Skessuhorn - 21.09.2022, Page 28
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 202228
Vörur og þjónusta
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
GJ málun ehf
málningarþjónusta
Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár
Ákveðið hefur verið að efna til stofn
fundar Hollvinasamtaka Hamars
hússins í Borgarnesi. Verður fund
urinn haldinn í Hamars húsinu við
golfvöllinn fimmtudaginn 22. sept
ember kl. 20.30. Þeir Guðmundur
Eyþórsson og Ingimundur Ingi
mundarson eru skrifaðir fyrir stofn
fundarboði, en þess má geta að
Guðmundur átti hluta æsku sinnar
í húsinu. Á fundinum verður m.a.
borin upp tillaga að lögum félags
ins og kosið í stjórn. Á stofnfund
inn eru allir hvattir til að mæta sem
vilja láta þetta áberandi kennileiti
við hringveginn sig varða.
Eitt helsta tákn Hamarsvallar
er klúbbhúsið, gamli Hamarsbær
inn. Í afmælisblaði golfklúbbsins
kemur fram að húsið hafi verið
reist árið 1926 en það er stein
steyptur og tvílyftur burstabær.
Húsið byggði Jóhann Magnússon
sem ættaður var frá Glerárskógum
í Dölum. Hann flutti í Borgarfjörð
og keypti fljótlega eftir það jörðina
Hamar og byggði bæinn og öll úti
hús; fjós og fjárhús. Jóhann var á
sinni tíð m.a. helsti hvatamaður
að stofnun Sparisjóðs Mýrasýslu
og stjórnarformaður hans frá
stofnun og til dauðadags 1950. Til
Hamars hússins sést víða að, ekki
síst frá þjóðveginum, enda er það á
Hamrinum svokallaða, sem völlur
inn dregur nafn sitt af. Áður höfðu
klúbbfélagar haft hug á að byggja
sitt eigið klúbbhús, en frá því var
horfið eftir að Borgarneshreppur,
eigandi hússins, ákvað að færa
klúbbnum það til afnota. Hreppur
inn myndi að auki kosta allt efni
við endurbætur gegn því að félagar
í klúbbnum legðu til vinnu. Þeir
einhentu sér í að lagfæra húsið og
koma þar upp myndarlegri félags
aðstöðu. Framkvæmdir stóðu yfir
fram á vor 1979 og voru ófáar
vinnustundir lagðar í verkið. Til
marks um það hversu slæmt ástand
var á Hamarsbænum má nefna
að eitt herbergi þess var yfirfullt
af hænsnaskít þegar endurbætur
hófust og eyddu félagar mörgum
klukkustundum í að moka skítnum
út. Klúbbhúsið var loks tekið í
notkun sumarið 1979.
Síðan þá hafa margs konar
endurbætur og breytingar verið
gerðar á húsinu, sem félagarnir í
golfklúbbnum hafa tekið þátt í með
einum eða öðrum hætti. Hæst báru
framkvæmdir á efri hæð hússins
árið 1987 þegar þar var útbúin
gistiaðstaða. Klúbburinn hefur
m.a. haft golfskálann til útleigu á
sumrin og hafa fjölmargir staðar
haldarar rekið þar gistiheimili og
veitingasölu.
Í viðtali í Skessuhorni á síðasta
ári sagði Guðmundur Eyþórs
son frá því að hann hafi alist upp
í gamla húsinu á Hamri og búið
þar í 14 ár frá árinu 1960 með
foreldrum sínum og systkinum.
„Golfararnir voru byrjaðir hérna
upp úr 1970 og þá á litlu svæði
hérna úti á túni. En það er ekki
fyrr en eftir að við förum héðan
sem golfklúbburinn fær húsið
árið 1978, en það hafði þá verið
í niðurníðslu. Þetta er sko ekk
ert í fyrsta skiptið sem ég er að
leika mér hérna á hólnum,“ sagði
Guðmundur sem nú stundar pútt
af krafti. „Það var mjög gott að
vera hérna sem krakki. Ég var í
skóla í Borgarnesi og stundaði alla
mína skólagöngu þar og gengum
við iðulega í skólann hvernig sem
viðraði.“
Í viðtalinu á síðasta ári sagðist
Guðmundur hafa miklar áhyggjur
af sínu æskuheimili og kvaðst von
ast til að eitthvað verði gert í mál
inu. „Mér finnst að það megi koma
fram að það ætti fljótlega að fara
að huga að því að bjarga þessu
húsi því það er að láta á sjá bæði
að innan sem utan enda orðið nær
hundrað ára,“ sagði Guðmundur.
Orðum fylgja oft efndir og nú
hefur Guðmundur í félagi við
Ingimund og fleiri ákveðið að láta
verkin tala og stofna hollvinafélag
um húsið.
mm
Boða stofnfund Hollvinasamtaka
Hamarshússins í Borgarnesi
Hamarshúsið var byggt árið 1926.
Guðmundur Eyþórsson.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is