Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1943, Blaðsíða 101
99
í mjólkurfræði Sigurðar H. Péturssonar er að finna
mjög góða fræðslu um allt, sem viðkemur mjólk og mjölk-
urmeðferð.
SAUÐFJ ÁRRÆKT.
Eftir Halldór Pálsson.
Sauðfjárræktin hefir frá, alda öðli verið undirstaða at-
vinnulífsins hér á landi, og nú, þrátt fyrir stórfelldar
breytingar á atvinnuháttum þjóðarinnar, byggist fjár-
hagsleg afkoma og framtíðarmöguleikar mikils meiri hluta
þess fólks, sem lifir í sveitum landsins, eða allt að helm-
lngs landsmanna, á þessari atvinnugrein.
Það virðist því sjálfsagt, að allir sem sauðfjárrækt
stunda, gerðu það að metnaðarmáli sínu, að leggja sig
fram við sauðfjárrælctina og reyna með öllu móti að fá
sem mestan arð af þessari atvinnugrein, með því að rækta
og kynbæta sauðféð, fóðra það vel og sýna því nákvæmni
i hirðingu og allri meðferð. En því fer fjarri, að þetta sé
nógu almennt gert. Allt of margir bændur vanfóðra féð
oftsinnis, trassa alla kynbótastarfsemi, og sýna þvi hvergi
nærri næga nákvæmni í hirðingu.
Frumskilyrðin fyrir því að fá góðan arð af fénu, er að
fóðra það vel og vanda hirðingu þess. Fé, sem er ætið
vanfóðrað og illa hirt, er árangurslaust að kynbæta með
tilliti tii þess að auka eða bæta afurðir þess.
DAGBÓK PJÁRMANNSINS.
SEPTEMBER. Göngur. Um miðjan september byrja
göngur. Farið gætilega með féð í göngunum. Rekið féð
hægt og hundbeitið það ekki og hafið stut’tar dagleiðir,
þvi að haustlömbin eru viðkvæm.
Réttir. Réttið ekki mjög margt fé á sama stað, það or-
sakar að óþörfu illa meðferð á fé. Byrjið sundurdrátt
snemma að morgni, gangið ötullega að drætti og rekið
féð á haga eins fljótt og auðið er. Takið aldrei í ullina á
fénu við sundurdrátt, það meiðir kindina og skemmir
bæði kjötið og skinnið. Reynið eftir megni að forðast að
lömbin villist frá mæðrunum við réttaragið.
Sláturtíðin. Þar sem bráðapestin gerir fljótt vart við sig
að haustinu, á að bólusetja lífsféð strax eftir fyrstu réttir.
Lömbunum þarf að slátra eins snemma og við verður