Fréttablaðið - 28.09.2022, Blaðsíða 10
Framkvæmdastjóri hugbún-
aðarfyrirtækisins Keeps segir
að fyrirtækið vinni að því að
útfæra síðasta púslið í sjálf-
virknivæðingu ferðaþjónust-
unnar. Fyrirtækið stefnir að
því að byrja að selja vöruna í
lok nóvember.
magdalena@frettabladid.is
Hugbúnaðarfyrirtækið Keeps er að
þróa hugbúnaðarlausn sem aðstoðar
fyrirtæki í ferðaþjónustunni að
uppfæra myndir sínar á sölusíðum
á skemmri tíma en áður og sparar
þeim í leiðinni tíma og kostnað. Guð-
rún Ragnarsdóttir, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, segir að um sé að
ræða síðasta púslið í því að umgjörð
markaðssetningar ferðaþjónustunn-
ar sé fullmótuð.
„Nú eru ferðaþjónustuaðilar
komnir með kerfi sem stýrir verði
og framboði til söluaðila ásamt þrifa-
kerfi, innritunarkerfi og fleiri kerf-
um sem einfalda ferla og spara tíma.
En lausnin okkar er í raun síðasta
púslið en jafnframt það mikilvæg-
asta til að sinna markaðssetningu og
auka söluna,“ segir Guðrún og bætir
við að hugbúnaðurinn geti nýst
öllum aðilum ferðaþjónustunnar.
Hún segir að ferðaþjónustuaðilar
noti myndefni til að selja herbergi,
matinn á veitingastöðum og afþrey-
ingu eins og jöklaferðir og gullna
hringinn. Þeir deila þessum mynd-
um inn á helstu sölusíður Booking,
Expedia, Viator, GetYourGuide og
samfélagsmiðla, til dæmis Instagram
og Facebook.
„Eins og staðan er í dag þurfa þeir
að innskrá sig á hverja og eina síðu og
uppfæra myndirnar. Þetta er virki-
lega tímafrekt og tekur oft um það
bil tvo klukkutíma í hvert sinn. Þess-
ir tímafreku ferlar eru þess valdandi
að myndum er oft illa sinnt og þær
sjaldan uppfærðar sem hefur áhrif
á söluna. Okkar hugbúnaður leysir
þetta vandamál og ekki nóg með
það, heldur mun ferðaþjónustuaðil-
inn geta haldið öllum myndunum
sínum til haga með skipulögðum
hætti á einum og sama staðnum.“
Guðrún segir að hún hafi unnið
hjá Expedia-sölusíðunni í mörg ár og
þá hafi hún fundið fyrir því að þegar
kom að því að hlaða inn myndum
eða uppfæra þær hafi allt í rauninni
stoppað.
„Ég kom auga á að hægt væri að
gera ferlið einfaldara, þægilegra
og skilvirkara. Til dæmis stilla það
þannig að norðurljósamyndir séu
sýnilegar yfir norðurljósatíma-
bilið og að græn tún séu sýnileg yfir
sumartímann.“
Guðrún segir að viðtökurnar
hafi farið fram úr hennar björtustu
vonum.
„Það er mjög mikill áhugi á þess-
ari lausn. Við erum nú í samstarfi við
tvö stærstu ferðaþjónustufyrirtæki
landsins sem eru ekki að nota þessa
lausn í dag en væru til í að nota hana
og eru því að þróa hana með okkur.“
Guðrún tekur fram að þau verði
með tilbúna lausn í lok nóvember. Sú
lausn sé þó ekki fullmótuð en notast
verður við hana til að byrja með.
„Varan verður enn í þróun en verð-
ur í lok nóvember í söluformi. Við
erum á fullu núna að tala við fjár-
festa og það er mikill áhugi á þessari
lausn. Við erum um þessar mundir
að keppast við að koma vörunni
í loftið. Síðan fer mikil vinna í að
gera lausnina eins notendavæna og
hægt er. Okkar markmið er að herja
á íslenska og norræna markaðinn
sem fyrst.“ n
Síðasta púslið í
sjálfvirknivæðingunni
magdalena@frettabladid.is
Sahara Academy er nýr skóli í staf-
rænni markaðssetningu sem kennir
jöfnum höndum fræðilega þekkingu
og verklega færni í faginu. Nemendur
læra að setja upp herferðir og mæla
árangur þeirra í auglýsingakerfum
miðla eins og Facebook, Instagram,
Google og YouTube, og glíma við
raunveruleg verkefni fyrir alvöru
viðskiptavini.
Skólinn er átta vikna nám undir
handleiðslu skólastjóra og sérfræð-
inga Sahara. Í gegnum námið takast
nemendur á við fjölbreytt próf á
vegum skólans auk þess að gangast
undir próf frá Meta og Google sem
vottar þau sem sérfræðinga.
Davíð Lúther Sigurðarson, fram-
kvæmdastjóri auglýsingastofunnar
Sahara, segir í samtali við Markað-
inn að ástæðan fyrir því að þau hafi
stofnað skólann sé sú að þau hafi
fundið fyrir því að fólk með mennt-
un á sviði markaðssetningar skorti
hagnýta þekkingu í faginu.
„Að okkar mati ættu menntastofn-
anir í meiri mæli að leggja áherslu á
verklega kennslu samhliða bóklegri
þekkingu. Það hefur vantað að okkar
mati,“ segir Davíð og bætir við að þau
hjá Sahara hafi ákveðið að grípa til
sinna ráða.
„Við héldum fyrstu önnina okkar í
sumar og útskrifuðum sjö nemendur
í ágúst. Við höfum í kjölfarið fengið
heilmargar fyrirspurnir um skólann
á samfélagsmiðlum og fundið fyrir
miklum áhuga. Þess vegna ákváð-
um við að fara af stað aftur þann
26. október næstkomandi.“ n
Kenna hagnýta markaðssetningu
Ari Björn Ólafsson tæknistjóri, Guðrún Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri og Nína Auðardóttir, markaðsstjóri Keeps.
MYND/AÐSEND
Davíð Lúther vill að menntastofnanir leggi meiri áherslu á verklega kennslu.
MYND/HRINGBRAUT
Ég kom auga á að hægt
væri að gera ferlið
einfaldara, þægilegra
og skilvirkara.
Guðrún Ragnarsdóttir,
framkvæmdastjóri Keeps
Að okkar mati ættu
menntastofnanir í
meiri mæli að leggja
áherslu á verklega
kennslu samhliða
bóklegri þekkingu.
Davíð Lúther Sigurðarson,
framkvæmdastjóri Sahara
Nánari upplýsingar veitir
Gunnar Svavarsson | Kontakt fyrirtækjaráðgjöf
gunnar@kontakt.is | 892 1470
Til sölu
kjöt- og matvöruverslun
Um er að ræða gamalgróna kjöt- og matvöruverslun með gott
orðspor. Veltan er um 240 milljónir króna.
Verslunin, sem er um 220 fm að stærð, er á mjög góðum stað
í íbúðahverfi miðsvæðis í borginni.
Hún er í leiguhúsnæði, í eigu sömu aðila, og getur verið laus
með skömmum fyrirvara
10 Fréttir 28. september 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 28. september 2022 MIÐVIKUDAGUR