttúruafl. Að vísu með allt öðrum
formerkjum.
„Þetta er allt annað,“ segir Balti
um Beast og bendir á að myndin
kalli á að áhorfendur sleppi aðeins
takinu á raunveruleikanum þótt
hún eigi rætur þar. „Ég kynnti mér
auðvitað svona ljónaárásir mjög vel
og þær eru miklu algengari en við
gerum okkur grein fyrir.“
Baltasar dýralæknir
Baltasar segir það ekki síður hafa
verið skemmtilega ögrun að þurfa
að búa til heilt dýr, en tölvugert
risaljónið sem keyrir söguna áfram
þykir ákaflega vel heppnað og sann-
færandi.
„Stúdíóið var algerlega mótfallið
því að skjóta eitthvað með ljónum
og þá þurftum við bara að fara aðra
leið og mér finnst skemmtilegt að
takast á við svona ögranir og læra í
ferlinu,“ segir Balti sem var á fullu í
sköpun ljónsins í eftirvinnslunni.
„Það var ógeðslega gaman að
kynna sér atferli ljóna, kynna sér
þetta allt og kafa ofan í þetta. Ég
er það mikill dýramaður að þegar
ég sagði foreldrum mínum að ég
væri að fara að gera þessa mynd þá
dró mamma fram einhverja gamla
úrklippubók upp úr kassa. Þetta er
fyrir internetið,“ segir Balti, sem í
æsku safnaði dagblaðaúrklippum
um ljón í Afríku af miklum áhuga.
„Ég ætlaði að verða dýrafræðingur
og fara til Afríku að stúdera ljón. Það
varð svo að dýralækni þegar það
kom smá jarðtenging í þetta og svo
einhvern veginn villtist ég í aðra átt,
fór í leiklist og endaði í Hollywood
eða hvar sem ég er staddur núna.“
Góðra vina fundur
Baltasar og aðalleikarinn Idris Elba
náðu mjög vel saman enda höfðu
þeir áður ætlað að gera mynd saman
og Balti segir leikarann eina ástæð-
una fyrir því að hann hafi verið
spenntur fyrir verkefninu.
„Málið er að það er svolítið síðan
við Idris ætluðum að gera mynd
saman og ég hitti hann í því ferli
og við náðum rosalega vel saman.“
Ekkert varð þó úr þeim áformum
Þórarinn
Þórarinsson
thorarinn
@frettabladid.is
Baltasar Kor-
mákur er sáttur
við lífið og til-
veruna og mætir
næstu verk-
efnum fullur
tilhlökkunar en
þar er ofarlega
á blaði að vera
geggjaður afi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
24 Lífið 25. ágúst 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 25. ágúst 2022 FIMMTUDAGUR