Skessuhorn - 21.09.2022, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 38. tbl. 25. árg. 21. september 2022 - kr. 950 í lausasölu
Ert þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Heyrnarþjónusta
s:534-9600
www.heyrn.is
Opið
alla
daga
ársins
Þinn árangur
Arion
Horfst í augu
við heiðarbúann
Í fjárleit á Arnarvatnsheiði í fyrstu viku
septembermánaðar sá Gunnar Bjarnason
bóndi á Hurðarbaki hvar tófa skaust milli
steina. Var hann þá staddur á Langajörfa
sem er svæði austan við Réttarvatn, sem
eins og Jónas kvað, er „efst á Arnarvatns
hæðum.“ Tófan var þó ekkert á því að eiga
of mikil samskipti við mannfólkið enda því
óvön. Fann hún sér griðastað undir stór
grýti. Komin í öruggt skjól að hennar mati
horfðust þau í augu; tófan og Gunnar.
Bóndi smellti þó mynd á símann sinn, áður
en haldið var áfram för í leit að kindum.
mm
Miklar annir
hjá þyrlusveitum
Gæslunnar
Fyrir og um síðustu helgi
bárust Landhelgis gæslunni
fjölmörg útköll til sjós
og lands. Meðal annars
voru a.m.k. tvö útköll á
Vesturland. Föstudagur
inn reyndist sérlega anna
samur. Um morguninn var
óskað eftir aðstoð sveitar
innar vegna veikinda um
borð í fiskiskipi sem var
statt 80 sjómílur norður af
Grímsey. Vegna fjarlægðar
frá landi voru tvær þyrlur
sendar norður, önnur ann
aðist útkallið sjálft á meðan
hin var til taks í Grímsey.
Þá var ökumaður bíls
sem lent hafði í árekstri
sóttur á Mýrar. Raunar fóru
tvær þyrlur í það útkall. Á
leiðinni á vettvang slyssins
bárust stjórnstöð Land
helgisgæslunnar tvær
beiðnir um aðkomu þyrlu
sveitar til viðbótar. Annars
vegar vegna göngumanns í
sjálfheldu fyrir ofan Hofsós
og hins vegar vegna slas
aðs smala ofan við Mórudal
á Barðaströnd. „Nokkuð
óvanalegt er að þyrlusveitin
annist jafn mörg útköll og
raunin var á föstudaginn,
en þó kemur það stöku
sinnum fyrir,“ sagði í frétt
á vef Gæslunnar.
mm
Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug á sunnudaginn til móts við
sjúkrabíl sem flutti veikan einstakling úr Dölum. Lögregla lokaði
bílastæðinu við Bauluna í Stafholtstungum þar sem þyrlan gat lent
og tekið sjúklinginn um borð. Hér er hún að hefja sig til flugs að nýju.
Ljósm. mm.