Mosfellingur - 12.05.2022, Blaðsíða 10
Jónas Sigurðsson formaður
s. 666 1040 jonass@islandia.is
Jóhanna B. Magnúsdóttir varaformaður
s. 899 0378 hanna@smart.is
Margrét Ólafsdóttir gjaldkeri
s. 863 3359 margretjako@gmail.com
Kristbjörg Steingrímsdóttir ritari
s. 898 3947 krist2910@gmail.com
Þorsteinn Birgisson meðstjórnandi
s. 898 8578 thorsteinn.birgis@gmail.com
Guðrún K. Hafsteinsdóttir 1. varamaður
s. 892 9112 gunnasjana@simnet.is
Áshildur Þorsteinsdóttir 2. varamaður
s. 896 7518 asath52@gmail.com
StJÓrn FaMoS
Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin eirhömrum • fram undan í starfinu
Skrifstofa félagsstarfsins er opin
alla virka daga kl. 13–16. Sími félags-
starfsins er 586-8014. Forstöðumaður
félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ
er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda-
og félagsmálafræðingur, s: 698-0090.
Skrifstofa FaMos á Eirhömrum
er opin alla fimmtudaga frá kl. 15–16.
FélaG aldraðra
í Mosfellsbæ og nágrenni
famos@famos.is
www.famos.is
- Fréttir úr bæjarlífinu10
Söngskemmtun
Fyrrum nemendur skólakórs
Varmárskóla ætla að koma
og syngja nokkur lög
fyrir okkur undir stjórn
Guðmundar Ómars
Óskarson. 18. maí
klukkan 19:30 í borðsal
Eirhamra. Hlökkum til
að sjá ykkur. Allir velkomnir.
Félagsvist
Félagsvist verður alla vega út maí,
allir velkomnir. Á föstudögum í
borðsal Eirhamra kl. 13:00.
BInGÓ
Fimmtudag-
inn 19. maí
kl. 13:30.
Bingónefnd
FaMos ætlar
að halda
bingó í borðsal Eirhamra. 1 spjald,
kaffi og meðlæti kostar 1.000 kr. og
aukaspjald 300 kr. Góðir vinningar í
boði. Hlökkum til að sjá þig.
VorFErð FaMos
Fyrirhuguð er vorferð með FaMos
sunnudaginn 12. júní um Borgar-
fjörðinn. Nánari upplýsingar um verð
og ferðatilhögun verða sendar í pósti
til félagsmanna og auglýstar á síðu
félagsstarfsins á næstu dögum.
Takið daginn frá fyrir skemmtilega
vorferð.
Iðjuþjálfun hér á Reykjalundi datt heldur
betur í lukkupottinn nýlega en deildinni
hafa verið færðar að gjöf átta fartölvur
ásamt tilheyrandi búnaði.
Það er Samband stjórnunarfélaga, í sam-
vinnu við Hollvinasamtök Reykjalundar,
sem færði Reykjalundi þessar höfðinglegu
gjafir og var meðfylgjandi mynd tekin við
formlega afhendingarathöfn.
Tölvurnar og búnaðurinn eru nú komin
í notkun að öllu leyti og eru mikil lyftistöng
fyrir hina mikilvægu starfsemi iðjuþjálfunar
á Reykjalundi.
Starfsfólk Reykjalundar sendir miklar
þakklætiskveðjur til Sambands stjórnunarfé-
laga og Hollvinasamtaka Reykjalundar fyrir
gjafirnar og hlýhug í garð Reykjalundar.
Eftir tveggja ára bið gat Álafosskórinn
loksins haldið 40 ára afmælistónleika sína.
Tónleikarnir fóru fram í Guðríðarkirkju
laugardaginn 7. maí.
Dagskrá tónleikanna var val af lögum
sem kórinn hefur sungið á þeim rúmum 40
árum sem hann hefur starfað. Það var því
úr hundruðum laga að velja en dagskráin
var þverskurður af þeim.
Kórinn fékk með sér góða gesti. Helgi R.
Einarsson, fyrrverandi stjórnandi kórsins,
tók lagið með og spilað á gítar. Hans Þór
Jensson spilaði á saxafón og Guðbjörg
Leifsdóttir spilaði á píanóið undir ein-
söng Óskars Sigurðsson í Ave Maria sálmi
Kaldalóns. Ásthildur Jónsdóttir söng einnig
einsöng í laginu Umvafin englum. Óskar og
Ásthildur eru meðlimir í Álafosskórnum.
Stjórnandi Álafosskórsins í dag er Ást-
valdur Traustason.
VEglEg fartölVugjöf í iðjuþjálfun rEykjalundar
tekið við höfðinglegri gjöf
Lífið er indælt ævintýr • Sungu lög frá 40 ára ferli kórsins • Afmælistónleikar eftir tveggja ára bið
álafosskórinn fagnaði 40 ára afmæli
helgi r. einarsson tekur lagið
með kórnum í guðríðarkirkju