Fréttablaðið - 08.10.2022, Qupperneq 18
Hann er magnaður
leikmaður og mögnuð
persóna. Hann er
góður karakter og
Manchester City er
heppið að hafa svona
leikmann.
Jude Bellingham
Haaland þarf ekki
mörg færi til að skora.
Hann er með mann-
drápseðli.
Axel Witsel
Hann er fyndinn
náungi, hann er góður
vinur og frábær leik-
maður. Hann er algjört
naut, hann hefur allt.
Martin Odegaard
Hann er magnaður
markaskorari, hann
skorar úr öllum mögu-
legum stöðum. Það er
gott að spila fyrir aftan
hann.
Jadon Sancho
18 Íþróttir 8. október 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 8. október 2022 LAUGARDAGUR
Erling Braut Haaland er skær
asta stjarna fótboltans, þessi
22 ára gamli sóknarmaður
slær hvert metið á fætur
öðru. Erling er fæddur í Leeds
á Englandi árið 2000 en
fjórum árum síðar fór hann
heim til Noregs. Fjölskyldan
settist að í smábænum Bryne.
Þar ólst Erling upp.
hordur@frettabladid.is
Haaland stundaði ekki aðeins
knattspyrnu á sínum yngri árum.
Hann prufaði handbolta, golf og
frjálsar íþróttir. Fjallað hefur verið
um að hann hafi sett heimsmet í
sínum aldursf lokki árið 2006 í
langstökki, þá stökk hann 1,63
metra aðeins 6 ára gamall. Þessi
mikli stökkkraftur hefur fylgt
Haaland alla tíð, í dag hræðast
varnarmenn ekkert meira en að
þurfa að eiga við norska skrímslið.
Snöggur, sterkur og af burða góður
í að koma boltanum í marknetið.
Vel skipulagður ferill
Aðeins 15 ára gamall samdi hann
við Molde í heimalandinu. Hann
kom til félagsins eftir nokkra leiki
með aðalliði Bryne og gerði vel.
Hjá Molde lék hann undir stjórn
Ole Gunnar Solskjær sem hafði
nokkur áhrif á hans feril.
Á r ið 2018 þega r Haa la nd
hafði nýlokið við að fagna 18
ára afmæli sínu staðfesti Red
Bull Salzburg Í Austurríki kaup á
kappanum. Hann hóf þó ekki að
spila í Austurríki fyrr en eftir ára
mót. Hann lét strax til sín taka en
framganga hans í Meistaradeild
inni haustið 2019 varð til þess að
augu heimsins fóru að beinast
að Haaland. Í sínum fyrsta í leik
í þessari stærstu keppni fótbolt
ans, skoraði norski framherjinn
þrennu . Mörk in þr jú gegn
Á methraða upp stjörnustigann
Hjá Molde:
50
leikir
20
mörk
Genk frá Belgíu, komu öll í fyrri
hálf leik.
Valdi Dortmund fram yfir alla
Öll stærstu félög Evrópu fóru að
berjast um Haaland haustið 2019,
í stað þess að velja stærsta félagið
eða mestu peningana var ákveðið
að finna stað þar sem Haaland
yrði áfram í lykilhlutverki. Eftir
fundi með stjórum stærstu félag
anna ákvað Haaland og teymið í
kringum hann að velja Borussia
Dortmund í Þýskalandi.
Í sínum fyrsta leik með Dort
mund skoraði Haaland þrennu á
23 mínútum í sigri gegn Augsburg.
Hann raðaði svo mörkum inn fyrir
þýska stórveldið í tvö og hálft ár
áður en komið var að næsta skrefi
á ferlinum.
Í fótspor pabba gamla
Í sumar vissi allur fótbolta
heimurinn af klásúlu í samn
ingi Haaland sem gerði honum
kleift að fara frá Dortmund fyrir 8,1
milljarð. Slík upphæð telst klink í
heimi fótboltans þegar rætt er um
leikmann í gæðaflokki Haaland.
Faðir hans hafði leikið með Man
chester City á árum áður og staða
félagsins í dag gerði City að væn
legasta kostinum fyrir Haaland.
Sóknarsinnaður fótbolti með
Pep Guardiola við stjórnvölinn var
blanda sem heillaði Haalandfjöl
skylduna. Valið virðist hafa verið
rétt því Haaland hefur farið af stað
með látum. Þrjár þrennur í átta
deildarleikjum í ensku úrvalsdeild
inni, 19 mörk í 12 leikjum, segir alla
söguna. Haaland er í dag skærasta
stjarna fótboltans og hann er enn
að bæta leik sinn. Auk þess að raða
inn mörkum hjá félagsliði hefur
Haaland slegið í gegn með lands
liðinu og norskt fótboltaáhugafólk
er farið að láta sig dreyma um betri
tíma. n
Fljótasir í þrjár þrennur í
ensku úrvalsdeildinni:
n Erling Haaland: 8 leikir
n Michael Owen: 48 leikir
n Ruud van Nistelrooy: 59 leikir
n Fernando Torres: 64 leikir
n Andy Cole: 65 leikir
n Luis Suarez: 71 leikur
Hjá Salzburg:
27
leikir
29
mörk
Hjá Dortmund:
89
leikir
86
mörk
Hjá Man. City:
12
leikir
19
mörk
Með norska
landsliðinu:
23
leikir
21
mark