Fréttablaðið - 08.10.2022, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 08.10.2022, Blaðsíða 6
Þessi hækkun nú eykur verðbólguna á næsta ári. Breki Karlsson, formaður Neyt- endasamtakanna. Neytendasamtökin gagnrýna harðlega verðtryggingar- ákvæði á gjaldtöku ríkisins í fjárlagafrumvarpi næsta árs og segja þetta bitna illa á neytendum, valda aukinni verðbólgu og hækka verð- tryggð lán heimilanna. olafur@frettabladid.is NEYTENDUR Neytendasamtökin senda að öllu jöfnu ekki umsögn um frumvörp til fjárlaga, en gera undantekningu í þetta sinn til að gera athugasemd við verðtryggingu krónutölugjalda, nefskatta og auka- tekna ríkissjóðs. Í umsögn samtakanna er bent á að í 2. málsgrein, blaðsíðu 116, í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2023 segir: „Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að svokölluð krónu- tölugjöld, nefskattar og aukatekjur breytist í samræmi við áætlaða vísitölu neysluverðs í árslok … Breytingin nær til áfengis-, tóbaks-, bensín-, olíu-, kolefnis-, bifreiða- og kílómetragjalds ásamt gjaldi í Fram- kvæmdasjóð aldraðra, útvarps- gjaldi og gjöldum sem falla undir lög um aukatekjur ríkissjóðs …“ Í umsögninni segir að áætlað sé að þessi verðtrygging skili ríkissjóði 6,4 milljörðum og leiði til hækk- unar verðbólgu um 0,2 prósentu- stig. Í frumvarpinu sé þó ósagt látið að verðbólgutenging þessi leiðir til hækkunar verðtryggðra lána heimilanna (sem nemi rúmum 1.000 milljörðum) um rúmlega 2 milljarða, eða um þriðjung ávinn- ings ríkissjóðs. Kostnaður neyt- enda sé því ekki einvörðungu þær umframálögur sem verðtrygging gjaldanna leggur á herðar þeim, heldur einnig kostnaður vegna hækkunar lána heimilanna sem og annar kostnaður sem hlýst af minnkandi verðgildi krónunnar. Að því er Neytendasamtökin fá best séð er þetta í fyrsta sinn á síð- ari tímum sem fjárlagafrumvarpið er verðtryggt, en undanfarin ár hafa þessi gjöld hækkað í takti við verðbólgumarkmið Seðlabankans. „Vísitölutenging tekna ríkissjóðs er verðbólguhvetjandi aðgerð sem leiðir af sér kuðungsferil sífelldra hækkana og viðheldur vítahring verðbólgu. Ríkissjóður er þar með orðinn forkólfur í vexti og viðhaldi verðbólgunnar, þvert á það sem vera skyldi. Það skýtur skökku við að stjórn- völd ausi olíu á verðbólgubálið. Neytendasamtökin telja þvert á móti að stjórnvöld ættu að leita allra leiða til að draga úr verðbólgu og lækka vöruverð á nauðsynja- vöru svo sem matvælum. Þar liggur beinast við að draga úr og afnema tollvernd með öllu.“ Breki Karlsson, formaður Neyt- endasamtakanna, segir að miðað við forsendur fjárlagafrumvarpsins, sem miðar við að vísitala neyslu- verðs hækki um 7,7 prósent á þessu ári, sé um þrefalda hækkun þessara gjalda að ræða samanborið við ef áfram hefði verið miðað við verð- bólgumarkmið Seðlabankans, sem er 2,5 prósent. „Ekki nóg með það,“ segir Breki, „þessi hækkun nú eykur verðbólg- una á næsta ári og veldur því enn frekari hækkun þessara gjalda við fjárlagagerð fyrir 2024 og framvegis verði þessi nálgun til frambúðar. Þetta er endalaust, eins og hundur sem eltir skottið á sér.“ Aðspurður hvort Neytendasam- tökin hyggist aðhafast meira í þessu máli, segist Breki eiga von á því að samtökunum verði boðið að koma á fund fjárlaganefndar til að ræða þetta. „Fjárlaganefnd hlýtur að hafa áhuga á að heyra sjónarmið neytenda í þessum efnum. Það er með ólíkindum að ríkisstjórnin skuli grípa til aðgerða sem bein- línis valda verðbólgu á sama tíma og Seðlabankinn hefur keyrt hér upp vexti til að reyna að ná tökum á verðbólgunni,“ segir Breki. n Mótmæla verðtryggingu álaga í fjárlagafrumvarpinu Breki Karls- son formaður Neytendasam- takanna segir verðtryggingar- ákvæði í fjár- lagafrumvarp- inu þrefalda hækkun ýmissa gjalda og hækka höfuðstól lána heimilanna. Fréttablaðið/ anton brink stofnhus.is Kuggavogur 26 Opið hús 15. og 16. október Glæsilegt fjölbýlishús með fallegri náttúru allt um kring Kl. 13:00-17:00 Nýtt í sölu lovisa@frettabladid.is ÚTLENDINGAMÁL Fimm einstakl- ingum hefur verið fylgt til Grikk- lands frá 29. september á þessu ári samkvæmt verkbeiðnum hjá stoð- deild Ríkislögreglustjóra. Engin börn voru í þeim hópi. Á sama tíma hefur 17 einstaklingum verið fylgt til annarra landa. Til stendur að vísa 35 einstaklingum til Grikklands á næstu vikum en í þeim hópi er ein fjölskylda, þar af tvö börn. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkislögreglustjóra hafa 35 fengið endanlega niðurstöðu í sínu máli hjá Útlendingastofnun og er stoð- deildin því að undirbúa f lutning þeirra til Grikklands, þar sem þau hafa áður hlotið vernd. Samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra er unnið að því að upplýsa þessa 35 einstaklinga um að það eigi að fylgja þeim úr landi en átta hafa ekki fundist í búsetuúrræðum eða ann- ars staðar og gætu mögulega verið farin úr landi. „Unnið er að f leiri fylgdum á næstunni en heildartala um fyrir- hugaðar fylgdir á næstu mánuðum liggur ekki fyrir og er háð breyting- um. Þá gefur stoðdeild einstakling- um ávallt kost á því fyrst að yfirgefa landið án lögreglufylgdar,“ segir Gunnar Hörður Garðarsson sam- skiptastjóri hjá Ríkislögreglustjóra. Rauði krossinn, Kven réttinda fé- lag Ís lands, Unicef á Ís landi, Barna- heill, Mann réttinda skrif stofa Ís- lands og Ör yrkja banda lagið, sendu í vikunni frá sér á kall vegna brott- vísunarinnar, þar sem þau kalla á stjórn völd að virða mann réttindi barna á f lótta og hætta við endur- sendingar á þeim til Grikk lands. Í á kallinu for dæma sam tökin fyrir hugaðar endur sendingar og kalla eftir því að þessu fólki verði boðin vernd hér á landi. „Við teljum að hags munir barna séu ekki metnir á heild stæðan hátt og að á kvarðanir um endur- sendingar til Grikk lands skapi börnum hættu sem ís lensk stjórn- völd beri á byrgð á, eins og í trekað hefur verið bent á. Hafa ber í huga að ís lensk stjórn völd hafa hingað til ekki sent börn frá Ís landi til Grikk- lands,“ segir í á kallinu. n Vísa tveimur börnum til Grikklands Til stendur að vísa 35 ein- staklingum til Grikklands á næstu vikum. Fréttablaðið/ valli Unnið er að fleiri fylgdum á næstunni. Gunnar Hörður Garðarsson, sam- skiptastjóri hjá Ríkislögreglustjóra arnar@frettabladidþis BRETLAND Eurovision-keppnin verður haldin í ensku borginni Liver- pool á næsta ári. Úkraína bar sigur úr býtum í vor með laginu Stefania en ekki er unnt að halda keppnina í landinu vegna innrásar Rússlands. Fjöldi breskra borga lýsti yfir áhuga á að fá að halda keppnina en að endingu stóðu Liverpool og Glas- gow eftir. Nú hefur verið staðfest að söngvakeppnin fer fram í Bítla- borginni. Breska ríkisútvarpið mun skipu- leggja keppnina með aðstoð frá ríkisútvarpi Úkraínu og Samtökum evrópskra sjónvarpsstöðva. Þetta er í fyrsta sinn í 25 ár sem Bretland hýsir keppnina. n Eurovision verður í Liverpool Liverpool þótti fýsilegust borga sem buðu sig fram. 6 Fréttir 8. október 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.