Skessuhorn - 21.09.2022, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 202222
Sumarbúðirnar Ölver eru stað
settar við rætur Hafnarfjalls og hafa
verið starfræktar frá því um miðja
síðustu öld. Þar er hver dagur nýtt
ævintýri, sambland af ómissandi
hefðum, nýjum leikjum og uppá
komum. Í starfinu er unnið með
gildi Biblíunnar, mikið sungið
og boðið upp á hollan og góðan
heimalagaðan mat. Nýlokið er vel
heppnuðu sumri í Ölveri þar sem
boðið var upp á hina ýmsu leikja
flokka fyrir stelpur á aldrinum 715
ára og má þar nefna flokka eins og
Ævintýraflokk, Krílaflokk, Lista
flokk og flokkinn Stelpur í stuði
sem er sérstaklega ætlaður stelpum
á aldrinum 1113 ára sem eru með
ADHD og aðrar skyldar raskanir.
Þá var í þriðja skiptið haldið leikja
námskeið í lok sumars fyrir stelpur
og stráka á aldrinum sex til níu ára
sem búsett eru á Akranesi, í Borgar
nesi og nánasta umhverfi en vantað
hefur svona námskeið fyrir krakka
rétt fyrir skólabyrjun. Alls voru
um 450 stelpur sem komu í Ölver
í sumar og komust færri að en vildu
og þá voru 30 krakkar á leikjanám
skeiðinu.
Bara notað fyrir brennó
Blaðamaður Skessuhorns kom við í
Ölveri í síðustu viku og ræddi þar
við nokkrar hressar konur í stjórn
Ölvers sem voru að funda um næstu
skref. Aðalskálinn í Ölveri var tek
inn í notkun árið 1952. Í honum er
stór matsalur, eldhús, kvöldvöku
salur, bænaherbergi, starfsmanna
aðstaða, svefnherbergi stúlknanna
og þvotta, salernis og sturtu
aðstaða. Íþróttahúsið, eða Leik
skálinn eins og hann er kallaður af
starfsmönnum, er skammt frá aðal
skálanum og var hann aðalmálefni
fundarins. Þar er lítill íþróttasalur,
leikherbergi og salerni en hann er
að þeirra sögn mjög illa farinn og
nánast ónýtur. „Það er okkar stóra
verkefni núna og það sem við erum
að fara að ræða á þessum fundi
er að það þarf að rífa leikskálann,
hann er ónýtur. Sjálfstæðisflokk
urinn á Akranesi átti þetta hús
upphaflega og það á sér langa og
skemmtilega sögu. Það voru haldin
böll hérna í gamla daga sem margir
Skagamenn muna eftir. Meira að
segja eftir að Kristrún Ólafsdóttir,
stofnandi Ölvers og forstöðukona,
hóf starfið hér þá voru enn böll á
sama tíma og stóð hún þá vaktina.
En við höfum aðallega notað húsið
fyrir okkar þjóðaríþrótt í Ölveri
sem er brennibolti eða brennó og
höfum eiginlega bara notað það
fyrir brennó. Það liggur mjög í
rauninni á að fá nýtt húsnæði og
við erum að láta okkur dreyma um
fjölnota hús þar sem er ekki bara
hægt að spila brennó, samt ekki
beint íþróttahús því við erum ekki
íþróttasumar búðir. Okkur langar í
íþróttasal, hafa listasmiðju og rými
fyrir alls konar spil.“
Stærsta verkefnið
í langan tíma
Hvernig fjármagnið þið svona
verk efni? „Þetta er á byrjunarreit
nema það að það er búið að safna
fyrir þessu húsi í meira en 20 ár
með stofnun Sveinusjóðs, sem er
í höfuðið á Sveinbjörgu Heiðrúnu
Arnmundsdóttur. Sveina gegndi
lykil hlutverki í uppbyggingu
sumar búðanna í Ölveri og var við
riðin þær í tæp 70 ár allt frá stofnun
þeirra. Það er búið að safna mjög
lengi í þennan sjóð en það er ekki
nóg að safna í sjóð, nú þarf eitt
hvað að fara að gerast. Alls hafa
safnast um og yfir 20 milljónir í
þennan sjóð en við höfum þurft að
taka úr honum til að viðhalda aðal
skálanum. Stundum hefur verið
hagnaður um nokkrar milljónir á
ári og stundum mínus, það hefur
vantað stöðugleika. Nú er hugur í
okkur að byrja, við verðum að láta
teikna húsið og við erum að vona
og trúa að það gerist eitthvað. Það
þarf að koma verkefninu af stað til
að geta sótt um styrki hjá ríkinu og
bæjar yfirvöldum. Við höfum verið
ansi lánsöm með velgjörðarmenn í
kringum okkur og stundum fengið
gjafir og styrki úr óvæntustu áttum
sem hafa algjörlega bjargað okkur.
En þetta er okkar stærsta og viða
mesta verkefni í langan tíma.“
Stefnan á að ljúka
verkinu eftir fimm ár
Áætlað er að bygging nýs leikskála
muni kosta á bilinu 60 til 100 millj
ónir króna, en hvað verður gert
á meðan þær framkvæmdir eru
í gangi? „Við myndum reyna að
finna einhverja lausn á því en þetta
þarf að ganga hratt og vel fyrir sig.
Stefnan er sú að vera búin með
þetta þegar Sveina hefði orðið 100
ára sem er árið 2027. Nú er hugur
í fólki og nú fer þetta af stað. Þetta
hefur verið lengi á byrjunarreit og
nú þarf að fara að ýta þessu úr vör.“
Aðalskálinn í Ölveri er í ágætis
ásigkomulagi en í vor var skipt um
þak á öllu húsinu og var það mjög
stórt verkefni. Fyrir fjórum árum
síðan var öll neðri hæðin tekin í
gegn, öll herbergin endurnýjuð
og sturtuaðstaðan bætt fyrir starfs
fólk. „Við erum einnig með vetrar
leigu því hér er fín aðstaða fyrir
hópa að koma hérna og leigja skál
ann á veturna. Það skiptir máli fyrir
okkur að fá inn vetrarleigu og þessi
staður leynir á sér. Það koma hér
hópar ár eftir ár en salurinn tekur
um fimmtíu manns og hentar vel
til að mynda fyrir fermingarveislur.
Nýlega var haldin hin árlega kaffi
sala Ölvers þar sem komu um 300
manns og heppnaðist mjög vel.“
Þær segja að lokum að Ölver sé
dásamlegur staður og hálfgerð falin
perla í fallegri náttúru. „Þetta er
staður sem hefur gert svo margt
fyrir marga og margir hafa miklar
taugar til Ölvers. Við erum með
frábæra starfsemi, frábært starfsfólk
yfir sumarið og það er góður andi
og stemning í húsinu.“
vaks
Verkefnið Söfnun og sáning á
birkifræi er árlegt samstarfsverk
efni Landgræðslunnar og Skóg
ræktarinnar sem hófst árið 2020.
Fræsöfnun hefst með formlegum
hætti fimmtudaginn 22. septem
ber. „Mikið fræ er nú á birki víða
um land og alls staðar er eitthvað
hægt að finna. Mest er þó af fræi
þetta árið á Norður, Austur og
Suðausturlandi,“ segir í tilkynn
ingu frá hlutaðeigandi en að baki
verkefninu stendur öflugur sam
starfshópur fyrirtækja og frjálsra
félagasamtaka ásamt stofnununum
tveimur. Nú í haust verður enn efnt
til söfnunar og sáningar á birkifræi.
Til þess að vel takist til er þátttaka
almennings lykilatriði. Nú hafa
stjórnvöld sett sér það markmið að
við lok ársins 2030 hafi heildarút
breiðsla birkis náð 5% af flatarmáli
landsins sem er ríflega þreföldun á
núverandi útbreiðslu. Þetta er liður
í alþjóðlegu átaki, svokallaðri Bonn
áskorun, um aukna útbreiðslu
skóga í þágu náttúrunnar og samfé
laga fólks.
Verkefnið Söfnun og sáning á
birkifræi hefur ekki eingöngu það
markmið að efla útbreiðslu birkis.
Reynslan hefur sýnt að þátttaka
almennings og skilningur á mikil
vægi landbótaaðgerða er lykillinn að
árangri. Verkefnið gefur almenningi
færi á að leggja sitt af mörkum til
landbótastarfs og stuðlar þannig að
auknum skilningi á mikilvægi land
bótastarfs í baráttunni gegn lofts
lagsbreytingum.
Ítarlegar upplýsingar um verk
efnið er að finna á vefsíðunni
birkiskogur.is, meðal annars leið
beiningar um hvernig best er að bera
sig að við bæði söfnun á birkifræi og
sáningu. Tekið er á móti fræjum í
öllum verslunum Bónus og Olís.
mm
Söfnun og sáning á birkifræi hefst í vikunni
Hyggja á byggingu nýs leikskála í Ölveri
Aðalskálinn í Ölveri. Ljósm. vaks
Leikskálinn er kominn til ára sinna. Eins og sjá má er leikskálinn mjög illa farinn og nánast ónýtur.
Það er ósjaldan fallegt útsýnið frá Ölveri.