Fréttablaðið - 08.10.2022, Blaðsíða 2
Þetta eru hrein og klár
meiðyrði og persónuníð.
Inga Sæland,
formaður Flokks
fólksins.
Frískápur við Laugarneskirkju
Séra Halldór í Holti segir for-
mann Flokks fólksins veikan
einstakling sem noti flokkinn
í eigin þágu og fjölskyldu.
Inga Sæland segist íhuga að
höfða mál vegna ummælanna
bth@frettabladid.is
Stjórnmál Mikil átök hafa skap-
ast eftir að Jón Hjaltason, sagn-
fræðingur á Akureyri, birti skoð-
anagrein í Fréttablaðinu í gær um
Flokk fólksins.
Jón skrifar að meint kynferðislegt
ofbeldi gagnvart konum í flokknum
á Akureyri hafi ekki komið til tals
fyrr en í byrjun september, löngu
síðar en meint tilvik hafi átt sér
stað. Hinn 14. ágúst síðastliðinn hafi
Jakob Frímann Magnússon, þing-
maður Flokks fólksins í Norðaustur-
kjördæmi, stjórnað vel heppnaðri
skemmtun f lokksins í Lystigarð-
inum. Inga Sæland mætt norður og
tekið lagið, allir verið glaðir.
„Hún skrafar nokkra stund við
undirritaðan og enn lengur við
Hjörleif nokkurn Hallgríms,“ segir
Jón og vísar þar til kosningastjórans
sem Inga sem formaður f lokksins
hefur vikið úr Flokki fólksins á
grunni ásakana og ummæla hans
um konurnar sem „svikakvendi“.
„Enginn minnist á kynferðis-
lega áreitni né heldur svæsið ein-
elti,“ skrifar Jón, eitthvað hafi gerst
þriðjudaginn 6. september.
„Inga Sæland talar við mig í síma
og úthúðar Brynjólfi Ingvarssyni
[bæjarfulltrúa og oddvita f lokks-
ins á Akureyri]. Fyrir honum vaki
það eitt að sundra og grafa undan
f lokknum, hann sé „andsetinn af
Halldóri í Holti“ – hennar orð – en
þeir tveir hafi bruggað henni laun-
ráð um nokkurt skeið,“ skrifar Jón.
Fréttablaðið ræddi við séra Hall-
dór Gunnarsson í Holti vegna skrifa
Jóns. Halldór segir að í bók sem sé
að koma út eftir hann verði rakin
átakasagan við Ingu. Spurður hvort
kalt sé milli þeirra, svarar Halldór:
„Ég lít á Ingu sem veika konu og
ekki annað hægt er að vorkenna
henni. Staða hennar er afskaplega
gagnrýniverð. Hún notar flokkinn
í eigin þágu og fjölskyldunnar.“
Inga segir þetta sé ekki í fyrsta
skipti sem Halldór níði af sér skóinn.
Sú saga hafi byrjað eftir Klausturs-
hneykslið þegar hún vék Karli
Gauta Hjaltasyni og Ólafi Ísleifssyni
úr flokknum.„Þú getur rétt ímyndað
þér hvernig manni varð við þegar
oddvitinn á Akureyri sendir neyðar-
kall á Halldór í Holti,“ segir Inga.
Hún telur ummæli Halldórs, að
hún sé veik og misnoti aðstöðu sína,
mjög alvarlega og segist áskilja sér
fullan rétt til að bregðast við með
höfðun meiðyrðamáls.
„Það er hefnigirni sem skýrir
þetta, hefnigirni, full af heilögum
anda,“ segir Inga. Spurð hvort hún
noti f lokkinn í eigin þágu og fjöl-
skyldu, segir Inga það rakalausan
þvætting og viðbjóð að halda slíku
fram. „Við erum með 10-12 starfs-
menn og ég kannast við tvo þeirra. n
Inga íhugar meiðyrðamál
vegna orða Halldórs í Holti
Eldar loga í Flokki fólksins vegna ítrekaðra illinda Fréttablaðið/auðunn
ljosid.is/ljosavinur
Vildi að ég gæti
átt venjulegan
laugardags
morgun með
fjölskyldunni“
„
bth@frettabladid.is
HúSavík „Já, menn eru að búa sig
undir þennan hvell. Við höfum
miklar áhyggjur af veðurspánni,
hún er mjög slæm,“ segir Aðalsteinn
Árni Baldursson, formaður stéttar-
félagsins Framsýnar á Húsavík.
Á morgun verður kolvitlaust
veður víða um land, verst á Norður-
landi eystra samkvæmt spá Veður-
stofunnar. Almannavarnir funda í
dag. Um ræðir mjög hvassan vind
með gríðarlegri úrkomu sem gæti
fallið sem snjókoma.
Veðurspá bendir til að hvass-
ast verði á Tröllaskaga og austur á
Vopnafjörð, stormur eða rok. Hin
mikla úrkoma sem spáð er mun
að líkindum skapa mestan usla á
Akureyri, Sauðárkróki, Blönduósi
og Húsavík, að sögn veðurfræðings.
Almannavarnir hafa sent út boð
til sauðfjáreigenda um að hýsa allt fé
og að landsmenn um allt land haldi
sig heima á sunnudag, enda geti
verið stórhættulegt að vera á ferli. n
Landsmenn skulu halda sig heima
Spáð er vondu veðir um allt land og
aftakaveðri víða á Norðurlandi.
lovisa@frettabladid.is
lÖGrEGlUm ál Aðeins einn af
þremur sakborningum situr nú enn
í varðhaldi hjá lögreglunni á Norð-
urlandi eystra vegna manndráps á
Ólafsfirði aðfaranótt mánudags.
Hann er í varðhaldi til mánudags,
ákveðið verður um helgina hvort
farið verði fram á framlengingu.
Í tilkynningu frá lögreglu segir
að rannsókn málsins miði vel og
að einum hafi verið sleppt úr haldi
í gær þar sem það þótti ekki spilla
rannsóknarhagsmunum að sleppa
honum. RÚV sagði að manneskjan
sem sé nú laus sé eiginkona hins
látna.
Í tilkynningu lögreglunnar kemur
jafnframt fram að heildarmynd
málsins sé smám saman að skýrast
en lögregla hefur tekið skýrslur af
bæði vitnum og grunuðum.
„Rannsókn af þessu tagi er
umfangsmikil, f lókin og tímafrek.
Hún heldur nú áfram með yfir-
heyrslum og greiningu gagna. Enn
eiga ýmsar réttarlæknisfræðilegar
niðurstöður eftir að berast okkur.“ n
Aðeins einn eftir í
haldi á Ólafsfirði
Einn maður situr enn í varðhaldi.
Vegfarendur gægjast inn í nýuppsettan frískáp við Laugarneskirkju. Frískápar eru ætlaðir til deilingar með það að markmiði að minnka matarsóun með því
að deila neysluhæfum mat á milli fólks. Öllum er frjálst að setja í og taka úr skápnum hvenær þeim sem þeim hentar en þó eru nokkrar reglur á borð við ekk-
ert áfengi, engar opnar niðursuðudósir eða krukkur og að taka aðeins mat til eigin þarfa. Fréttablaðið/ernir
2 Fréttir 8. október 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið