Fréttablaðið - 08.10.2022, Blaðsíða 39
hagvangur.is
Leitum að góðu fólki
Við hjá Sjálfsbjargarheimilinu erum að leita að góðu fólki til að vinna með okkur. Sjálfsbjargarheimilið er endurhæfingarúrræði
sem veitir þverfaglega einstaklingsmiðaða endurhæfingu fyrir hreyfihamlaða einstaklinga sem glíma við heila- og taugaskaða.
Við sinnum endurhæfingu í dag- og sólarhringsþjónustu.
Við erum svo lánsöm að hjá okkur er starfsaldur langur. Núna eru tímamót og starfsmenn að fara á eftirlaun. Við erum einnig
að bæta við í okkar góða hóp starfsmanna.
Hjá okkur starfar fjölbreyttur hópur fagfólks m.a. félagsráðgjafi, hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfar, sjúkraþjálfari,
talmeinafræðingur auk fjölda annarra. Lögð er áhersla á að starfsfólki líði vel í vinnunni og að aðbúnaður sé góður. Við leggjum
einnig áherslu á að starfsumhverfið sé fjölskylduvænt. Innleidd hefur verið full vinnutímastytting. Gildin okkar eru virðing, gæði
og samvinna.
Forstöðumaður eldhúss
Áhersla er lögð á hollan og fjölbreyttan mat sem er
eldaður frá grunni í samræmi við áherslur í endurhæfingu
og almenn lýðheilsusjónarmið. Næsti yfirmaður er
framkvæmdastjóri.
Starfssvið
• Umsjón með daglegum rekstri eldhúss,
þ.m.t. matreiðsla, innkaup og birgðahald
• Ábyrgð og umsjón með mannahaldi
• Gerð vaktaskipulags og mat á mönnum
• Þverfagleg samvinna við aðrar einingar
Menntunar- og hæfniskröfur
• Sveinspróf í matreiðslu
• Frumkvæði og faglegur metnaður til að elda hollan
mat frá grunni
• Reynsla af sambærilegu starfi
• Færni í mannlegum samskiptum, snyrtimennska
og jákvætt viðmót
• Reynsla af ráðningum og mannahaldi
• Mjög góð færni í íslensku
Staðan er 100% dagvinnustarf.
Sjúkraþjálfari
Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt þar sem áhersla er
lögð á góða teymisvinnu. Sjúkraþjálfari sinnir almennri
sjúkraþjálfun á öllum stigum endurhæfingar. Næsti
yfirmaður er forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar.
Starfssvið
• Metur og og skipuleggur íhlutun í samráði
við þjónustuþega og aðra starfsmenn
• Skráir og metur árangur sjúkraþjálfunar
• Úthlutar verkefnum og ber faglega ábyrgð
á framkvæmd þeirra
• Veitir upplýsingar og ráðgjöf til þjónustuþega
og aðstandenda
Menntunar- og hæfniskröfur
• Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
• Góð íslenskukunnátta
• Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
• Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
• Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu er kostur
Staðan er 100% dagvinnustarf.
Hjúkrunarfræðingur
Leitað er að hjúkrunarfræðingi með reynslu og /eða áhuga
á endurhæfingu. Áhersla er á þverfaglega teymisvinnu.
Næsti yfirmaður er forstöðumaður hjúkrunar.
Starfssvið
• Meta þörf, skipuleggja og veita heildræna
hjúkrunarmeðferð eftir þörfum hvers og eins
• Styðja þjónustuþega í endurhæfingu
• Skipuleggja og veita fræðslu til þjónustuþega
og aðstandenda
• Virk þátttaka í teymis- og umbótastarfi með öðrum
heilbrigðisstéttum
• Að stuðla að og þróa aðferðir til að bæta þjónustuna
Menntunar- og hæfniskröfur
• Íslenskt hjúkrunarleyfi
• Reynsla af endurhæfingarhjúkrun er kostur
• Fagleg vinnubrögð og frumkvæði í starfi
• Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
• Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
Staðan er 100% dagvinnustarf með möguleika
á bakvöktum.
Sérfræðingur á skrifstofu
Leitað er að starfsmanni til að sinna bókhaldi og öðrum
verkefnum á skrifstofu. Mikilvægt er að viðkomandi sé
sveigjanlegur, drífandi og tilbúinn að koma að ólíkum
verkefnum. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri.
Starfssvið
• Færsla bókhalds og afstemmingar
• Útgáfa reikninga og innheimta
• Samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila
• Almenn skrifstofustörf
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
• Reynsla af bókhaldi er skilyrði
• Háskólamenntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
• Góðir samskiptahæfileikar, jákvæðni og frumkvæði
• Góð þekking á DK bókhaldskerfi
• Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
Staðan er 100% dagvinnustarf.
Umsóknarfrestur er til og með 20. október nk.
Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.
Laun eru ákvörðuð samkvæmt kjarasamningum Samtaka fyrirtækja í
velferðarþjónustu og viðeigandi stéttarfélags.
Upplýsingar um störfin veita Jóhannes Þorkelsson,
johannes@hagvangur.is, og Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is.
Sótt er um störfin
á hagvangur.is