Mosfellingur - 12.05.2022, Blaðsíða 32
- Mosfellingarnir Bjarni Bjarnason og Nina Baastad32
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir og úr einkasafni.
Á Hraðastöðum í Mosfellsdal er fjöl-
breytt dýralíf svo vægt sé til orða
tekið en Húsdýragarðurinn þar
nýtur sívaxandi vinsælda en hann hefur
verið starfræktur frá árinu 2013.
Ábúendurnir á bænum, Bjarni, Nina
og dætur þeirra, hafa tekið á móti leik-
og grunnskólabörnum frá árinu 2004 en
flest þeirra koma á meðan sauðburður
stendur yfir. Um leið og skólum lýkur
taka Sveitasælunámskeiðin við þar sem
börnin læra að umgangast dýrin, fóðra
þau og njóta sveitarinnar um leið.
Bjarni fæddist 25. apríl 1962. Foreldrar
hans eru þau Klara Þórðardóttir og Bjarni
Bjarnason bændur á Hraðastöðum. Bjarni
á fjögur systkini, Þórhildi f. 1958, Sigrúnu f.
1965, Guðna f. 1971 og Berglindi f. 1973.
Nina fæddist í Noregi 30. ágúst 1969.
Foreldrar hennar eru þau Ragnhild Baastad
húsmóðir og Per Kristian Baastad vörubíl-
stjóri en hann lést árið 2019. Nina á tvo
bræður, Björn f. 1966 og Knut f. 1968.
Fóru í langa útreiðartúra
Bjarni ólst upp á Hraðastöðum og á góð-
ar minningar frá æskuárunum. Minnistæð-
astar eru ferðirnar sem þau systkinin fóru
í með pabba sínum en þá fóru þau ríðandi
yfir Mosfellsheiðina að Jórukleif og borð-
uðu þar nesti. Gott var svo að koma heim
í heitan kvöldmat hjá mömmu eftir langan
og góðan reiðtúr.
„Við félagarnir hérna í Dalnum vorum
mjög duglegir að ríða út og við fórum í
margar mjög svo ánægjulegar ferðir saman,
þá lágu leiðir oft til Þingvalla eða á Kjalar-
nesið. Það er sko fátt sem toppar svona
túra,“ segir Bjarni og brosir.
Útskrifaðist sem vélfræðingur
Bjarni gekk í Varmárskóla og Gagnfræða-
skóla Mosfellsbæjar og á sumrin starfaði
hann við bústörf á heimili sínu. Eftir út-
skrift fór Bjarni í Iðnskólann í Reykjavík til
að læra vélvirkjun og eftir úskrift
starfaði hann í vélsmiðjum og
verksmiðjum.
Hann rekur vélaleigu í dag og
starfar sjálfur við gröfuvinnu og
snjómokstur. Hans helstu áhugamál eru
hestamennska og vélar og allt sem tengist
þeim.
Þetta var reynslumikill tími
Nina ólst upp í Trysil í Noregi en þar er
að finna eitt stærsta skíðasvæði landsins.
Á æskuárunum eyddi hún miklum tíma
úti í náttúrunni, var á gönguskíðum, fór
í göngutúra, á hestbak eða tíndi ber. Hún
hefur alla tíð verið í kringum dýr, bæði með
vinnu og sér til skemmtunar en hestarnir
eiga hug hennar allan. Nina gekk í grunn-
skólann í Trysil og með skóla starfaði hún
við að mjólka í geitafjósi.
„Skemmtilegasta ævintýri
sem ég fór í á æskuárunum var
þegar ég fékk að fara í þriggja
daga hestaferð en þá var ég tólf
ára. Eftir þessa ferð fékk ég sumarvinnu
á hestaleigunni í Femundsmarka sem er
þjóðgarður. Þetta var rosalega góður og
reynslumikill tími, ég kynntist fullt af fólki
í sveitinni og fékk að upplifa alvöru sveita-
ball sem haldið var úti við.“
Útskrifaðist sem búfræðingur
„Ég var 16 ára þegar ég flutti á heimavist-
ina í bændaskólanum í Alvdal og þar var ég
í tvö ár. Ég fór svo til Íslands 1988 til að taka
verklega hluta námsins. Ég starfaði á Kára-
neskoti í Kjós í 10 mánuði við að mjólka kýr,
fara á hestbak og við almenn störf.
Það var rosalegt ævintýri að koma hingað
til Íslands, ég var strax hrifin af menning-
unni og náttúrunni og auðvitað íslenska
hestinum. Ég fór svo aftur til Noregs,
kláraði bændaskólann og útskrifaðist sem
búfræðingur 1990. Ég fór strax til Íslands
eftir útskrift og skellti mér á Landsmót
hestamanna fyrir norðan. Á landsmótinu
hitti ég yndislegan pilt, sem ég er gift í dag,“
segir Nina og brosir til Bjarna. „Ég hélt svo
áfram að ferðast ein hringinn í kringum
landið með bakpoka og tjald í viku áður en
ég hóf störf í Helgadal í Mosfellsdal.
Ég hóf síðar störf hjá Reykjabúinu og var
þar í 10 ár og og í söludeild Nóa og Síríus í
13 ár, svo var ég í vörukynningum fyrir MS
um helgar. Sl. fjögur ár hef ég starfað hér
heima við og í tvö ár hef ég verið að moka
snjó fyrir bæinn.“
Börnin læra að umgangast dýrin
Bjarni og Nina hófu búskap á Hraða-
stöðum árið 1990. Þau eiga þrjár dætur,
Klöru f. 1997, Lindu f. 1999 og Söru f. 2002.
Síðastliðin ár hefur tími þeirra aðallega
farið í endurbætur á húsum og vélakosti á
bænum en þau skreppa þó einu sinni á ári
til Noregs til að kíkja á æskuslóðir Ninu.
Árið 2004 byrjuðu þau að taka á móti
leik- og grunnskólanemum og gera enn
en þessar heimsóknir fara fram yfir sauð-
burðartímann. Um leið og skólunum lýkur
þá byrja Sveitasælunámskeiðin sem heima-
sæturnar Linda og Sara stýra. Aðsóknin á
námskeiðin hefur aukist gríðarlega í gegn-
um árin og er algengt að börn komi á fleiri
en eitt námskeið og sum þeirra koma ár
eftir ár. Aldursbilið er frá 6 ára og upp úr
og margir hafa eignast góða vini.
Markmiðið með þessu námskeiði er að
börnin skemmti sér vel, læri að umgang-
ast dýr og njóti þess að vera í sveitinni.
Þau fá að fóðra dýrin og veita þeim ást
og umhyggju, moka flórinn, kemba og
flétta hestana og þeir sem vilja geta farið á
hestbak. Námskeiðin eru viku í senn, þrjár
klukkustundir á dag.
Opnuðu húsdýragarð
„Húsdýragarðinn opnuðum við 2013
en sú hugmynd kom upp því stelpurnar
okkar vantaði sumarvinnu. Þetta var kjör-
ið tækifæri því öll dýrin voru hér til staðar.
Opnunartíminn er mjög mismunandi svo
fyrir áhugasama er best að fara inn á hrada-
stadir.is til þess að fá nánari upplýsingar.
Garðurinn er opinn fjóra mánuði á ári
og hér er hægt að fara á hestbak, setjast á
traktora, leika með leikföng, borða nesti
úti við og almenningur getur komið með
pylsur og grillað.
Við erum líka með hestaleigu á bænum,
tökum á móti hópum og bjóðum upp á
persónulega þjónustu.
Það var gaman að sjá í Covid hversu
margir Íslendingar komu á hestbak. Marg-
ir höfðu á orði hversu umhverfið í Dalnum
væri fallegt, meira að segja margir Mosfell-
ingar sem hafa bara verið vanir að keyra
hér í gegn,“ segir Nina og brosir.
Björt vornótt með fuglasöng
„Við stefnum á að bjóða upp á að fólk geti
komið hingað og haldið upp á barnaafmæli
og bekkjarkvöld og eins að starfsmannafé-
lög geti komið og notið góðra stunda með
dýrunum.
Ég spyr Bjarna og Ninu að lokum hvað
gefi þeim mest við að reka húsdýragarð?
„Án efa að sjá hvað fólk nýtur þess að koma
hingað og vera innan um dýrin og ekki síst
fullorðna fólkið,“ segir Bjarni. Og Nina
bætir við: „Það er ekkert eins dásamlegt
eins og að vera út í fjárhúsum á björtum
vornóttum, hlusta á fuglasönginn og horfa
á lömbin koma í heiminn,“ og með þeim
orðum kvöddumst við.
Það er ekkert eins dásamlegt
eins og að vera út í fjárhús-
um á björtum vornóttum, hlusta
á fuglasönginn og horfa á lömbin
koma í heiminn.
Fjölskyldan á Hraðastöðum, Nina, Linda, Sara, Klara og Bjarni.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Hafa alla tíð verið
umkringd dýrum
Bjarni Bjarnason og Nina Baastad reka húsdýragarðinn á Hraðastöðum í Mosfellsdal
Linda í góðum féLagsskap
nina og Bjarni ung að árum
dýrin á hraðastöðum