Fréttablaðið - 19.11.2022, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 19.11.2022, Blaðsíða 28
mig alveg vel en ég féll alltaf á mætingu,“ segir hann. Spurður að því hvort ekki hafi verið tekið tillit til aðstæðna hans í skólanum segir hann svo ekki hafa verið. „Ég fann alveg að fólk var með mér í liði, fann til með mér og svona, en það var samt ekki tekið tillit til þess. Fólk var mikið að segja mér að ég ætti að gera þetta og hitt og þá myndi mér líða betur. Ég þyrfti til dæmis að sofa meira, eins og ég hafi ekki vitað það,“ segir Hálfdán, en í mörg ár átti hann í miklum erfið- leikum með svefn. „Sama hvað ég gerði þá gat ég ekki sofið, ég var með áfallastreitu og kvíða og ég hugsaði endalaust um þetta og sá fyrir mér,“ segir hann. „Og þegar maður sefur ekki þá verður allt annað verra, maður hættir að átta sig á því hvað er orsök og hvað er afleiðing, þó að ég hafi alltaf vitað að ástæðan fyrir því að mér leið svona var þetta slys, sem ég áttaði mig ekki strax á að hefði verið slys.“ Hann segir þó að samtal hans við einn mann hafi breytt miklu og hjálpað honum að komast á þann stað sem hann er á í dag. „Ég hitti mann sem hafði lent í því sama og ég. Hann sagði mér að þetta yrði í lagi, ég gæti lifað góðu lífi,“ útskýrir Hálfdán. „Það voru svo margir búnir að segja mér að þetta yrði allt í lagi og ég veit að það kom frá góðum stað en ég hugsaði bara: Þú veist ekkert um það. En þessi maður vissi það. Hann var eldri en ég og átti fjöl- skyldu og lifði góðu lífi, það gaf mér einhverja von og ég trúði honum,“ segir Hálfdán. „Ég sá líka að hann gat verið glað- ur en ég átti svo erfitt með það og þegar það gerðist þá skammaðist ég mín fyrir það. Það var eiginlega eitt það versta við þetta allt. Mér leið alltaf svo illa en í þessi fáu skipti sem ég varð glaður eða leið vel, þá hélt ég að fólk sæi mig og hugsaði bara með sér hvort ég væri ekki með sál. Hvernig maður sem hefði gert það sem ég gerði gæti brosað,“ útskýrir Hálfdán. Lifir fyrir þau bæði Núna er Hálfdán hamingjusamur, hann á tvö börn, kærustu og tvö stjúpbörn og nýtur lífsins. Spurður að því hvað það hafi verið sem breyttist og varð til þess að honum fór að líða betur segir Hálfdán það margþætt. „Það var auðvitað fjölskyldan mín og vinir og það sem þessi maður sem ég nefndi áðan sagði hjálpaði mér mikið. En annað sem bjargaði mér var það hvernig foreldrar henn- ar hugsuðu til mín,“ segir hann, og á þar við foreldra stúlkunnar sem lést í slysinu. „Þau voru svo skilningsrík, ég sjálfur hef ekki talað mikið við þau en ég hef heyrt að þau vilji það besta fyrir mig,“ segir Hálfdán og þakk- lætið leynir sér ekki. „Það besta sem ég heyrði var að nú væri ég að lifa fyrir hana líka og þá væri mikilvægt að ég ætti gott líf,“ bætir hann við. „Ég veit að ef þau hefðu brugðist öðruvísi við þá hefði þetta verið enn þá erfiðara fyrir mig. Ég var farinn að geta sagt það út á við að þetta hefði verið slys, en ég trúði því ekki sjálfur. Það tók mig mjög langan tíma að trúa því í alvörunni,“ segir Hálfdán. Þá segir hann tónlist hafa átt stór- an þátt í því að hann lifði af. „Oft gat ég ekki hitt fólk í marga daga, lokaði mig bara af og spilaði á bassann. Ég fann einhverja ró og hugleiðslu í því að spila og semja tónlist, tónlistin gaf mér gleði sem ég fann hvergi annars staðar,“ segir Hálfdán. „Ég vildi auðvitað mest af öllu að ekkert af þessu hefði gerst, að þetta slys hefði aldrei orðið, en það jákvæða sem kom út úr þessu er að ég er búinn að læra mikið á sjálfan mig og lífið. Ég er næmari og er orð- inn enn betri tónlistarmaður, af því að ég náði oft að færa tilfinningar mínar yfir í tónlistina og fá útrás Háfdán spilar á bassa og kennir börnum tón- list, Hann segir tónlistina eiga stóran hluti í því að hann fann hamingjuna að nýju. MYND/KRISTINN R. KRISTINSSON Hálfdán hefur á árunum síðan slysið varð unnið mikið í sjálfum sér og segist nú vera sterkari en áður og þekkja sjálfan sig vel. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR þar,“ segir Hálfdán, en hann er nú á tónleikaferðalagi um Holland. Löng refsing Hálfdán var lengi hjá sálfræðingi, sem hann ber vel söguna. Hann segir mikla synd að ekki sé tekinn frekari þáttur í kostnaði vegna sál- fræðiþjónustu hér á landi. „Þetta er svo mikilvægt og var það fyrir mig, ætti í rauninni að vera frítt,“ segir hann. „Ég man alltaf eftir því þegar ég var einu sinni hjá sálfræðingnum mínum og ég hafði verið mjög langt niðri og hún segir við mig: Hálfdán, þú ert í rauninni búinn að vera í fangelsi í tíu ár, er þetta ekki komið gott af refsingu? Menn fara í fangelsi fyrir að drepa einhvern af ásettu ráði og eru jafnvel lausir eftir þennan tíma, af hverju mátt þú ekki losna?“ útskýrir Hálfdán. „Þetta setti hlutina í ákveðið sam- hengi fyrir mig og ég varð tilbúnari til að takast á við það sem hafði gerst og vinna úr því af alvöru.“ Þarna fékk Hálfdán tækifæri til að fara í VIRK og vinna í sjálfum sér, það tækifæri segir hann eiga hlut í því að bjarga lífi hans. „Ég hafði eins og ég sagði ekki getað unnið, og af því ég gat það ekki þá átti ég lítinn pening og það er mjög dýrt að vinna í sjálfum sér og batna af andlegum veikindum,“ útskýrir hann. „Þarna fékk ég að vinna við það að vinna í sjálfum mér, ég fékk pening og tíma og áður en sálfræðingurinn benti mér á þetta þá vissi ég ekki að þetta væri til, ég væri ekki hérna á þessum stað ef ég hefði ekki fengið að gera þetta,“ segir Hálfdán. Var líka fórnarlamb Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er á morgun. Dagurinn er haldinn til að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni og þakka þeim viðbragðsaðilum sem veita hjálp og björgun. Í ár er lögð sér- stök áhersla á öryggi óvarinna veg- farenda, ásamt því að leiða hugann að þeim sem hafa orðið valdir að umferðarslysum. Spurður um mikilvægi þess að leiða hugann að fólki sem lendir í aðstæðum eins og hans, segir Hálf- dán það afar mikilvægt. „Ég fann alveg að langflestir skildu að þetta væri slys og ekki mér að kenna, löngu áður en ég skildi það. Auð- vitað voru einhverjir sem voru ótrúlega reiðir út í mig og ég skil það alveg, ég heyrði seinna af því að hópur ungra stráka hefði ætlað að lemja mig,“ segir hann. „Ég skildi þá vel og vildi helst bara fara beint til þeirra og láta þá lemja mig, ég ætti það skilið en núna veit ég að þetta er ekki svona einfalt. Þeir elskuðu hana og voru að hugsa vel til hennar og enginn veit hvernig maður á að vera í svona aðstæðum,“ heldur Hálfdán áfram. „Núna veit ég að ég var líka fórn- arlamb í þessu slysi og ég hefði líka þurft að fá að heyra það strax. Ég er sterk manneskja og enn þá sterkari af því ég lenti í þessu, ég er búinn að vinna í sjálfum mér og þekki mig vel,“ segir hann. Hálfdán á sem fyrr segir tvö börn, ellefu ára strák og sjö ára stelpu. „Það að þau viti hvað gerðist getur kannski útskýrt fyrir þeim af hverju mitt líf hefur verið eins og það er. Ég varð lífhræddur eftir þetta. Keyrði ekki í mörg ár, varð lofthræddur og rosalega flughræddur, af því ég vissi hvað gæti gerst, hvernig allt gæti breyst,“ segir hann. Hálfdán segist þó reyna að yfir- færa kvíðann og hræðsluna ekki á sín börn. „Ég verð bara að passa þau og kenna þeim að fara varlega. Lífið er bara svona, allt getur gerst og maður veit aldrei hvenær eða hvern- ig. Ég er búinn að vera hálfa ævina að vinna úr þessu og núna ætla ég að njóta þess að vera hamingjusamur,“ segir Hálfdán. n Ef þér eða einhverjum sem þú þekkir líður illa skaltu leita þér hjálpar. Píeta samtökin eru opin allan sólar- hringinn s: 552 2218, einnig Hjálpar- sími Rauða krossins s: 1717, einnig er hægt að fá aðstoð í netspjallinu á 1717.is  Hún segir við mig: Hálfdán, þú ert í raun- inni búinn að vera í fangelsi í tíu ár, er þetta ekki komið gott af refsingu? 28 Helgin 19. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.