Mosfellingur - 12.05.2022, Blaðsíða 52
Sendið okkur myndir af nýjum
Mosfellingum ásamt helstu
upplýsingum á netfangið
mosfellingur@mosfellingur.is
fram-
tíðin er
okkar
Alveg frá því að ég var barn hefur mér
alltaf fundist kosningar mjög spennandi.
Það var aðalsportið að flakka á milli
kosningakaffiboða og safna nælum frá
sem flestum flokkum, hitta kunningja og
borða ógrynni af rjómatertusneiðum.
Ég barðist við að reyna að leggja á
minnið hvaða flokkur ætti hvaða bókstaf
og lit en gleymdi því oftast um leið. Svo
þegar ég varð eldri fór ég að átta mig á
því að kosningarnar snerust ekki bara
um stærsta hoppukastalann eða flestu
bragðtegundirnar af kandífloss heldur
málefnin sem flokkarnir berjast fyrir.
Ég fann fyrir bæði styrknum og frelsinu
sem fylgir því að hafa eitthvað um
framtíðina að segja.
Í sveitarstjórnarkosningum lifna
bæjar- og sveitarfélögin við í öllum
regnbogans litum og bæði það sem virk-
ar vel og það sem má fara betur kemst
í almenna umræðu. Það er hart tekist
á um það sem varðar bæinn og íbúana,
allt frá umhverfismálum og samgöngum
yfir í leikskólamál og þjónustu.
Hugmyndirnar virðast oft svo stórar
og langt fram í tímann að það er varla
hægt að ná utan um það en þá er
mikilvægt að kynslóðirnar sem munu
uppskera að lokum því sem er sáð í dag
taki þátt í að móta þær og velja fólkið
sem tekur ákvarðanirnar.
Það sem unga fólkið virðist oft gleyma
er að það erum við sem munum taka við
keflinu af þeim sem byggja bæinn upp
núna. Það skiptir þess vegna miklu máli
að við kynnum okkur mismunandi hlið-
ar á málunum, vegum og metum ólíkar
nálganir og leggjum okkar af mörkum
við að móta okkar eigin framtíð og
þeirra sem koma á eftir okkur.
Lýðræði og rétturinn til þess að kjósa
er eitthvað sem er auðvelt en má ekki
taka sem sjálfsögðu vegna þess að
þannig fá sem flestar raddir að heyrast,
hversu ólíkar sem þær eru. Ég hvet öll til
þess að nýta sér atkvæðisréttinn sinn og
þá sérstaklega unga fólkið.
Ástrós Hind
- Heyrst hefur...52
Tvíburarnir Alex Orri
Antonsson og Ernir Elí
Antonsson fæddust 1. mars
2022 á Landspítalanum
eftir 37 vikna meðgöngu.
Þeir voru 13 og 14 merkur
og 50 cm. Foreldrar þeirra
eru Anton Ari og Andrea
Ósk og eiga þau fyrir
Elmar Darra (4 ára).
Heyrst Hefur...
...að allavega þrír stjórnmálaflokkar
hafi látið gera skoðanakönnun fyrir
sig um fylgi fyrir kosningarnar en
enginn gefið upp niðurstöðurnar.
...að Mosfellingurinn Ólafur Ragnar
Grímsson, fyrrum forseti, eigi afmæli
á laugardaginn, á kjördag.
...að ísbúð Huppu ætli að opna í
horninu við Krónuna í sumar.
...að snyrtistofan Nærvera sé að fara
færa sig um nokkra metra í sumar,
yfir í rýmið þar sem Pósthúsið var
til húsa í Háholtinu.
...að það verði allsherjar Kosninga-
Kviss á Barion í kvöld kl. 21 á milli
allra framboða til bæjarstjórnar-
kosninganna.
...að Pizzan sé að stefna að því að opna
í Krónuhúsinu í júní.
...að Jógvan og Friðrik verði með
Sveitalífs-tónleika á Barion föstu-
dagskvöldið 27. maí.
...að Lína á fasteignasölunni sé að
hætta eftir mörg góð ár.
...að Kaffihúsið Gloría sé að leita sér
að meðeiganda til að opna kaffihús í
miðbæ Mosfellsbæjar.
...að Hilmar Stef formaður Fálkanna
sé orðinn nýr formaður Karlakórs
Kjalnesinga.
...að Kaffi Kjós sé búið að opna aftur
og standa Hemmi og Birna vaktina
en staðurinn er þó til leigu eða sölu.
...Mosfellingur sé búinn að taka alla
forystumenn flokkana í oddvita-
viðtal á Instagram.
...að Sigrún Más sé að verða fimmtug.
...að Álafosskórinn hafi fagnað
40 ára afmæli kórsins á dögunum
með glæsilegum tónleikum.
...að þungarokkshljómsveitin Dimma
verði með tónleika í Hlégarði
föstudaginn 27. maí.
...að tónleikaröð Mosverja hefjist í
Álafosskvos í kvöld með jazztónleik-
um kl. 20, Vorkvöld í Álafosskvos.
...að Lengjudeildin verði aðgengileg á
Hringbraut í sumar og verður leikur
Aftureldingar og Selfoss sýndur í
beinni 20. maí.
...að 1997 árgangurinn hafi unnið
Árgangamótið Aftureldingar í
knattspyrnu.
...að KB þrautin fari fram laugardaginn
21. maí en hún er á vegum
Kettlebells Iceland.
...að Mosfellingurinn Alexandra Eir og
Ingó Veðurguð eigi von á sínu fyrsta
barni í haust.
...að Hilmar Mosfellingur sé að verða
fertugur um næstu helgi.
...að opið verði á kjörstað í Lágafells-
skóla kl. 09-22 á laugardaginn.
...að áritaður gítar frá KALEO hafi selst
á vel yfir tvær milljónir á herrakvöldi
Aftureldingar á dögunum.
...að Mosfellingurinn og Eurovision-
farinn Helga Möller eigi afmæli í dag.
mosfellingur@mosfellingur.is
Stelpurnar á myndinni, þær
Aryanna Nevaeh Brynjars-
dóttir og Stella Dís Jóhannes-
dóttir standa fyrir söfnun
fyrir Úkraínu.
Þær eru 7 ára og hafa síðustu
daga safnað saman alls konar
dóti og selt á tombólu til
styrktar Úkraínu.
hlutavelta
Reynsla af þjónustu, verslunar- eða sölustörfum er ágætur kostur og
enn betra ef viðkomandi hefur brennandi áhuga á skógrækt, útivist og
fallegum útivistarfatnaði. Við leitum að þroskuðum starfsmanni í fullt starf
sem getur unnið sjálfstætt, er samviskusamur og hefur ríka þjónustulund.
Almenn tölvuþekking er nauðsynleg.
Tekið er við umsóknum í
tölvupósti á vorverk@vorverk.is
Umsóknarfrestur til 20. maí
auglýsir framtíðarstarf í nýrri verslun
í Kjarna, Þverholti 2 Mosfellsbæ