Íslenzk fyndni - 01.06.1958, Side 15
13
Barn hafði hann eignazt, eftir að hann missti
sjónina.
Einhverju sinni var kona ein, Þorbjörg að nafni,
að láta í ljós við hann undrun sína yfir því, að
hann skyldi vera að fást við þess háttar hluti, blind-
ur maðurinn.
Jón þegir við því, þar til hann segir:
„Þurftir þú að kveikja?"
29.
ROSKIN vinnukona á bæ einum ól barn, og var
faðir þess 18 ára gamall piltur á sama heimili.
Nokkuð mun þetta hafa þótt tíðindum sæta og
verið um það talað á sínum tíma, en aldraður mað-
ur, faðir húsfreyju, taldi þetta allt eðlilegt og sagði:
„Hann er þægur, drengurinn, og gerir allt, sem
honum er sagt.“
30.
| NESI við Seltjörn var kona ein í vetrarvist, og
þótti hún frekar grönn, hvað greind snerti.
Á sama heimili var karlmaður, og þótti að sumu
leyti jafnræði með þeim, enda fór svo, að mannfjölg-
un varð hjá þeim eftir veturinn.
Eitt sinn fór húsbóndinn að spyrja stúlkuna, hvar
þau hefðu verið, er þau komu sér saman um þetta,
en hún vildi ekkert segja og varðist allra frétta.
Bóndi segir þá: