Mosfellingur - 12.05.2022, Blaðsíða 12
- Fréttir úr bæjarlífinu12
Mosfellsbær og Blikastaðaland ehf. hafa
undirritað samstarfssamning um uppbygg-
ingu sjálfbærrar og mannvænnar byggðar í
landi Blikastaða.
Hverfið verður hannað frá grunni sem
fjölbreytt og blönduð byggð þar sem fólk
getur sinnt helstu erindum fótgangandi eða
með almenningssamgöngum þar sem Borg-
arlínan verður í burðarhlutverki. Með því er
stuðlað að betri nýtingu náttúrugæða, orku
og innviða sem sýnir ábyrgð í umhverfismál-
um og tryggir lífsgæði komandi kynslóða.
Samráð við íbúa vegna vinnu við skipulag
svæðisins er tryggt að lögum en samning-
urinn rammar inn þátttöku landeigandans
í fjárfestingu í innviðum hverfisins.
Byggð á Blikastöðum lengi legið fyrir
„Það hefur lengi legið fyrir að það mun
rísa byggð í landi Blikastaða,“ segir Harald-
ur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
„Gildandi stefnumörkun um þéttleika á
Blikastaðalandi má rekja til svæðisskipu-
lags höfuðborgarsvæðisins og breytinga
á því skipulagi sem auglýst var á síðasta
kjörtímabili og tók gildi á þessu kjörtíma-
bili. Þar er um að ræða breytingu sem bar
heitið „Samgöngu- og þróunarásar fyrir
hágæðakerfi almenningssamgangna á
höfuðborgarsvæðinu – Borgarlína.“
Þar er kveðið á um þann þéttleika
byggðar sem þarf að vera til að bera slíkt
samgöngukerfi og það er ein af stoðunum
þremur í samgöngusáttmála sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu og ríkisins sem und-
irritaður var 2019.
Á árinu 2020 kynntu eigendur Blikastaða-
lands bæjarstjórn Mosfellsbæjar drög að
forsögn fyrir rammaskipulag og þróunar-
áætlun. Bæjarráð ákvað að skipa rýnihópa
til að rýna framlögð gögn. Að þeirri vinnu
lokinni héldu áfram kynningar og vinna
rammaskipulags með skipulagsnefnd frá
því síðasta haust. Framgangur málsins
hefur birst meðal annars á vef bæjarins í
fundargerðum skipulagsnefndar.“
Aðkoma íbúa að mótun skipulagsins
„Í forsögn að rammaskipulagi Blikastaða-
lands er gert ráð fyrir að uppbygging og
skipulag geti verið unnið í þremur til fimm
áföngum. Þannig muni landeigendur vinna
áfram náið með starfsfólki og kjörnum full-
trúum Mosfellsbæjar að frekari útfærslum.
Í skipulagsferli hafa íbúar jafnframt tæki-
færi til að koma sínum sjónarmiðum að.
Við rýni svæðisins og undirbúning er leitast
við að halda í helstu sérstöðu Mosfellsbæj-
ar innan höfuðborgarinnar, þar sem græn
byggð og lágreist yfirbragð einkennir bæ-
inn. Í tillögum hefur verið gengið út frá því
að sett verði viðmið um að svæðisnýting á
þróunarás Borgarlínu verði um 0,4. Frekari
útfærslur um ásýnd, gerð og gæði byggðar
munu eiga sér stað við gerð deiliskipulags
og fara í viðeigandi samráðsferli.“
Bær, þorp, sveit og Borgarlína
Í framsetningu hugmynda er lögð áhersla
á þrenns konar þéttleika og karakter byggð-
arinnar undir yfirskriftunum bær, þorp og
sveit. Bærinn verður byggð fjölbreyttra bú-
setukosta í fjölbýli næst fyrirhugaðri þjón-
ustu og legu Borgarlínu. Þorpið lýsir sér sem
smærri fjölbýliskostur í bland við sérbýli í
par- og raðhúsum á völdum reitum. Sveitin
er svo sá hluti hverfisins sem gengið er út frá
að verði vestast á svæðinu og ætlaður sérbýli
af fjölbreyttri stærð og gerð.“
Þá telur Haraldur mikilvægt að fram
komi að: „Í þeim viðræðum sem hófust síð-
ustu áramót um gerð uppbyggingarsamn-
ings um Blikastaðalandið var því ekki verið
að semja um þéttleika eða fjölda íbúða því
þær forsendur lágu fyrir eftir umfjöllun í
bæjarráði, bæjarstjórn og skipulagsnefnd.
Það er skýrt tekið fram í samningnum og
allir fyrirvarar gerðir um að þessa skipu-
lagsvinnu á eftir að vinna með aðkomu
íbúa með lögbundnu samráði. Samráðið er
líka lykilþáttur í að skapa vandað, umhverf-
isvænt og mannvænt bæjarumhverfi.
Samningurinn tryggir hins vegar þá fjár-
muni sem landeigandi skuldbindur sig til
að láta af hendi til að standa undir þeim
innviðum sem byggja þarf í hverfinu. Þar er
um að ræða tvo grunnskóla, fjóra leikskóla
og íþróttaaðstöðu.
Þetta var flókin samningagerð enda mikl-
ir hagsmunir undir en ég veit að út úr öllu
þessu starfi kom mjög góður samningur
fyrir Mosfellsbæ.“
Uppbyggingarsamningur án hliðstæðu
„Þetta er uppbyggingarsamningur án
hliðstæðu í öllu tilliti. Verðmæti samn-
ingsins fyrir Mosfellsbæ er um 10 milljarðar
króna sem skiptist annars vegar í 7 milljarða
sem greiddir eru með peningum í tengslum
við framvindu útgáfu byggingarleyfa og svo
byggingu íþróttamannvirkja og hins vegar
lóðaréttindi sem metin eru á 3 milljarða.
Þetta eru upphæðir sem ekki hafa áður sést
í samningum sem þessum.
Samningurinn tryggir farsæla uppbygg-
ingu hér í Mosfellsbæ, uppbyggingu sem
er til þess fallin að efla þjónustu og lífs-
gæði Mosfellinga og efla samfélag okkar á
alla lund. Þá verður ekki framhjá því litið
að uppbygging í landi Blikastaða verður
lykilþáttur í að tryggja gott lóðaframboð
á höfuðborgarsvæðinu sem mætir þeirri
eftirspurn eftir húsnæði sem við höfum
fundið svo vel,“ segir Haraldur.
Uppbyggingarsamningur án hliðstæðu • 10 milljarðar til bæjarins • Lykilþáttur í lóðaframboði á höfuðborgarsvæðinu
Blikastaðalandið verði vistvæn og
fjölbreytt byggð milli fella og fjöru
Lágafellssókn
Aðalsafnaðarfundur Lágafellsssóknar
verður haldinn þriðjudaginn 24. maí
kl. 20:00 í safnaðarheimili Lágafells-
sóknar Þverholti 3, Mosfellsbæ.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Sóknarnefnd
AðALsAfnAðArfUndUr
Þorgerður Arna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri
Blikastaðalands ehf. og Haraldur Sverrisson
bæjarstjóri Mosfellsbæjar undirrita samninginn.
við blikastaðabæinn má búast við
þjónustu, verslun og afþreyingu
þrenns konar þéttleiki verður
á svæðinu, bær, þorp og sveit
Blikastaðaland er stærsta óbyggða
landsvæði höfuðborgarsvæðisins.
Aðkoma íbúa að skipulagsvinnu
er tryggð að lögum.
Svæðið er um
87 hektarar að stærð.
Gert er ráð fyrir að fjöldi íbúða verði
3.500 til 3.700 talsins.
Um verður að ræða blöndu
fjölbýlis og sérbýlis.
Þá verða um 150 íbúðir fyrir
55 ára og eldri.
Reistir verða tveir grunnskólar og
fjórir leikskólar auk íþróttaaðstöðu.
Verðmæti samningsins fyrir
Mosfellsbæ er 10 milljarðar króna.
helstu staðreyndir
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Öll laus störf hjá Mosfellsbæ og stofnunum
má sjá og sækja um á ráðningarvef bæjarins:
www.mos.is/storf
Laus störf í Mosfellsbæ