Fréttablaðið - 08.10.2022, Page 96

Fréttablaðið - 08.10.2022, Page 96
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 Óttars Guðmundssonar n Bakþankar Reykjavík ullarúlpa kr. 47.990,- icewear.is ÍSLENSK ULLAREINANGRUN Reykjavík • Mörkin 3 | Akureyri • Undirhlíð 2 ÚRVALS OKTÓBER NÝJAR VÖRUR OG TILBOÐ NOTHING (R) 89.990 Nothing Phone (1) Verð frá Ég hitti Gretti sterka Ásmundsson á dögunum á fundi í Félagi Mömmu- drengja (FM). Þetta eru samtök fullorðinna karlmanna sem eru mjög háðir mæðrum sínum. Móðir Grettis, Ásdís á Bjargi, stóð alltaf þétt að baki sonar síns þrátt fyrir öll hans glæpaverk. Formaður félags- ins er Oddur Sigurðsson lögmaður sem gerði garðinn frægan í upphafi átjándu aldar. Hann var drykk- felldur ofbeldismaður sem oftar en einu sinni var dæmdur frá ærunni og öllum sínum auðæfum. Sigríður Hákonardóttir móðir hans tók honum fagnandi eftir hvern ósigur og fjármagnaði ný réttarhöld. Sturla Sighvatsson frændi minn er líka í félaginu ásamt Skarphéðni Njálssyni. Margir makar kvarta sáran undan sambandi mömmudrengja við móður sína. Þeim finnst samskiptin of náin og móðirin allt of afskiptasöm. Sumar verða afbrýðisamar og sjá ofsjónum yfir áhrifavaldi og meðvirkni móður- innar. Þetta getur valdið hat- römmum átökum í samskiptum hjóna. Sannir mömmustrákar taka þessari gagnrýni létt enda kunna þeir vel að meta taumlausa aðdáun móður sinnar. Ég er meðlimur í FM vegna þess að móðir mín heitin missti aldrei trúna á einkason sinn þrátt fyrir ýmsar uppákomur. Unglinga- herbergið stóð alltaf til reiðu eftir misheppnaðar sambúðir eða hjónabönd. Ég held að það sé ákaflega hollt fyrir unga menn að eiga sér meðvirka móður sem dáist að þeim. Góð móðir skilur ekkert í því hvað sonurinn er óheppinn með konur. Heimurinn er fullur af freistingum og vafasömu fólki sem reynir að draga soninn á tálar. Hún veit að sonurinn vill öllum vel þótt honum séu mislagðar hendur. Mamma skilur nefnilega allt! n Mamma skilur allt

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.