Fréttablaðið - 28.09.2022, Blaðsíða 13
Málræktarþing Íslenskrar málnefndar verður haldið fimmtudaginn 29. september
í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins undir yfirskriftinni Íslensk tunga og nýir miðlar.
Verið öll hjartanlega velkomin!
DAGSKRÁ
15.00 Þingsetning og ávarp menningar-
og viðskiptaráðherra.
15.05 Ályktun Íslenskrar málnefndar um stöðu
íslenskrar tungu 2022. Eva María Jónsdóttir les.
15.15 Guðrún Nordal: Allt á einum stað.
15.30 Kristján B. Jónasson: Arfurinn ókeypis
í snjalltækið þitt – Stafræn endurgerð
höfundarréttarvarðra texta.
15.45 Anna Sigríður Þráinsdóttir: Stælgæinn –
miðlæg málfarsráðgjöf fyrir fjölmiðla.
16.00 Jón Gunnar Þorsteinsson: Hvar er íslenskt
alfræðiefni á netinu og hvernig ratar það
til lesenda?
16.15 Sigríður Wöhler: Ef við mættum ráða
– um rafrænt námsefni.
16.30 Afhending viðurkenningar Íslenskrar
málnefndar 2022.
Fundarstjóri: Luciano Dutra
www.ms.is
www.islenskan.is
Við stöndum frammi fyrir hröðum
viðsnúningi í hagstjórn vegna
eignabólu á húsnæðismarkaði,
stríðs í Evrópu og eftir aðgerðir í
heimsfaraldri.
Áby rgð rík isstjórnarinnar í
núverandi verðbólguástandi og
vaxtahækkunarumhverfi er marg-
þætt, en benda má sérstaklega á
þrjá þætti:
Fyrir það fyrsta kynti ríkisstjórn-
in undir verðbólgunni á tímum
heimsfaraldurs þegar ákveðið var
að örva hagkerfið með óbeinum
hætti í gegnum eignamarkaði í stað
þess að ráðast hratt og örugglega í
markvissar aðgerðir á hlið ríkisfjár-
málanna. Kreddufastar og úreltar
hugmyndir um hlutverk ríkissjóðs
komu okkur í þessa klemmu. For-
ystumenn ríkisstjórnarinnar hik-
uðu við að beina fjármagni þangað
sem þess var þörf og útvistuðu þess
í stað björgunaraðgerðum til Seðla-
bankans. Aðgerðir sem þöndu
eignamarkaði.
Í öðru lagi báru tveir af æðstu
ráðamönnum þjóðarinnar í fjár-
málum, seðlabankastjóri og fjár-
málaráðherra, út þann boðskap
á síðustu árum að Ísland væri að
stíga inn í nýtt og langvarandi lág-
vaxtatímabil. Fjármálaráðherra rak
sína kosningabaráttu haustið 2021
á þeim skilaboðum að hagstjórnin
undir hans handleiðslu hefði leitt af
sér lágt vaxtastig, ekki að um tíma-
bundna kreppuvexti væri að ræða.
Núverandi staða er algjör forsendu-
brestur fyrir ungt fólk, lágtekjufólk
og fjölskyldufólk sem tók ákvörðun
um að skuldsetja sig mikið fyrir
dýrri eign, í boði eignabólu ríkis-
stjórnarinnar, á forsendum lágra
vaxta sem ráðamenn eignuðu sér í
aðdraganda kosninga.
Í þriðja lagi hafa ytri aðstæður í
heimsmálum skapað sigurvegara
og tapara og varpað skýru ljósi á
undirliggjandi vandamál í íslensku
samfélagi. Íslenskt hagkerfi nýtur
góðs af auðlindagrein, stórútgerð-
inni, sem hefur hagnast verulega
undanfarna mánuði vegna snar-
hækkandi heimsmarkaðsverðs á
sjávarafurðum í kjölfar stríðs og
aðfangatruflana eftir heimfaraldur.
Orkukrísan og hækkandi álverð
hefur einnig skilað mikilli arðsemi
til Landsvirkjunar. En munurinn er
sá að þjóðin fær hlut sinn óskertan
af arðsemi orkunnar í gegnum
Landsvirkjun. Um það er ekki að
ræða í sjávarútvegi. Á sama tíma eru
heimili hér á landi í stöðu tapara:
mörg hver hafa séð kaupmátt sinn
rýrna vegna hækkandi húsnæðis-
greiðslubyrði og hækkunar á nauð-
synjavörum.
Fókus á pólitískt umboð,
ekki ókjörna embættismenn
Enginn vilji er aftur á móti hjá for-
ystumönnum ríkisstjórnarinnar til
að dreifa ábatanum og dempa efna-
hagshöggið, en slíkt gerist ekki sjálf-
krafa í núverandi umhverfi. Slíkar
aðgerðir krefjast auðvitað skýrrar
pólitískrar sýnar um sanngjarnt vel-
ferðarsamfélag. Landinu er aftur á
móti stýrt úr fjármálaráðuneytinu
þar sem hlutverk ríkis ins hefur
verið endurskilgreint frá því að vera
aflvaki samstöðu og samábyrgðar,
og því að styðja við borgarana, í að
draga úr bolmagni grunnþjónust-
unnar, lækka skatta og hvetja til
hólfaskiptingar í samfélaginu.
Seðlabanki Íslands vill dempa
eignabóluna í landinu með vaxta-
tólinu, en sú aðgerð er almenn
og gerir ekki greinarmun á stöðu
Sigurvegarar og taparar í boði ríkisstjórnar Íslands
Kristrún
Frostadóttir
þingmaður Sam-
fylkingarinnar
fólks. Skiptar skoðanir eru um
áherslur í peningamálastjórn víða
um heim þessa dagana. En í lok
dags er Seðlabankinn með það lög-
bundna hlutverk að stuðla að verð-
stöðugleika. Við búum því miður
við samfélagsgerð þar sem ókjörnir
embættismenn í Seðlabankanum
geta haft gífurleg áhrif á jöfnuð
með aðgerðum sínum í þágu verð-
stöðugleika, en hafa ekki umboð til
að vinna á móti þeim hliðaráhrif-
um. Það eitt og sér er efni í mikla
umræðu. En í núverandi ástandi
þarf að horfa til þess hvar getan,
ábyrgðin og umboðið liggur.
Alþingi hefur vald sem Seðla-
bankinn hefur ekki; til að dreifa
byrðunum af vaxtahækkunum
með sanngjörnum hætti um sam-
félagið. Ríkisstjórninni ber bein-
línis skylda til þess miðað við
fyrrgreinda og þríþætta ábyrgð
hennar á stöðunni: aðkomu henn-
ar að eignabólu, eftir óábyrgar og
hápólitískar hagstjórnaryfirlýs-
ingar ráðamanna um vaxtastigið
og vegna sögulegs viljaleysis um að
breyta samfélagsgerð sem skapar
sigurvegara og tapara.
Á þá skyldu og ábyrgð á fókusinn
að vera í þingsal Alþingis þessa
dagana. Ekki aðgerðir ókjörinna
embættismanna í Seðlabank-
anum. Samfylkingin hefur nú
þegar lagt fram þingmál um sam-
stöðuaðgerðir vegna vaxtahækk-
ana og verðbólgu sem snúa að því
að dreifa ábatanum og högginu af
núverandi efnahagsástandi með
sanngjörnum hætti um samfélagið:
með hvalrekasköttum á fjármagn
og stórútgerð sem eyrnamerkja á í
vaxtabætur og barnabætur og með
tillögu um leigubremsu á meðan
verðhækkunarkúfurinn gengur
yfir.
Það er ekki hægt að fría forystu-
menn ríkisstjórnarinnar ábyrgð á
stöðunni. Valdið sem og aðgerða-
leysið í núverandi ástandi er
þeirra. n
MIÐVIKUDAGUR 28. september 2022 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ