Fréttablaðið - 04.10.2022, Qupperneq 27
Vaskurinn er hér
hafður á eyju
ásamt elda-
vélinni. Fallegt
er að poppa upp
svarta litinn
með gylltum
krana.
Gott pláss er fyrir eldhústækin í þessum rúmgóða skáp
en inni í honum er falin borðplata. Góð nýting á rými.
Eyjan nýtist einnig sem eldhúsborð. En hér hefur verið gert ráð fyrir plássi
fyrir barstóla undir eyjunni.
Hér sést hvernig plássið er nýtt á skemmtilegan hátt með tækjaskápnum sem er á móti eyjunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Skáparnir eru stílhreinir og fallegir, svartir með viðaráferð.
afhentar 6 vikum frá staðfestingu
pöntunar. Skápar koma sam-
settir og tilbúnir til uppsetningar.
Ormsson er svo í nánu samstarfi
við fagaðila sem hafa áralanga
reynslu af uppsetningu HTH inn-
réttinga. Við getum því boðið þeim
viðskiptavinum sem þess óska
heildarlausn í ferlinu,“ segir Baldur
Már.
Stór sýningarsalur
Þegar viðskiptavinur vill kaupa
HTH innréttingu hefst ferlið alla
jafna á því að farið er yfir grunn-
teikningar af rýminu og ýmsum
möguleikum er velt upp varðandi
skipulag, útfærslur og hvaða raf-
tæki eiga að vera til staðar.
„Allur gangur er á því hve skýrar
hugmyndir og óskir viðskiptavin-
urinn hefur á þessu stigi en góður
fundur þar sem aðilar skiptast
á hugmyndum og skoðunum
kemur okkur alla jafna vel áfram.
Í framhaldi klárar hönnuðurinn
að teikna upp eldhúsið ásamt
efnislýsingu og tillögu að litavali,“
útskýrir Baldur Már.
„Í Ormsson, Lágmúla 8, erum við
með stóran sýningarsal fyrir HTH
innréttingar ásamt öllum helstu
raftækjum fyrir heimilið, en Orms-
son er meðal annars með umboð
fyrir hin heimsþekktu vörumerki
AEG og Samsung. Við bjóðum
einnig mikið úrval af búsáhöldum
til sölu þannig að það má með
sanni segja að hér sé hægt að fá allt
á einum stað.“
Hagstæð kjör
Baldur Már bætir við að þau hjá
Ormsson leitist við að vera ávallt
með samkeppnishæft verð á sínum
vörum og þjónustu.
„En það má nefna að kaup-
endum HTH innréttinga bjóðast
samhliða sérlega hagstæð kjör á
raftækjum hjá Ormsson,“ segir
hann. n
Hægt er að skoða úrvalið sem í
boði er á vefsíðunni ormsson.is/
innrettingar. Verið er að leggja
lokahönd á nýja og glæsilega
heimasíðu fyrir HTH innréttingar
sem mun fara í loftið á næstu
vikum.
kynningarblað 7ÞRIÐJUDAGUR 4. október 2022 ELDHÚS