Fréttablaðið - 28.09.2022, Side 20
Icepharma vinnur nú með
teymum heimahjúkrunar á
Íslandi að spennandi nýjung.
Fyrirtækið býður upp á sjálf-
virka lyfjaskammtara fyrir
einstaklinga sem búa heima
og nýta sér slíka þjónustu.
Lyfjaskammtarar eru byltingar-
kennd velferðartækni sem nýtist
einkar vel í fjarheilbrigðisþjónustu
að sögn Stefaníu Fanneyjar Björg-
vinsdóttur, viðskiptastjóra á heil-
brigðissviði Icepharma.
„Tilkoma þeirra hér á landi
styður enn frekar við sjálfstæða og
lengri búsetu fólks í heimahúsum,
bætir gæði þjónustunnar, eykur
skilvirkni og tryggir einstakl-
ingum örugga og rétta lyfjagjöf á
tilsettum tíma,“ segir hún.
Rétt lyf á réttum tíma
Evondos sjálfvirki lyfjaskammtar-
inn hefur nú þegar byrjað að
þjóna íbúum sem nýta sér heima-
þjónustu Reykjavíkurborgar og
víða utan höfuðborgarsvæðisins.
Þeir sem hafa nýtt sér Evondos
lyfjaskammtarann búa heima en
þurfa daglega eða oftar aðstoð og
eftirfylgni við lyfjainntöku.
„Í lyfjaskammtarann eru settar
hefðbundnar lyfjarúllur og les
tækið þær upplýsingar sem fram
koma á hverjum lyfjapoka og
skammtar rétt lyf á réttum tíma.
Lyfjaskammtarinn er með bæði
texta- og raddleiðbeiningum á
íslensku, sem styður enn betur við
meðferðarheldni,“ segir Stefanía.
„Lyfjaskammtarar hafa verið
til prófunar hjá Reykjavík síðan í
nóvember 2021, þar sem notendur
heimaþjónustunnar hafa fengið
lyfjaskammtara til þess að aðstoða
þá við lyfjagjöf á heimili sínu.
Stór partur af þeirri þjónustu sem
heimaþjónustan í Reykjavík veitir
er aðstoð við lyfjagjöf. Með lyfja-
skammtaranum fá skjólstæðingar
lyfin sín á réttum tíma í réttum
skammti án beinnar aðkomu
starfsmanns, en starfsmenn
fylgjast með í gegnum miðlægt
kerfi og fá tilkynningar ef lyf eru
ekki tekin og geta þá brugðist við,“
segir Kristín Sigurðardóttir, verk-
efnisstjóri í Velferðartæknismiðju
Reykjavíkurborgar.
„Lyfjaskammtarar hafa reynst
vel í heimaþjónustu Reykjavíkur-
borgar, starfsfólk hefur öðlast
meiri tíma til að sinna öðrum
þjónustuþáttum og notendur eru
almennt ánægðir með tæknina
og upplifa öryggi við það að hafa
hann á heimilinu.“
Getur spurt um líðan
Stefanía segir að hægt sé að senda
persónuleg skilaboð inn í lyfja-
skammtarann, til dæmis til að
minna viðkomandi á að hann
þurfi að drekka vatn með lyfjum,
mæta til sjúkraþjálfara á ákveðn-
um tímum og/eða að viðkomandi
eigi von á heimavitjun.
„Einnig er hægt að spyrja um
líðan sem einstaklingurinn svarar
síðan í gegnum lyfjaskammtarann.
Ef einstaklingur gleymir að taka
lyfin innan ákveðins tímaramma
koma skilaboð eða viðvaranir í
miðlægt kerfi svo heimaþjónustan
getur brugðist strax við. Þetta
eftirlit veitir einstaklingum mikið
öryggi, til dæmis þeim sem búa
einir eða í mikilli fjarlægð frá
aðstandendum,“ segir hún.
Lyfjaskammtarinn er frá finnska
fyrirtækinu Evondos og þjón-
ustar það í dag um 200 heilbrigðis-
umdæmi á Norðurlöndunum.
„Evondos er frumkvöðull og
leiðandi á þessu sviði og sam-
kvæmt The Financial Times er það
eitt af þeim fyrirtækjum sem vaxa
hvað hraðast í Evrópu. Evondos
er með fjarvöktun á öllum sínum
lyfjaskömmturum allan sólar-
hringinn, allan ársins hring og
jafnframt sér Icepharma um
þjónustu og viðhald hér á landi,“
segir Stefanía.
Nýsköpun í velferðartækni
Mikil nýsköpun á sér stað í vel-
ferðartækni og lausnum sem
stuðla að því að fólk getur búið
Sjálfvirkur lyfjaskammtari í heimahús á Íslandi
Stefanía Fanney
Björgvinsdóttir,
Sturla Geir
Pálsson og Elfa
Hannesdóttir,
starfsfólk Ice
pharma, með
Evondos lyfja
skammtarann.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
lengur heima hjá sér í öryggi og
með þjónustu sem er því mikilvæg,
að sögn Stefaníu.
„Sjálfvirki lyfjaskammtarinn er
gott dæmi um slíka lausn og fram
undan er hröð þróun í notkun
velferðartækni við hönnun íbúða
fyrir þá sem þurfa á þjónustu að
halda.“ n
Nánari upplýsingar má nálgast hjá
Icepharma í síma 5408000 eða
hjá stefaniaf@icepharma.is
REPOSE LÉTTIR UNDIR MEÐ ÞÉR
Byltingarkennd vara fyrir einstaklinga sem eru komnir
með þrýstingssár eða eiga á hættu á að fá slík sár.
Frekari upplýsingar um vörurnar má finna á vorutorg.icepharma.is
4 kynningarblað 28. september 2022 MIÐVIKUDAGUREFRI ÁRIN