Skessuhorn - 21.09.2022, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2022 21
Félagsmenn hjá Skotfélagi Snæ
fellsness hafa heldur betur verið
með ermarnar upp brettar undan
farin misseri. Nýjasta viðbót við
aðstöðu hjá félaginu er 75 fermetra
skothús sem hefur risið á svæði
félagsins í Kolgrafafirði. Skothúsið
er af fullkomnustu gerð með ell
efu skotlúgum og þar af eru fimm
skotlúgur hugsaðar fyrir skotfólk í
hjólastólum.
Jón Pétur Pétursson er formaður
félagsins og hefur staðið í ströngu
ásamt öðrum félagsmönnum.
„Félagið var stofnað 1987 og er eitt
elsta skotfélagið á Íslandi,“ segir
Jón Pétur í stuttu spjalli við Skessu
horn. „Félagsmenn eru á þriðja
hundraðið og eru af öllu Snæfells
nesi og víðar.“ Æfingasvæði félags
ins er innarlega í Kolgrafafirði rétt
innan við Grundarfjörð. „Svæðið
sem við höfum er eitt það besta á
landinu frá náttúrunnar hendi og
er riffilbrautin ein sú lengsta,“ segir
formaðurinn.
Bogfimi verður ný deild
Innan félagsins eru þrjár deildir
starfandi en það eru riffildeild,
haglabyssudeild og skammbyssu
deild og nú er einnig verið að
setja bogfimideild á laggirnar sem
verður fjórða deildin hjá félaginu.
„Skotíþróttir eru mjög fjölbreyttar
og skemmtilegar og henta því fjöl
breyttum hópi fólks. Margir hafa
fundið skotíþróttina sem sameig
inlegt fjölskyldusport þar sem ung
lingarnir, mamma og pabbi og
jafnvel amma og afi, stunda sam
eiginlegt áhugamál í stórkostlegu
umhverfi,“ bætir Jón Pétur við.
Starfsemi félagsins hefur verið
mjög fjölbreytt en þar má nefna
unglingakvöld, konukvöld, fræðslu
kvöld, skotsýningar og að sjálfsögðu
skotmót ásamt ýmsum öðrum
skemmtilegum viðburðum. „Með
fjölbreyttri starfsemi náum við að
höfða til fjölda fólks á öllum aldri.
Auk þess bjóðum við upp á ýmsa
þjónustu við skotfólk eins og hrein
dýraskotpróf, skotvopnanámskeið
og þess háttar.“ Þá nefnir hann að
lögregluembættið á Vestur landi
nýti svæðið reglulega til skotæfinga
og hefur gert um árabil.
Skotið flesta daga ársins
Æfingasvæði félagsins er vel sótt og
kemur fólk víða að. „Það eru stund
aðar skotæfingar hérna flesta daga
ársins en skotfólk kemur úr öllum
landshlutum til að stunda skotæf
ingar eða taka þátt í viðburðum
hjá okkur,“ segir Jón Pétur. „Við
höfum fengið mikla og góða athygli
víðs vegar að fyrir aðstöðuna hjá
okkur og drifkraftinn í félaginu.“
Mikill hugur er í félagsmönnum og
stefna þeir ótrauðir á að bjóða upp
á eitt besta skotæfingasvæði lands
ins. „Erlend skotfélög hafa sýnt því
áhuga á að koma og halda alþjóðleg
skotmót hjá okkur og vonandi ger
ist það í nánustu framtíð,“ segir Jón
Pétur að lokum.
Hægt er að fræðast nánar um
félagið á heimasíðunni www.skot
grund.is en þar eru allar helstu
upplýsingar og hægt að skrá sig í
félagið.
tfk
Mikið um að vera hjá
Skotfélagi Snæfellsness
Séð yfir svæði félagsins en næst er nýja skothúsið þar sem riffilbrautir eru bæði innandyra og svo utandyra. Fjær eru svo kastvélar fyrir leirdúfur og svo eldra félagshús
Skotfélags Snæfellsness.
Unnsteinn Guðmundsson og Birgir Guðmundsson æfa skotfimi með skammbyss-
um sem þykir ansi krefjandi.
Loftur Árni Björgvinsson festi nýverið kaup á boga og er vaxandi áhugi á að koma
upp bogfimideild hjá félaginu.
Hluti af stjórn félagsins. F.v. Unnsteinn Guðmundsson, Dagný Rut Kjartansdóttir
og Jón Pétur Pétursson.
Félagsmenn æfa sig í riffilskotfimi í nýja skothúsi félagsins.