Fréttablaðið - 28.09.2022, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 28.09.2022, Blaðsíða 4
Ökumaður átti að greiða 124 krónur fyrir að leggja örstutt í bíla- kjallara og 1.800 króna þjónustugjald að auki. Maður hefði haldið að umræddur ráðherra hefði lært sitthvað af fyrri ráðningarmálum. Helga Vala Helgadóttir, al­ þingismaður Af hverju getur hún þá ekki dregið skipanina til baka? Er það vegna þess að það kosti ríkið bætur, dómsmál, póli tískan álitshnekki fyrir Lilju eða afsögn? Sigurjón B. Haf­ steinsson, pró­ fessor í safna­ fræði við HÍ FRÉTTAVAKTIN KL. 18.30 Fréttaumfjöllun fyrir alla. í opinni dagskrá á virkum dögum á Hringbraut og frettabladid.is Upptaka sýnir að menn­ ingarmálaráðherra segist miður sín og biður safnafólk að gefa Hörpu Þórsdóttur, nýráðnum þjóðminjaverði, grið. Safnafólk sakar Lilju um gaslýsingu og vill að skipan Hörpu verði dregin til baka. bth@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Fréttablaðið hefur undir höndum hljóðupptöku af lokaorðum Lilju Alfreðsdóttur menningarmálaráðherra á Safna­ þinginu fyrir austan, þar sem hún baðst velvirðingar á skipan í stöðu þjóðminjavarðar í ljósi viðbragða. Þar biður hún safnafólk að gefa Hörpu Þórsdóttur, sem skipuð var í stöðuna, grið og segist ein bera ábyrgðina á að staðan hafi ekki verið auglýst. „Ég átta mig alveg á vonbrigð­ unum og ef ég hefði áttað mig á að þetta væri í raun og veru staðan þá hefði ég gert annað. Ég bara – það er ekkert mál fyrir mig að segja það hér hátt og skýrt. En við verðum að vinna með þetta. Ég ber ábyrgð á þessu … þarna kannski vanmat ég það að það væri þörf á að auglýsa starfið,“ segir Lilja einnig. „… ef ég hefði áttað mig betur á því þá hefði ég bara gert það – það hefði ekki verið neitt mál – ég harma það að við séum komin í þessa stöðu og það er ekki ykkur að kenna … Ég er bara miður mín yfir þessu.“ Haf þór Heide, aðstoðarmaður Lilju, sagði í svari við ósk Frétta­ blaðsins um viðtal við ráðherra í gær að ranglega hefði verið haft eftir Lilju í forsíðufrétt blaðsins í gær. Á fundinum hefði ráðherra sagst hafa vanmetið hvað það væri mikil þörf á að auglýsa starfið. Hún hefði harm­ að þá stöðu sem upp væri komin. Skilningur viðstaddra á þinginu sem Fréttablaðið hefur rætt við Safnafólk vill skipan dregna til baka bth@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA „Þarna finnst mér ráð­ herra vera að stilla því þannig upp að viðbrögðin hafi eitthvað með persónuna að gera sem var skipuð,“ segir Helga Vala Helgadóttir, þing­ maður Samfylkingarinnar, innt viðbragða við því að Lilja Alfreðs­ dóttir menningarmálaráðherra sagði á Safnaþingi að hún hefði ekki skipað Hörpu Þórsdóttur í embætti þjóðminjavarðar án auglýsingar ef hún hefði séð viðbrögð samfélags­ ins fyrir. Helga Vala segir að ráðherra verði að fara eftir þeirri meginreglu laga að skipa í embætti að undangeng­ inni auglýsingu en ekki eftir geð­ þóttaákvörðun hverju sinni. „Maður hefði haldið að umrædd­ ur ráðherra hefði lært sitthvað af fyrri ráðningarmálum sínum og því er þetta alvarlegra en ella,“ segir Helga Vala. n Segir Lilju eiga að læra af eigin sögu sigurjon@frettabladid.is NEYTENDAMÁL „Þetta er náttúru­ lega allt sami hluturinn hvað sem þú kallar það, þjónustugjald, inn­ heimtugjald eða svoleiðis,“ segir Breki Karlsson, formaður Neyt­ endasamtakanna, um leyndan kostnað sem birtist oft í verði, gjarnan undir nöfnum eins og þjónustugjald, tilkynningagjald, greiðslugjald og svo framvegis. Fréttablaðið fékk ábendingu um einstakling sem ók inn í bíla­ kjallara til að sækja maka sinn í vinnu, einstaklingurinn greiddi 124 krónur í gjald fyrir viðveru í kjallaranum og 1.800 krónur í þjónustugjald. Breki segir þetta þekkjast. „En það er frelsi í verðlagningu hér, þannig að í rauninni máttu rukka hvað sem er, fyrir hvað sem er, fyrir þá þjónustu sem þú veitir. Það sem við leggjum áherslu á er að það sé Kostnaður þurfi að liggja fyrir áður en þjónusta er þegin ninarichter@frettabladid.is HE ILB RIG ÐI S M ÁL „Við fögnum þessari fjölgun heils hugar,“ segir Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, um fregnir af metfjölda nemenda í sérnámi í heimilislækningum. Hún segir aukninguna þó ekki duga til að mæta þörfinni. Í tilkynningu frá heilbrigðis­ ráðuneytinu í gær kom fram að 95 læknar væru skráðir í sérnám í heimilislækningum í dag, í saman­ burði við 38 árið 2017. Umtalsverð fjölgun sé fyrirsjáanleg og við bestu aðstæður muni 57 læknar ljúka náminu á næstu þremur árum. „ Sa m k væmt út rei k n i ng u m Læknafélagsins vantar 80 heimilis­ lækna til starfa á landinu. Sá skortur mun aukast með vaxandi íbúa­ fjölda, ferðamannafjölda og öldrun þjóðarinnar,“ segir Steinunn. „Þetta er ekki að fara að fylla upp í það tómarúm sem er þegar til Metfjöldi í sérnámi en þörfinni er þó ekki mætt Steinunn Þórðar­ dóttir, formaður Læknafélags Íslands staðar í mönnun. Á þessum þremur árum sem 57 eru að útskrifast eru 30 læknar að hætta sökum aldurs.“ Steinunn segist sömuleiðis þekkja dæmi þess að sérnámslæknar hafi flúið úr sérnámi á Landspítalanum yfir á heilsugæsluna út af ofurálagi á spítalanum. „Þannig að þar er líka mikill skortur. Þetta er frekar lítill hópur, þessi hópur sérnámslækna. Þegar einn hópur styrkist er annar kannski að veikjast á sama tíma.“ n Lilja Alfreðs­ dóttir er í kröppum dansi þessa dagana og er tekist á um túlkun orða hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTYRGGUR ARI er að Lilja hafi harmað eigið emb­ ættisverk í ljósi viðbragða. Sigurjón Hafsteinsson, prófessor í safnafræði við Háskóla Íslands, var á þinginu. Hann segir skýrt að Lilja hafi meint að hún hefði gert hlutina öðruvísi ef hún hefði lesið landslagið með öðrum hætti. „Af hverju gerði hún þetta? Það hefur aldrei komið fram,“ segir Sig­ urjón. „Það er ekki skýring að Harpa sé hæf. Það vantar að ráðherra svari af hverju hún geti ekki dregið mis­ tök sín til baka, allir skildu það sem svo að skipanin væri í hennar huga mistök að hennar mati og af hverju getur hún þá ekki dregið skipanina til baka? Er það vegna þess að það kosti ríkið bætur, dómsmál, póli­ tískan álitshnekki fyrir Lilju eða afsögn?“ Hólmar Hólm, ritari í stjórn Íslandsdeildar ICOM, alþjóðaráðs safna, sem staddur var á safnaþing­ inu segir: „Hún harmaði að ákvörð­ un hennar með skipanina hefði farið svo illa í fólk. Það er náttúrlega hálfgerð gaslýsing.“ Hólmar segir vitaskuld hægt að draga skipan þjóðminjavarðar til baka, að viðlögðum skaðabótum. Anita Elefsen, safnstjóri á Síldar­ minjasafninu á Siglufirði, var einnig á þinginu. „Mín upplifun er sú að þessar afleiðingar sem þessi skipan hefur haft hafi í raun komið henni í opna skjöldu.“ Anita segir ekki tímabært að svara spurningum um hvort hún sé sátt við málalyktir. Málinu sé ekki lokið. „Mér finnst ég hafa dregið það úr hennar svörum að ef hún hefði séð fyrir viðbrögðin þá hefði hún farið þá leið að auglýsa stöðuna.“ n Breki Karls­ son, formaður Neytendasam­ takanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK alveg kýrskýrt, áður en þú þiggur þjónustuna, hvað hún kostar.“ Neytendasamtökin skoða reglu­ lega ýmis gjöld. „Við höfum í gegnum tíðina sett út á ýmis gjöld, til dæmis í banka­ kerfinu, innheimtu í jarðgöngum og svo framvegis. Við erum sífellt að skoða þetta og það er sífellt verið að benda okkur á eitthvað og oft er það þannig að fyrirtæki taka vel í okkar ábendingar og lagfæra eða breyta gjaldtöku,“ segir Breki. n kristinnpall@frettabladid.is FLÓTTAFÓLK Íslandi bárust 2.310 umsóknir um alþjóðlega vernd á fyrstu sjö mánuðum ársins. Eru það f leiri umsóknir en öll þrjú árin á undan. Í mars bárust f leiri umsóknir en allt árið 2020. Þetta kemur fram í tölum frá Eurostat, tölfræðiveitu Evrópu­ sambandsins. Rúmlega helmingur umsóknanna var frá konum. n Miklu fleiri vilja alþjóðlega vernd 4 Fréttir 28. september 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.