Fréttablaðið - 28.09.2022, Síða 40

Fréttablaðið - 28.09.2022, Síða 40
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 Láru G. Sigurðardóttur n Bakþankar Röðin í bakkelsið náði svo langt sem augað eygði þennan sunnu- dagsmorgun á bændamarkaði í Kaliforníu, en þangað höldum við hjónin gjarnan þegar við erum á svæðinu. Þrátt fyrir að þarna flæddi úr kössum lífrænt grænmeti beint frá bónda, þá sigraði brauðmeti í vinsældakeppninni. Að vissu leyti skil ég aðdráttarafl sætabrauðs því um nokkurt skeið var það minn morgunmatur – áður en ég lærði að það gerði mér ekkert gott. Þegar ég gekk fram hjá röðinni hugsaði ég með mér að það væri engu líkara en fólkið (og ég hér áður fyrr) væri strengjabrúður sterkara afls. Mér er minnisstætt hve helvíti erfitt var að hætta að borða bakkelsi; það var engu líkara en manni væri stýrt í átt að sætabrauðinu. Manuel Berdoy og félagar við Oxford-háskóla birtu vísindagrein árið 2000 um hið kæna sníkjudýr Toxoplasma gondii sem fjölgar sér í þörmum katta. Þegar rotta étur skít frá sýktum ketti þá hertekur sníkju- dýrið heila þess og nemur brott hræðsluna við ketti. Sem meira er, rottan leitar uppi lykt af katta- hlandi og verður með því auðveld bráð. Fleiri örverur sýna háþróaðar leiðir til að stjórna öðrum lífverum í eigin þágu. Hundaæðisveiran Rabies breytir heilasvæðum sem stjórna árásarhneigð á þann hátt að dýrið byrjar að bíta annað dýr (eða mann) og með því nær veiran að flytja sig með munnvatni á milli hýsla. Jafnt og þétt fjölgar rannsóknum á tengslum þarmaflóru og heila, en sýnt hefur verið að þarmaflóran framleiðir ýmis boðefni, ensím og önnur efnasambönd sem hafa áhrif á stjórnstöðina – heilann. Ætli við séum stundum á valdi annarra vera sem birtust á jörðinni löngu áður en við mannfólkið komum til sögunnar? Það má hugsa um þetta næst þegar löngun í bakkelsi her- tekur hugann. n Smásær stjóri Er þitt fyrirtæki tryggt fyrir netárásum? Hugsum í framtíð Vatnagörðum 14 104 Reykjavík litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is UMHVERFISVÆN PRENTUN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.