Fréttablaðið - 19.11.2022, Blaðsíða 4
Það hafa komið upp
mörg mál sem eru
mjög óþægileg fyrir
VG.
Ólafur Þ. Harðarson
stjórnmálafræðiprófessor
Við finnum mikið fyrir
því að veirur eru mjög
mikið á ferðinni,
venjulegt kvef og
slæmar iðrakveisur.
Runólfur Páls-
son, forstjóri
Landspítalans
BJÓÐUM UPP Á 37”-40”
BREYTINGAPAKKA
EIGUM NOKKRA BÍLA TIL
AFHENDINGAR Í NÓVEMBER
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
R A M
BÍLL Á MYND: RAM 3500 LARAMIE CREW CAB MEÐ 37” BREYTINGU, KASTARAGRIND OG LJÓSKÖSTURUM
Mikið álag hefur verið á
starfsfólki Barnaspítala
Hringsins undanfarið vegna
alls kyns pesta sem eru fyrr á
ferðinni en vant er. Yfirlæknir
hvetur foreldra ungbarna til
að takmarka aðgengi við aðra
á þessum tímum vegna RSV-
vírussins.
odduraevar@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL „Ég veit að undan-
farnar vikur og mánuði hefur verið
meira álag á Barnaspítalanum,“
segir Runólfur Pálsson, forstjóri
Landspítalans, spurður hvort Land-
spítalinn finni fyrir meira álagi
vegna fjölda pesta sem ganga nú
um samfélagið.
Ragnar Grímur Bjarnason yfir-
læknir hvetur foreldra með ung-
börn að takmarka umgengni við
aðra á þessum tíma.
Blaðið greindi í gær frá áhyggj-
um foreldra barna á leikskóla yfir
fjölda pesta sem nú ganga. Sum
börn fái pestir ofan í pestir og
sagði Óskar Reykdalsson, forstjóri
Heilsugæslunnar á höfuðborgar-
svæðinu, að það væri svo sannar-
lega meira álag á Heilsugæslunni
vegna fjölda umgangspesta líkt og
inflúensu.
„Við finnum mikið fyrir því að
veirur eru mjög mikið á ferðinni,
venjulegt kvef og slæmar iðra-
kveisur,“ segir Ragnar. Hann segir
það valda miklum áhyggjum hve
snemma inflúensan og RSV-vírus-
inn séu á ferðinni. Þetta nái sér
vanalega á strik upp úr áramótum.
„Inflúensa hefur ekki verið mikið
á ferðinni undanfarin Covid-ár og
því er mjög stór hluti yngri árganga
Foreldrar með ungbörn takmarki
umgengni við aðra vegna RSV-víruss
Ragnar G.
Bjarnason yfir-
læknir minnir á
að fólk eigi ekki
að heimsækja
spítalann þegar
það er veikt
heldur hringja
fyrst.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
sem ekki hefur verið útsettur fyrir
henni. Því eru margir sem geta
veikst.“
Sama megi segja um RSV-veiruna
sem leggist þungt á sérstaklega
yngri börn og aldraða en átti erfitt
uppdráttar á tímum sóttvarnaað-
gerða.
„Engin meðferð er til við RSV,
aðeins styðjandi meðferð, sum sé
að gefa öndunarstuðning ef þörf
er á og ef börn ná ekki að drekka,
vökva og mat með sondu,“ segir
Ragnar.
„Foreldrar með ungbörn ættu
að takmarka umgengni við aðra
á þessum tíma ef það er hægt, þar
sem RSV leggst sérstaklega þungt á
yngstu börnin. Það er til mikils að
vinna að börn sýkist af RSV eftir
sex mánaða aldur eða seinna.“
Ragnar bætir því við að mikil-
vægt sé að leita ekki á Barnaspítal-
ann eða aðra heilbrigðisþjónustu
að óþörfu. „Það eykur álag og tekur
athygli frá bráðveikum sjúkling-
um.“
Runólfur segir að spítalinn hafi
líka fundið fyrir fjölda umgangs-
pesta meðal hinna fullorðnu. „Við
höfum svo sannarlega orðið vör
við þetta. Við erum áfram með
einstaklinga sem koma á bráða-
móttökuna og þurfa að leggjast inn
og eru með Covid-19 og svo hefur
verið talsvert af tilfellum af inflú-
ensu og aðrar veirusýkingar líka.“ n
Nánar á frettabladid.is
kristinnhaukur@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Ólafur Þ. Harðarson,
prófessor í stjórnmálafræði við
Háskóla Íslands, segir það „opna
spurningu“ hvort Kristrún Frosta-
dóttir, formaður Samfylkingarinnar,
haldi vinsældum sínum eða hvort sá
stuðningur sem hún mælist með sé
nýjabrum. Það sé ekki óalgengt að
nýir foringjar fái vind í seglin en það
sé athyglisvert hversu hátt hún sé
að fara. Samkvæmt könnun Frétta-
blaðsins í gær treysta rúm 25 prósent
henni best allra formanna.
„Flestir eru sammála um að
Kristrún er mjög öflugur málsvari,“
segir Ólafur.
Hvað traust til Katrínar Jakobs-
dóttur varðar segir Ólafur alltaf
varasamt að bera saman spurn-
ingar í könnunum nema þær séu
nákvæmlega eins orðaðar. „Hins
vegar er breytingin svo mikil
miðað við aðrar kannanir að það
er full ástæða til að ætla að þetta sé
raunveruleg breyting,“ segir hann.
Ólafur telur tvennt valda þessu.
Annars vegar vinsældir Kristrúnar
og hins vegar sé spenna í ríkis-
stjórnarsamstarfinu eftir faraldur-
inn, það er að málefnaágreiningur
Sjálfstæðisf lokksins og Vinstri
grænna sé sífellt að koma betur
í ljós og þar af leiðandi óánægja.
Fylgi stjórnarflokkanna og stjórn-
arinnar hafi verið undir 50 pró-
sentum í nokkurn tíma. „Það hafa
komið upp mörg mál sem eru mjög
óþægileg fyrir VG,“ segir Ólafur. Má
nefna til dæmis Íslandsbankasöl-
una og brottvísanir hælisleitenda.
„Vinsældir foringja eru ekki
áskrift á aukið fylgi,“ segir Ólafur.
Þrátt fyrir vinsældir Katrínar hafi
Vinstri græn tapað fylgi árið 2021
en Framsókn hefur unnið stóra
sigra án persónulegra vinsælda Sig-
urðar Inga. Vinsældir geti þó styrkt
f lokkinn innbyrðis og út á við, til
dæmis í viðræðum um stjórnar-
myndun.
Hvað varðar litlar vinsældir
Bjarna Benediktssonar utan Sjálf-
stæðisflokksins segir Ólafur að það
gefi til kynna að kjósendahópur
f lokksins sé orðinn hugmynda-
fræðilega einsleitari en áður. Skoð-
anir f lokksmanna rými illa við
annarra nema Miðflokksmanna. n
Telur opna spurningu hvort vinsældir Kristrúnar haldi áfram
kristinnpall@frettabladid.is
MANNFJÖLDI Samkvæmt nýjustu
tölum Þjóðskrár hefur erlendum
ríkisborgurum búsettum hér fjölg-
að um 68 prósent á fimm árum og
telja nú 63.757. Í árslok 2017 voru
tæplega 38 þúsund erlendir ríkis-
borgarar hér. Pólskum ríkisborg-
urum fjölgar um 1.951 og eru nú um
sex prósent íbúa á Íslandi.
Þá fjölgaði fólki frá Úkraínu um
1.875 frá 1. desember sl. og eru nú
2.114. Með því eru Úkraínumenn
orðnir fimmti fjölmennasti hópur
erlendra ríkisborgara hérlendis. n
Sextíu þúsund eru
erlendir borgarar
bth@frettabladid.is
SJÁVARÚTVEGUR Fiskistofa hefur
aldrei sent upp dróna í ár til að
fylgjast með veiðum í trollbátum. Í
fyrra voru sautján sambærileg flug.
Þetta kemur fram í svari Svan-
dísar Svavarsdóttur sjávarútvegs-
ráðherra við fyrirspurn Lilju Rafn-
eyjar Magnúsdóttur.
Í svörunum kemur fram að árið
2021 voru alls 572 drónaf lug á
vegum Fiskistofu en 221 það sem af
er þessa árs. n
Fiskistofa dregur
úr drónaeftirliti
Frá fullveldishlaupi Pólverja.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
4 Fréttir 19. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ