Fréttablaðið - 28.09.2022, Blaðsíða 40
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Láru G.
Sigurðardóttur
n Bakþankar
Röðin í bakkelsið náði svo langt
sem augað eygði þennan sunnu-
dagsmorgun á bændamarkaði í
Kaliforníu, en þangað höldum við
hjónin gjarnan þegar við erum á
svæðinu. Þrátt fyrir að þarna flæddi
úr kössum lífrænt grænmeti beint
frá bónda, þá sigraði brauðmeti í
vinsældakeppninni. Að vissu leyti
skil ég aðdráttarafl sætabrauðs því
um nokkurt skeið var það minn
morgunmatur – áður en ég lærði að
það gerði mér ekkert gott. Þegar ég
gekk fram hjá röðinni hugsaði ég
með mér að það væri engu líkara
en fólkið (og ég hér áður fyrr) væri
strengjabrúður sterkara afls. Mér
er minnisstætt hve helvíti erfitt var
að hætta að borða bakkelsi; það var
engu líkara en manni væri stýrt í átt
að sætabrauðinu.
Manuel Berdoy og félagar við
Oxford-háskóla birtu vísindagrein
árið 2000 um hið kæna sníkjudýr
Toxoplasma gondii sem fjölgar sér í
þörmum katta. Þegar rotta étur skít
frá sýktum ketti þá hertekur sníkju-
dýrið heila þess og nemur brott
hræðsluna við ketti. Sem meira er,
rottan leitar uppi lykt af katta-
hlandi og verður með því auðveld
bráð. Fleiri örverur sýna háþróaðar
leiðir til að stjórna öðrum lífverum
í eigin þágu. Hundaæðisveiran
Rabies breytir heilasvæðum sem
stjórna árásarhneigð á þann hátt
að dýrið byrjar að bíta annað dýr
(eða mann) og með því nær veiran
að flytja sig með munnvatni á milli
hýsla.
Jafnt og þétt fjölgar rannsóknum
á tengslum þarmaflóru og heila, en
sýnt hefur verið að þarmaflóran
framleiðir ýmis boðefni, ensím
og önnur efnasambönd sem hafa
áhrif á stjórnstöðina – heilann. Ætli
við séum stundum á valdi annarra
vera sem birtust á jörðinni löngu
áður en við mannfólkið komum til
sögunnar? Það má hugsa um þetta
næst þegar löngun í bakkelsi her-
tekur hugann. n
Smásær stjóri
Er þitt fyrirtæki
tryggt fyrir
netárásum? Hugsum í framtíð
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN