Íslenzk fyndni - 01.06.1958, Síða 11
9
Þegar Helgi, sem er snyrtimenni, sá tröppuna,
sagði hann með nokkrum þjósti:
„Hvað á nú að gera við þessa mublu hér?“
„Hún á að vera til þess, að þú getir pissað í
vaskinn,“ svaraði Jón.
17.
SR. ÁRNA ÞÓRARINSSYNI var meinilla við Jón
biskup Helgason og talaði jafnan illa um hann.
Einu sinni sem oftar var hann staddur hjá sr.
Bjarna Jónssyni og var að úthúða Jóni biskupi.
Þá segir sr. Bjarni:
„Vertu nú ekki alltaf að skamma biskupinn. Þetta
er mesti forkur, og svo er hann svo ern.“
Þá andvarpar sr. Árni og segir:
„Já, hann er full-em.“
18.
j^ENNARI einn var að útskýra fyrir börnunum,
hvað væri réttlæti og ranglæti. Hann sagði við
einn strákinn:
„Ef nú, Pétur minn, hann bróðir þinn fær epli
hjá föður þínum og þú tekur það af honum, hvað
gerirðu þá?“
„Nú, ég ét það,“ svaraði strákur.
19.
??þAÐ RIFNAR, sem gamalt er,“ sagði skrattinn.
Hann sleit eyrað af ömmu sinni.