Ægir - 01.06.2022, Page 10
10
„Við höfum verið að breyta útgerðar-
mynstrinu hjá okkur, úrelda línuskip-
in Sturlu, Tómas og Hrafn, en í stað-
inn kom togbáturinn Sturla, sem áður
hét Smáey (Vestmannaey). Þetta
gerðum við meðal annars vegna þessa
mikla niðurskurðar sem verið hefur í
þorskinum undanfarin ár, rúmlega
20%. En við erum að byggja skip, sem
á að koma eftir tvö ár, svo við vonum
að þorskstofninn verið farinn að rétta
úr kútnum þegar skipið kemur. Við
getum leyft okkur að vonast eftir
betri tímum. Strax á síðasta ári færð-
um við kvóta milli ára til að reyna að
mýkja samdráttinn í veiðinni eins og
við getum. Þá höfum við lengt sumar-
stoppin, þau voru lengri nú í ár en í
fyrra og hitteðfyrra.“
Þetta segir Gunnar Tómasson, fram-
kvæmdastjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík
um stöðuna nú um kvótaáramótin. Fyr-
irtækið hefur staðið í miklum aðgerðum
til hagræðingar á undanförnum árum.
„Nú gerum við út einn línubát, Valdi-
mar, togbátinn Sturlu og frystitogarana
Hrafn Sveinbjarnarson og Tómas Þor-
valdsson. Það er því orðin allmikil breyt-
ing frá því sem var, þegar þrjú fyrirtæki,
Þorbjörn, Fiskanes og Valdimar í Vogum
Gunnar Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar, segir að allir fiskmarkaðir séu góðir um þessar mundir.
Úr sextán skipum
í fjögur
Sjávarútvegsfyrirtækið Þorbjörn í Grindavík hefur á undanförnum
árum hagrætt verulega í starfseminni