Fréttablaðið - 19.11.2022, Blaðsíða 6
Samfylkingin bætir við
sig 5,6 prósentum en
Píratar tapa 5,8.
Svör þeirra sem tóku afstöðu
Sjálfstæðisflokkurinn
Samfylkingin
Framsóknarflokkurinn
Píratar
Viðreisn
Vinstri græn
Flokkur fólksins
Sósíalistaflokkurinn
Miðflokkurinn
21,1%
19,1%
14,6%
11,8%
10,6%
8,0%
6,4%
4,2%
4,2%
Samfylking er hástökkvari
nýrrar könnunar Prósents
um fylgi stjórnmálaflokk-
anna. Píratar tapa mestu og
Framsóknarflokkurinn dalar
einnig.
kristinnhaukur@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Sjálfstæðisflokkur og
Samfylking bæta við sig fylgi og
mælast nú tveir afgerandi stærstu
f lokkarnir. Þetta kemur fram í
nýrri könnun Prósents á fylgi þeirra
flokka sem bjóða fram til Alþingis.
Framsóknarflokkurinn og Píratar
gefa eftir frá fyrri könnun.
Samfylkingin er hástökkvarinn
að þessu sinni og bætir við sig 5,6
prósentum. Mælist með 19,1 pró-
sent en fékk 13,5 prósent í síðustu
könnun Prósents, sem gerð var í
júní. Eins og Fréttablaðið greindi
frá í gær mælist Kristrún Frosta-
dóttir, nýr formaður flokksins, nú sá
stjórnmálaleiðtogi sem landsmenn
bera mest traust til. Það eru 25 pró-
sent svarenda.
Sjálfstæðisf lokkurinn mælist
með 21,2 prósenta fylgi. Flokkurinn
hefur verið rísandi í könnunum Pró-
sents á árinu. Í apríl mældist hann
með 17,9 prósenta fylgi og 18,2 í
júní. Nú hefur f lokkurinn rofið 20
prósenta múrinn og mælist stærsti
f lokkur landsins. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur umtalsvert meira fylgi
en Bjarni Benediktsson formaður,
sem rúmlega 15 prósent svarenda
treysta best.
Sá flokkur sem tapar mestu fylgi
milli kannana eru Píratar, það er 5,8
prósentum. Píratar mælast nú með
11,8 prósenta fylgi en höfðu 17,6
prósent í júní og voru næststærsti
flokkurinn.
Framsóknarf lokkurinn, sem
unnið hefur stórsigra í síðustu
alþingis- og sveitarstjórnarkosn-
ingum, tapar 2,7 prósentum milli
kannana. Hann mælist nú með 14,6
prósent og er þriðji stærsti f lokkur-
inn.
Viðreisn bætir hins vegar við sig
2,7 prósentum. Mælist með 10,6
prósent nú en hafði 7,9 í júní.
Fylgi Vinstri grænna hefur verið
sígandi á árinu. Fylgið mælist nú
slétt 8 prósent, en var 9 í júní og 9,6
í apríl. Eins og kom fram í könnun-
inni í gær er Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra ekki lengur sá
stjórnmálaleiðtogi sem kjósendur
bera mest traust til en hún hafði
áberandi forskot á aðra fyrir ári
síðan.
Flokkur fólksins mælist með 6,4
prósent, Sósíalistaflokkurinn með
4,2 sem og Miðflokkurinn. Ef þetta
væru niðurstöður kosninga myndi
Tveir flokkar fylgismestir í könnun
stór hluti atkvæða falla niður dauð-
ur í ljósi þess að þröskuldurinn til
að hljóta jöfnunarþingsæti er 5 pró-
sent.
Samanlagt mælast stjórnarflokk-
arnir þrír með 43,8 prósenta fylgi,
sem er ögn minna fylgi en í síðustu
könnun. Sé fylgið reiknað í þing-
mannafjölda er stjórnin fallin með
30 þingmenn á móti 33.
Sjálfstæðisflokkurinn myndi fá
15 þingmenn, Samfylking 14, Fram-
sóknarf lokkur 10, Píratar 8, Við-
reisn 7, Vinstri græn 5 og Flokkur
fólksins 4 menn kjörna.
Tiltölulega lítill munur er á
svörum milli kynja. Sjálfstæðis-
f lokkurinn, Píratar, Viðreisn og
Miðflokkurinn mælast ögn stærri
hjá körlum en konum. Samfylking-
in, Framsóknarflokkurinn, Vinstri
græn, Flokkur fólksins og Sósíalista-
flokkurinn höfða meira til kvenna.
Þegar kemur að aldursdreifingu
fylgisins þá er það nokkuð jafnt hjá
Sjálfstæðismönnum. Samfylkingin
nýtur mests fylgis hjá eldri kjós-
endum en Framsóknarflokkurinn
og Píratar hjá kjósendum undir 25
ára aldri.
Framsóknarf lokkurinn mælist
stærsti f lokkurinn á landsbyggð-
inni, með 23 prósenta fylgi, en hefur
aðeins 10 prósent á höfuðborgar-
svæðinu. Píratar hafa hins vegar
þrefalt meira fylgi á höfuðborgar-
svæðinu en á landsbyggðinni.
Könnunin var netkönnun fram-
kvæmd 14. til 17. nóvember. Úrtakið
var 2.600 og svarhlutfallið 51,3 pró-
sent. n
Begga Kummer
Innanhússstílisti hjá BK DECOR
Góð ráð
frá BK Decor
Opnaðu myndavélina í símanum þínum
og skannaðu QR kóðann
parkixslippfelagid.is
bth@frettabladid.is
S TJÓR N M ÁL „Þessar kannanir
hreyfa ekkert sérstaklega við mér,“
segir Katrín Jakobsdóttir forsætis-
ráðherra um niðurstöður nýrrar
könnunar Prósents þar sem hún
nýtur trausts tæplega 18 prósenta
þjóðarinnar.
„Ég segi bara vel gert hjá nýjum
formanni Samfylkingarinnar að
fá þennan meðbyr með sér,“ bætir
hún við.
„Eins og allir vita, sem vita eitt-
hvað um pólitík, er það hlutverk
forsætisráðherra að halda saman
ríkisstjórn. Það er f lókið verkefni,“
segir Katrín. n
Flókið að halda
ríkisstjórn saman
Katrín Jakobs-
dóttir, forsætis-
ráðherra
bth@frettabladid.is
STJÓRNMÁL „Auðvitað er gaman að
fá svona viðbrögð við könnun. Þessi
mæling hvetur okkur til að halda
áfram á fyrri braut,“ segir Kristrún
Frostadóttir, nýbakaður formaður
Samfylkingarinnar og hástökkvari
í mælingu Prósents á trausti lands-
manna til oddvita stjórnnmála-
flokkanna.
Kristrún segist þakklát. Margt
hafi komið henni á óvart eftir að
hún tók til starfa í pólitík, mælingin
sé eitt af því.
„Þetta er fyrst og fremst ánægju-
leg mæling en ég er mjög meðvituð
um að vegferðin er rétt að hefjast og
hún verður löng,“ segir Kristrún.
„Ég er þakklát fyrir að hafa náð
eyrum fólks en ég held að það verði
að setja þessa mælingu í samhengi
við atburði síðustu vikna. Traust
til stjórnmála og Alþingis er mjög
vandmeðfarið.“ n
Kristrún þakklát
Kristrún Frosta-
dóttir, formaður
Samfylkingar-
innar
Bjarni Benediktsson og Kristrún Frostadóttir hlutu bæði kosningu sem formenn sinna flokka í haust.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
6 Fréttir 19. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ