Mosfellingur - 12.05.2022, Blaðsíða 12

Mosfellingur - 12.05.2022, Blaðsíða 12
 - Fréttir úr bæjarlífinu12 Mosfellsbær og Blikastaðaland ehf. hafa undirritað samstarfssamning um uppbygg- ingu sjálfbærrar og mannvænnar byggðar í landi Blikastaða. Hverfið verður hannað frá grunni sem fjölbreytt og blönduð byggð þar sem fólk getur sinnt helstu erindum fótgangandi eða með almenningssamgöngum þar sem Borg- arlínan verður í burðarhlutverki. Með því er stuðlað að betri nýtingu náttúrugæða, orku og innviða sem sýnir ábyrgð í umhverfismál- um og tryggir lífsgæði komandi kynslóða. Samráð við íbúa vegna vinnu við skipulag svæðisins er tryggt að lögum en samning- urinn rammar inn þátttöku landeigandans í fjárfestingu í innviðum hverfisins. Byggð á Blikastöðum lengi legið fyrir „Það hefur lengi legið fyrir að það mun rísa byggð í landi Blikastaða,“ segir Harald- ur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar. „Gildandi stefnumörkun um þéttleika á Blikastaðalandi má rekja til svæðisskipu- lags höfuðborgarsvæðisins og breytinga á því skipulagi sem auglýst var á síðasta kjörtímabili og tók gildi á þessu kjörtíma- bili. Þar er um að ræða breytingu sem bar heitið „Samgöngu- og þróunarásar fyrir hágæðakerfi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu – Borgarlína.“ Þar er kveðið á um þann þéttleika byggðar sem þarf að vera til að bera slíkt samgöngukerfi og það er ein af stoðunum þremur í samgöngusáttmála sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og ríkisins sem und- irritaður var 2019. Á árinu 2020 kynntu eigendur Blikastaða- lands bæjarstjórn Mosfellsbæjar drög að forsögn fyrir rammaskipulag og þróunar- áætlun. Bæjarráð ákvað að skipa rýnihópa til að rýna framlögð gögn. Að þeirri vinnu lokinni héldu áfram kynningar og vinna rammaskipulags með skipulagsnefnd frá því síðasta haust. Framgangur málsins hefur birst meðal annars á vef bæjarins í fundargerðum skipulagsnefndar.“ Aðkoma íbúa að mótun skipulagsins „Í forsögn að rammaskipulagi Blikastaða- lands er gert ráð fyrir að uppbygging og skipulag geti verið unnið í þremur til fimm áföngum. Þannig muni landeigendur vinna áfram náið með starfsfólki og kjörnum full- trúum Mosfellsbæjar að frekari útfærslum. Í skipulagsferli hafa íbúar jafnframt tæki- færi til að koma sínum sjónarmiðum að. Við rýni svæðisins og undirbúning er leitast við að halda í helstu sérstöðu Mosfellsbæj- ar innan höfuðborgarinnar, þar sem græn byggð og lágreist yfirbragð einkennir bæ- inn. Í tillögum hefur verið gengið út frá því að sett verði viðmið um að svæðisnýting á þróunarás Borgarlínu verði um 0,4. Frekari útfærslur um ásýnd, gerð og gæði byggðar munu eiga sér stað við gerð deiliskipulags og fara í viðeigandi samráðsferli.“ Bær, þorp, sveit og Borgarlína Í framsetningu hugmynda er lögð áhersla á þrenns konar þéttleika og karakter byggð- arinnar undir yfirskriftunum bær, þorp og sveit. Bærinn verður byggð fjölbreyttra bú- setukosta í fjölbýli næst fyrirhugaðri þjón- ustu og legu Borgarlínu. Þorpið lýsir sér sem smærri fjölbýliskostur í bland við sérbýli í par- og raðhúsum á völdum reitum. Sveitin er svo sá hluti hverfisins sem gengið er út frá að verði vestast á svæðinu og ætlaður sérbýli af fjölbreyttri stærð og gerð.“ Þá telur Haraldur mikilvægt að fram komi að: „Í þeim viðræðum sem hófust síð- ustu áramót um gerð uppbyggingarsamn- ings um Blikastaðalandið var því ekki verið að semja um þéttleika eða fjölda íbúða því þær forsendur lágu fyrir eftir umfjöllun í bæjarráði, bæjarstjórn og skipulagsnefnd. Það er skýrt tekið fram í samningnum og allir fyrirvarar gerðir um að þessa skipu- lagsvinnu á eftir að vinna með aðkomu íbúa með lögbundnu samráði. Samráðið er líka lykilþáttur í að skapa vandað, umhverf- isvænt og mannvænt bæjarumhverfi. Samningurinn tryggir hins vegar þá fjár- muni sem landeigandi skuldbindur sig til að láta af hendi til að standa undir þeim innviðum sem byggja þarf í hverfinu. Þar er um að ræða tvo grunnskóla, fjóra leikskóla og íþróttaaðstöðu. Þetta var flókin samningagerð enda mikl- ir hagsmunir undir en ég veit að út úr öllu þessu starfi kom mjög góður samningur fyrir Mosfellsbæ.“ Uppbyggingarsamningur án hliðstæðu „Þetta er uppbyggingarsamningur án hliðstæðu í öllu tilliti. Verðmæti samn- ingsins fyrir Mosfellsbæ er um 10 milljarðar króna sem skiptist annars vegar í 7 milljarða sem greiddir eru með peningum í tengslum við framvindu útgáfu byggingarleyfa og svo byggingu íþróttamannvirkja og hins vegar lóðaréttindi sem metin eru á 3 milljarða. Þetta eru upphæðir sem ekki hafa áður sést í samningum sem þessum. Samningurinn tryggir farsæla uppbygg- ingu hér í Mosfellsbæ, uppbyggingu sem er til þess fallin að efla þjónustu og lífs- gæði Mosfellinga og efla samfélag okkar á alla lund. Þá verður ekki framhjá því litið að uppbygging í landi Blikastaða verður lykilþáttur í að tryggja gott lóðaframboð á höfuðborgarsvæðinu sem mætir þeirri eftirspurn eftir húsnæði sem við höfum fundið svo vel,“ segir Haraldur. Uppbyggingarsamningur án hliðstæðu • 10 milljarðar til bæjarins • Lykilþáttur í lóðaframboði á höfuðborgarsvæðinu Blikastaðalandið verði vistvæn og fjölbreytt byggð milli fella og fjöru Lágafellssókn Aðalsafnaðarfundur Lágafellsssóknar verður haldinn þriðjudaginn 24. maí kl. 20:00 í safnaðarheimili Lágafells- sóknar Þverholti 3, Mosfellsbæ. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Sóknarnefnd AðALsAfnAðArfUndUr Þorgerður Arna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Blikastaðalands ehf. og Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mosfellsbæjar undirrita samninginn. við blikastaðabæinn má búast við þjónustu, verslun og afþreyingu þrenns konar þéttleiki verður á svæðinu, bær, þorp og sveit Blikastaðaland er stærsta óbyggða landsvæði höfuðborgarsvæðisins. Aðkoma íbúa að skipulagsvinnu er tryggð að lögum. Svæðið er um 87 hektarar að stærð. Gert er ráð fyrir að fjöldi íbúða verði 3.500 til 3.700 talsins. Um verður að ræða blöndu fjölbýlis og sérbýlis. Þá verða um 150 íbúðir fyrir 55 ára og eldri. Reistir verða tveir grunnskólar og fjórir leikskólar auk íþróttaaðstöðu. Verðmæti samningsins fyrir Mosfellsbæ er 10 milljarðar króna. helstu staðreyndir Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is Öll laus störf hjá Mosfellsbæ og stofnunum má sjá og sækja um á ráðningarvef bæjarins: www.mos.is/storf Laus störf í Mosfellsbæ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.