Íslenzk fyndni - 01.06.1958, Side 6

Íslenzk fyndni - 01.06.1958, Side 6
4 „Hafðir þú nokkra þekkingu á þessum heimi, þegar þú komst í hann?“ spurði prestur á móti. 4. J^ENNSLUKONA í kvennaskóla, guðhrædd og siða- vönd, var að tala til nemenda sinna og sagði meðal annars: „Við verðum að bera það, sem Drottinn leggur okkur á herðar. Minnizt jafnan orða ritningarinnar: „Slái einhver þig á hægri kinnina, þá bjóð þú hina vinstri." “ Þá gellur ein stúlkan við og segir: „En fari nú svo, að einhver kyssi mann á aðra kinnina, á maður þá að bjóða hina?“ 5. J£ONA EIN spurði mann sinn: „Var Pétur postuli píslarvottur ?“ „Ég veit það ekki,“ svaraði bóndi hennar. „Ég veit ekki, hvort hann var giftur eða ekki.“ 6. 'J'ALA, móðir hinna kunnu bræðra Einars Hjalta- sonar og Heiðmundar á Götum í Mýrdal, var einu sinni að þvo Hjalta bónda sínum í framan, áður en hann færi til kirkju. „Er ég nú hreinn?“ spurði Hjalti. „Já, nema svipurinn,“ svaraði Tala.

x

Íslenzk fyndni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenzk fyndni
https://timarit.is/publication/1701

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.