Fréttablaðið - 08.10.2022, Side 8

Fréttablaðið - 08.10.2022, Side 8
Einungis lítið gat á leiðsluna veldur því að þrýstingur fer af henni og rennsli stöðvast. Almannavarnanefnd Vestmannaeyja Matvælastofnun er hætt að birta sér- stakar fréttir af leyfis- veitingum eins og gert var í upphafi á vef stofnunarinnar. Almennt hefur fremur lítið borið á laxalús- inni, en fiskilúsin hefur sýnt sig að vera fasta- gestur þegar líður á haustin. Gísli Jónsson, sérgreinadýra- læknir fisksjúkdóma hjá MAST Sérgreinadýralæknir hjá Matvælastofnun hefur ekki áhyggjur af áhrifum þess eit­ urs sem leyfi hafa verið gefin fyrir gegn lúsum í sjókvía eldi. Lítið hafi borið á laxalús en fiskilús sé fastagestur. kristinnhaukur@frettabladid.is UMHVERFISMÁL Matvælastofnun (MAST) telur þær eitranir sem leyfð­ ar hafa verið gegn lús í eldisfiskum á Vestfjörðum hafa hverfandi áhrif á lífríkið. Stofnunin er hætt að birta sérstakar fréttir af leyfisveitingum eins og gert var í upphafi á vef stofn­ unarinnar. Þá er stofnunin einnig byrjuð að hópa saman leyfum fyrir ákveðna staði í staðinn fyrir að gefa út leyfi fyrir hvern og einn stað. Fréttablaðið greindi frá því á fimmtudag að Matvælastofnun hefði gefið út 28 eitranaleyfi á 5 árum vegna lúsar í sjókvíaeldi á Vestfjörðum. Þetta eru annars vegar skordýraeitrið deltametrín og lyfjafóðrið emamektín. Norskar og skoskar rannsóknir sína að notkun hefur mjög skaðlega áhrif á skel­ dýr og líffræðilegan fjölbreytileika á þeim svæðum þar sem eitrið er notað. „Með afar takmarkaðri notkun á sjókvíaeldissvæðum sem eru fjarri viðkvæmum tegundum krabbadýra, svo sem rækju, eru áhrif lyfjanna á lífríkið hverfandi lítil,“ segir Gísli Jónsson, sérgreinadýralæknir fisk­ sjúkdóma hjá stofnuninni. Gísli hefur áður sagt að lýs myndu eiga erfiðara uppdráttar hér á landi en hjá nágrannaþjóðum okkar og vart verða að sama vandamáli. Er það vegna norðlægrar legu landsins. Aðspurður segir hann fjölda leyfis­ veitinga fyrir eitrunum á síðustu fimm árum ekki merki um að lúsin sé mikið vandamál á Vestfjörðum. Bendir hann á að leyfisveitingarnar séu ekki allar vegna laxalúsar, lang­ flestar hafi verið vegna fiskilúsar. Fiskilúsin er minni en laxalúsin, án hvassra bitkróka og veldur ekki sam­ bærilegum skaða á roði, samkvæmt upplýsingum MAST. Hún sé þó hvimleið og geti valdið óþarfa áreiti. „Almennt hefur fremur lítið borið á laxalúsinni, en fiskilúsin hefur sýnt sig að vera fastagestur þegar líður á haustin,“ segir Gísli. Í fyrstu birti MAST fréttir af því í hvert skipti þegar eitranaleyfi voru gefin út gegn lús á Vestfjörðum. En slíkar fréttir er ekki að finna síðan árið 2018 samkvæmt óformlegri könnun Fréttablaðsins. Þá hafa staðir í hverjum firði verið hópaðir saman í leyfisveitingum. Í síðustu leyfisveitingum, frá miðjum sept­ ember, voru til að mynda hópaðir saman Hvanndalur og Laugardalur í Tálknafirði og Hringsdalur og Hvesta í Arnarfirði. Gísli segist ekki minnast þess að það hafi verið sérstakt markmið stofnunarinnar að tilkynna það sér­ staklega með frétt þegar gefin væru leyfi fyrir þessari meðhöndlun. „Þetta þótti fréttnæmt alveg í byrj­ un því slík meðhöndlun hér á landi hafði ekki átt sér stað í yfir 30 ár,“ segir Gísli. Þá segir hann hópunina einnig eiga sér eðlilegar skýringar. „Þessi háttur var hafður á núna því það þótti eðlilegt að tvinna saman báðar staðsetningar sitthvors fyrir­ tækis innan sama fjarðar. Þetta eru sem sagt nágrannakvíaból sem eðli máls samkvæmt getur verið rétt­ mætt faglega út frá faraldsfræði lúsarinnar að meðhöndla á sama tíma til að sporna við lús innan sama fjarðar.“ n Áhrif lúsaeiturs á lífríkið séu hverfandi lítil Matvælastofnun er byrjuð að hópa sama leyfum í stað þess að gefa út leyfi fyrir hvern stað. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR gar@frettabladid.is VESTMANNAEYJAR Aðeins ein nothæf neysluvatnslögn er milli lands og Vestmannaeyja að sögn almannavarnanefndar Vestmanna­ eyja sem lýsir áhyggjum vegna þessa. „Núverandi lögn, neðansjávar­ leiðsla 3, var tekin í notkun árið 2008. Neðansjávarleiðslur 1 og 2 hafa báðar verið dæmdar ónýtar, sú fyrri árið 2008 og sú síðari árið 2014. Frá 2014 hefur neðansjávarleiðsla 3 því verið eina neysluvatnslögnin milli lands og Eyja,“ segir almanna­ varnanefndin. Ef lögnin bili skapist alvarlegt ástand. Viðgerðir í sjó sé aðeins hægt að framkvæma að sumri til. „Einungis lítið gat á leiðsluna veldur því að þrýstingur fer af henni og rennsli stöðvast. Kæmi til bilunar á leiðslunni liggur fyrir að þegar yrði lýst yfir almannavarnaástandi og grípa þyrfti til skömmtunar á vatni,“ segir í bókun nefndarinnar. Drykkjarvatn yrði skammtað úr fimm þúsund rúmmetra vatns­ geymi sem myndi tæmast fljótt. „Loka þyrfti dreifikerfi strax og leggja áherslu á áfyllingarvatn hitaveitu til að halda henni inni sem lengst. Fiskvinnsla og annað atvinnulíf myndi stöðvast mjög f ljótlega og hitaveitan einnig. Lík­ legt er að f lytja yrði sjúklinga af sjúkrahúsinu og aldraða af hjúkr­ unarheimilinu Hraunbúðum upp á land strax,“ lýsir Almannavarna­ nefndin sviðsmyndinni sem uppi yrði. Ekkert neysluvatn væri á húsum og hýbýlum. Því er sagt um að ræða mikið öryggismál fyrir Vestmanneyinga og að tafarlaust verði að undirbúa nýja neðansjávarleiðslu milli lands og Eyja. n Tvær af þremur vatnslögnum eru ónýtar og Eyjamenn eru uggandi Fimm þúsund rúmmetra vatnsgeymir í Heimaey myndi duga skammt fyrir Eyjamenn og tæmast fljótt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Friðarferlar og friðarumleitanir verða í brennidepli á árlegri friðarráðstefnu Höfða friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands mánudaginn 10. október í Veröld - húsi Vigdísar. Nánari upplýsingar www.ams.hi.is. Öll velkomin ICELAND THE IMAGINE FORUM Reimagining Peace Processes 8 Fréttir 8. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.