Fréttablaðið - 08.10.2022, Blaðsíða 62
Við værum
ekki búin
að vera
svona lengi
hérna ef
okkur liði
ekki vel.
Það eru
bæði kostir
og gallar
við að búa
hér. Það er
ekkert hér
sem ýtir
okkur í
burtu.
Guðmundur
Hilmarsson
gummih
@frettabladid.is
Jónas Grani Garðarsson
er sjúkraþjálfari og hefur
starfað á Aspetar-sjúkrahús-
inu í Doha í Katar frá árinu
2016. Aspetar er sérhæft
bæklunar- og íþróttasjúkra-
hús og þangað leita margir
þekktir íþróttamenn til að fá
bót meina sinna.
„Þetta er búinn að vera áhugaverð-
ur tími. Ég held að það sé óhætt að
segja það,“ segir Jónas Grani. „Þetta
hefur verið lærdómsríkur tími bæði
hvað vinnuna varðar og samfélags-
lega séð,“ bætir Jónas við.
Hvað varð til þess að þú ákvaðst
yfirgefa Ísland og halda alla leið til
Katar?
„Einar Einarsson, sem starfaði
með mér á Íslandi, var aðalástæða
þess að ég kom hingað en hann
hefur starfað hjá Aspetar frá árinu
2014. Mig langaði að starfa erlendis
en þó ekki í Skandinavíu. Það var
einhver ævintýraþrá í mér og ég
stökk á þetta. Ég ætlaði að prófa í
eitt til tvö ár í mesta lagi en nú er
ég búinn að vera hér í sex og hálft
ár,“ segir Jónas Grani, sem er Hús-
víkingur og gerði garðinn frægan á
árum áður sem knattspyrnumaður.
Hann hóf feril sinn með Völsungi
á Húsavík og lék einnig með FH,
Fram, Fjölni og HK en lagði skóna
á hilluna eftir tímabilið með HK
2010.
Hann lék alls 113 leiki í efstu
deild og skoraði í þeim 45 mörk.
Jónas varð markakóngur efstu
deildar árið 2007 en hann skoraði
þá 13 mörk fyrir Framara.
Ekkert sem ýtir okkur í burtu
Spurður hvort hann sé farinn að
huga að heimför segir Jónas: „Ég
hef sagt undanfarin tvö til þrjú ár
að fyrst maður er búinn að vera hér
svona lengi þá ætli ég að vera fram
yfir HM. Og nú eru ekki nema sex
vikur í að heimsmeistarakeppnin
hefjist. Ég segi alltaf það sama. Það
kemur bara í ljós. Ég hef ekki sett
upp neinn tímaramma. Ég gerði
það í byrjun en það fór á annan
veg,“ segir Jónas sem býr í höfuð-
borginni Doha ásamt sambýlis-
konu sinni Vanessu Martinetti og
sonum þeirra Birni Elí, þriggja ára,
og Arnóri Elí, sem er níu mánaða
gamall.
„Við værum ekki búin að vera
svona lengi hérna ef okkur liði ekki
vel. Það eru bæði kostir og gallar við
að búa hér. Það er ekkert hér sem
ýtir okkur í burtu. Það er að mörgu
leyti fínt að vera með fjölskyldu í
Katar. Hér er barnvænt, það er lítið
um glæpi og mikið öryggi,“ segir
Jónas Grani en Vanessa er heima-
Einhver ævintýraþrá í mér
Jónas Grani
og Vanessa
Martinetti
ásamt Birni
Elí, syni þeirra,
í sandinum í
Doha í Katar.
MYNDIR/AÐSENDAR
vinnandi og sinnir strákunum á
meðan Jónas er í vinnunni.
Vinnutími Jónasar er frá átta til
fjögur á daginn en sjúklingar hans
á Aspetar er íþróttafólk úr hinum
ýmsu íþróttagreinum.
„Skráðir íþróttamenn geta komið
í íþróttadeildina þar sem við Einar
störfum. Þessir íþróttamenn sem
koma til okkar í meðhöndlun
eru skráðir í eitthvert samband,
hvort sem þeir eru fótboltamenn,
blakmenn eða stunda hokkí. Svo
er annar partur á spítalanum sem
tekur á móti almenningi,“ segir
Jónas. Heimsþekkt íþróttafólk
hefur nýtt sér aðstöðuna hjá Jónasi
Grana og félögum og þá er mest
tekið eftir fótboltamönnunum að
sögn Jónasar. Þegar fiskað er eftir
einhverjum nöfnum segir Jónas:
„Ég get nefnt leikmann sem er
mikið í sviðljósinu núna en það er
Norðmaðurinn Erling Braaut Haa-
land sem spilar með Man chester
City. Hann kom hingað fyrir
tveimur árum í miðju Covid. Það
mátti enginn koma á þessum tíma
en það þurfti bara eitt símtal fyrir
hann. Það var eitthvert vesen með
Bræðurnir Björn
Elí og Arnór Elí í
búningi lands-
liðs Katar, gest-
gjafa HM sem
hefst í næsta
mánuði.
mjaðmirnar á honum sem leiddi
til þess að hann gat ekki spilað
nema í kringum 20 leiki á tímabili
með Dortmund. Ég fékk að vísu
ekkert að sinna honum en ég hef
meðhöndlað meðal annars franska
landsliðsmanninn Samuel Umtidi,
sem er hjá Barcelona.“
Með miða á fjóra leiki á HM
Flautað verður til leiks á HM í
Katar þann 20. nóvember. Spurður
hvernig stemningin sé í Katar fyrir
keppninni og hvort hann ætli að
fara á einhverja leiki segir Jónas:
„Það er búið að vera að tala
um HM síðan ég kom hingað og
Doha hefur gjörbreyst. Hún hefur
stækkað mjög mikið og samgöng-
urnar orðnar mjög góðar. Núna
snýst allt um HM og ekkert annað
mun gerast fyrr en eftir HM. Ég
er kominn með miða á fjóra leiki,
Danmörk-Frakkland, England-
Wales og tvo leiki í 16-liða úrslit-
unum,“ segir Jónas, sem hefur ekki
mikla trú á liði Katar.
„Ég er hræddur um að Katar endi
með ekkert stig og nái jafnvel ekki
að skora. Katararnir hafa verið í
vandræðum enda hafa þeir ekki
spilað keppnisleik í hálft ár. Þeir
hafa bara verið í æfingabúðum í
nokkra mánuði og hafa bara spilað
æfingaleiki,“ segir Jónas, nýkominn
heim úr vinnunni og kominn út í
garð að spóka sig í 35–37 stiga hita
en hitastigið verður nær 30 stigum
þegar HM fer af stað. „Við vorum
heima á Íslandi í fimm vikur í
sumar og það er alltaf gott að anda
að sér hreinu og tæru lofti heima á
Fróni.“ n
6 kynningarblað A L LT 8. október 2022 LAUGARDAGUR