Fréttablaðið - 28.09.2022, Blaðsíða 30
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Útför okkar ástkæra
Péturs Stefánssonar
skipstjóra,
fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
30. september klukkan 13.00.
Þórunn Halla Guðmundsdóttir
Sigurveig Víðisdóttir Jóhann Jónsson
Sigríður Rósa Víðisdóttir Gunnar S. Olsen
Anna Aldís Víðisdóttir Ívar Sigurgíslason
Ósk Víðisdóttir
og fjölskyldur
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, afi, langafi og bróðir,
Ragnar Arnalds
rithöfundur og fyrrverandi ráðherra,
lést í faðmi fjölskyldunnar
á heimili sínu, Kópavogstúni 12,
þann 15. september. Útför hans fer fram frá
Dómkirkjunni föstudaginn 30. september kl. 16.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Ljósið.
Hallveig Thorlacius
Guðrún Arnalds Logi Vígþórsson
Helga Arnalds Elías Halldór Bjarnason
Sara, Úlfur, Ragnar Hrafn, Hallveig,
Kolbeinn og óskírð Eldjárn
Elín Laxdal
Sigurður, Andrés og Ólafur Arnalds
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Jón Hjörtur Gunnlaugsson
bifvélavirki og verslunarstjóri,
lést föstudaginn 23. september á
Landspítalanum Fossvogi. Útför fer
fram í Langholtskirkju 3. október kl. 13.
Bryndís Gunnarsdóttir
Gunnlaugur Jónsson Aðalheiður Ævarsdóttir
Hjördís Sigrún Jónsdóttir Emil Borg
Katla, Bryndís, Saga Guðrún, Arnar Borg og Ísak Borg
Elsku hjartans maðurinn minn,
pabbi okkar, tengdapabbi og afi,
Jóhannes B. Helgason
Lundi 3, Kópavogi,
áður Hamri, Þverárhlíð,
lést á Landspítalanum, Hringbraut,
þann 25. september.
Anna J. Hallgrímsdóttir
Hrefna Björk, Harpa Dís og Anna Sara
Hallgrímur, Ásdís Elva, Ísabella Ýrr og Kormákur Logi
Líney, Hafþór og Anna Karólína
Ástkær unnusti minn,
sonur, bróðir og vinur,
Ólafur Jón Ólafsson
lést 15. september.
Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni,
fimmtudaginn 29. september klukkan 13.
Gyða Björg Þórsdóttir
Ólína Sigþóra Björnsdóttir
Elín, Jakob, Ólöf Kristín, Björn Sigþór,
Ómar Ari og Justin Leifur
Elsku pabbi okkar,
tengdapabbi, afi og langafi,
Hörður Lárusson
Efstasundi 63,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
þann 20. september. Útförin fer fram
frá Digraneskirkju föstudaginn
30. september kl. 10.
Útförinni verður streymt á skjaskot.is/hordurlarusson
Unnur Harðardóttir Jón H. Eiríksson
Lárus Þ. Harðarson Tina Harðarson
Tryggvi Harðarson Elín Harpa Jónsdóttir
Anna Guðrún Harðardóttir Hallgrímur Guðmundsson
Hafdís Harðardóttir Jóhann Jónsson
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Marsibil Jónsdóttir
Bella
lést á líknardeildinni í Kópavogi
20. september. Útförin fer fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Ferdinand Þórir Ferdinandsson
Jón Friðrik Ferdinandsson Halisa Mekonen
Magnea Guðný Ferdinandsdóttir
Róbert Örvar Ferdinandsson Guðrún F. Þórðardóttir
Ingibjörg Kr. Ferdinandsdóttir Gauti Laxdal
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hallgerður Pétursdóttir
Boðaþingi 24, Kópavogi,
varð bráðkvödd laugardaginn
24. september. Útför auglýst síðar.
Sigrún Jónsdóttir Gunnar Hólm Ragnarsson
Jón Gauti Jónsson Sigrún Magnúsdóttir
Sólveig Ásta Gautadóttir Vignir Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri
Jón Ingvar Jónsson
leiðsögumaður,
Laugarnesvegi 114, Reykjavík,
lést í Hamborg 26. ágúst sl.
Útför hans fer fram í Fossvogskirkju
þriðjudaginn 4. október kl. 13.00.
Streymt verður frá athöfninni á vef:
https://youtu.be/zHYFkP3F7vY
Brigitte M. Jónsson
Jón Stefán Jónsson Eva Sólan
Bríet Helga og Yrsa Röfn
Elsku eiginmaður minn,
pabbi okkar og tengdapabbi,
Guðmundur Ásmundsson
lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili
sínu í Basking Ridge, New Jersey,
sunnudaginn 11. september.
Útför hans fer fram frá Vídalínskirkju
mánudaginn 3. október kl. 15.
Helga Guðlaugsdóttir
Hildur Guðmundsdóttir Bjarki Þór Friðleifsson
Ásgrímur Guðmundsson
og aðrir aðstandendur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigríður Th. Erlendsdóttir
sagnfræðingur,
sem lést laugardaginn 17. september,
verður jarðsungin fimmtudaginn
29. september frá Fríkirkjunni
í Reykjavík. Útförin hefst kl. 15.00.
Ragnhildur Hjaltadóttir
Kristján Hjaltason Rannveig Einarsdóttir
Erlendur Hjaltason Aðalheiður Valgeirsdóttir
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir Guðmundur Magnússon
og fjölskyldur
Sögu Farsóttahússins í Þingholts-
stræti eru gerð skil í nýútgefinni
bók á vegum Sögufélagsins.
arnartomas@frettabladid.is
Sögufélag gaf nýlega út bókina Farsótt
– Hundrað ár í Þingholtsstræti 25, eftir
Kristínu Svövu Tómasdóttur. Líkt og
heiti bókarinnar gefur til kynna er þar
rakin rík saga Farsóttahússins sem sinnt
hefur ýmsum hlutverkum í gegnum
tíðina.
„Ég var að skrifa ritgerð í sagnfræði-
námi fyrir mörgum árum þegar ég las
fyrst um þetta hús og sögu þess,“ segir
Kristín Svava. „Mér fannst hún mjög
áhugaverð og var búin að vera með hana
bak við eyrað í þó nokkurn tíma.“
Þegar Kristínu vantaði síðan verkefni
fyrir fáeinum árum sótti hún um styrk
til að skrifa um húsið.
„Ég gerði það kannski í pínu flippi, en
svo fékk ég styrkinn og þá varð ég bara
að gjöra svo vel og skrifa bókina!“
Það sem vakti áhuga Kristínar við
sögu hússins var hve fjölbreytt og
dramatísk hún er.
„Það er ýmislegt í sögu Reykjavíkur
sem mér fannst spennandi sem er hluti
af sögu hússins,“ útskýrir hún.
Farsóttahúsið var upphaflega byggt
sem fyrsta sjúkrahús Reykvíkinga árið
1884 þar sem fór einnig fram lækna- og
ljósmóðurkennsla, þar á meðal kennsla
í krufningum. Á tuttugustu öldinni varð
húsið að svo farsóttarspítala. Húsið
varð síðar gert að geðsjúkrahúsi áður
en það varð að gistiskýli fyrir heimilis-
lausa. Kristín Svava tekur fyrir fyrstu
öld í sögu hússins, allt að árinu 1984, í
bókinni.
Það mætti halda að nýyfirstaðinn
heimsfaraldur hefði mögulega verið
Fjölbreytt saga Farsóttar
Kristín segir
nýyfirstað-
inn heims-
faraldur ekki
kveikjuna að
bókinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
kveikjan að bókinni en Kristín Svava
segir að svo sé ekki.
„Ég byrjaði að skrifa bókina áður
en Covid kom en faraldurinn varpaði
auðvitað öðruvísi ljósi á söguna sem ég
var að vinna með,“ segir hún og hlær.
„Þetta tímabil er ekkert rosalega langt
frá okkur í sögunni – farsóttarspítalinn
var þarna frá 1920 og fram til miðrar
tuttugustu aldar – en þetta var allt
annar veruleiki þar sem alls konar sjúk-
dómar sem búið er að útrýma á Íslandi í
dag voru sínálægir, til dæmis taugaveiki
og barnaveiki.“
Meðal þess sem vakti áhuga Krist-
ínar Svövu á farsóttasögunni var upp-
lifun barna, en margir þessara sjúk-
dóma voru ekki síst barnasjúkdómar.
„Þarna voru litlir krakkar sem
þurfti að senda í einangrun og maður
sér augljóslega hvað hugmyndir hafa
verið öðruvísi um það sem hægt var að
leggja á börn,“ segir hún. „Þarna voru
nokkurra ára gamlir krakkar sendir í
einangrun fjarri fjölskyldum sínum,
þau voru kannski fimm til sex ára og
sáu mömmu sína bara í gegnum glugg-
ann svo vikum skipti. Mæðurnar stóðu
úti í Þingholtsstrætinu og veifuðu upp í
gluggana til barnanna á sjúkrahúsinu.“
Krufningar, drepsóttir og geðlækn-
ingar áttu svo eftir að setja svip sinn á
ímynd hússins og upp spruttu ýmsar
missannar sögur um það sem átti sér
þar stað.
„Þetta er frekar tilkomumikið viður-
nefni á húsi, Farsótt,“ segir Kristín
Svava. „Draugasögurnar sem gengu um
það tengdust ekki síst gamla líkhúsinu
sem stóð þar beint fyrir aftan. Það var
rifið um miðjan níunda áratuginn en
maður getur enn þá séð gömlu gólfflís-
arnar úr krufningarstofunni í líkhús-
inu fyrir aftan húsið í dag.“ n
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 28. september 2022 MIÐVIKUDAGUR