Fréttablaðið - 19.11.2022, Blaðsíða 16
76,7%
Suðaustur-Asíubúa
telja Kína vera áhrifa-
mesta efnahagsveldi
álfunnar.
JOEBOXER.IS | KRINGLAN 4-12 (1. HÆÐ) | 103 REYKJAVÍK | S. 5332009
Alþjóðleg ráðstefna um sam-
starf Asíu- og Kyrrahafsríkja
fór fram í Bangkok í Taílandi
í vikunni og var þetta í fyrsta
sinn sem ráðstefnan var
haldin með eðlilegu sniði
síðan heimsfaraldurinn skall
á. Fjarvera Joe Biden Banda-
ríkjaforseta á ráðstefnunni
veitti Xi Jinping tilvalið tæki-
færi til að stela senunni.
helgisteinar@frettabladid.is
ALÞJÓÐAMÁL Ráðstefna APEC-
ríkjanna er árlegur viðburður þar
sem stjórnarleiðtogar tuttugu og
eins Kyrrahafsríkis mæta og ræða
stjórnmála- og viðskiptatengd mál-
efni sín á milli. Hlutverk ríkjanna er
meðal annars að skapa nýja mark-
aði fyrir hrávöru og landbúnaðar-
vörur utan Evrópu.
Frá því að ráðstefnan í ár byrjaði
þann 16. nóvember hafa mótmæli
og stjórnmálaspenna einkennt ráð-
stefnuna í taílensku höfuðborginni.
Íbúar í Bangkok hafa haldið stöðug
mótmæli gegn forsætisráðherra
landsins, Prayuth Chan-ocha, í
nokkur ár frá því að hann tók við
embættinu undir neyðarlögum
valdaráns sem átti sér stað árið
2014.
Í september á þessu ári ákvað
hæstiréttur Taílands að framlengja
valdatíma Prayuth fram til næstu
kosninga. Mótmælendur hafa nýtt
ráðstefnuna til að vekja athygli á
gremju sinni og mættu þeir tug-
þúsundum lögreglu- og hermanna
á götum borgarinnar meðan á ráð-
stefnunni stóð.
Stjórnarleiðtogar neyddust einn-
ig til að funda vegna fregna um að
Norður-Kóreumenn hefðu skotið
á loft langdrægri eldflaug sem gæti
borið kjarnorkuvopn alla leið til
Bandaríkjanna. Japönsk stjórnvöld
sögðu að eldflaugin hefði lent innan
efnahagslögsögu þeirra og sögðu
bandarísk yfirvöld eldflaugaskotið
vera blygðunarlaust brot á fjölda
ályktana öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna.
Varaforseti Bandar ík janna,
Kamala Harris, fundaði meðal ann-
ars með forsætisráðherrum Japans
og Suður-Kóreu, en hún er stödd á
ráðstefnunni í stað Joe Biden sem
sagðist ekki geta mætt sökum brúð-
kaups hjá barnabarni sínu.
Fjarvera Joe Biden á ráðstefnunni
setur Bandaríkin í erfiða stöðu
gagnvart þjóðum innan Sambands
Suðaustur-Asíuríkja. Hún styrkir
þann hugsunarhátt að Bandaríkin
líti ekki lengur á Asíu sem efnahags-
legt forgangsatriði og að bandarísk
áhrif á svæðinu muni halda áfram
að dvína. Samkvæmt rannsókn um
stöðu Suðaustur-Asíu sem gerð var
af ISEAS-háskólanum í Singapúr
töldu 76,7 prósent aðspurðra Kína
vera áhrifamesta efnahagsveldi
álfunnar.
Í opnu bréfi til æðstu leiðtoga ráð-
stefnunnar gagnrýndi Xi Jinping
það sem hann kallaði „kalda-stríðs-
hugsun, valdagræðgi og aflokunar-
stefnu“, lýsandi orð sem stjórnvöld
í Peking hafa oft bendlað við Banda-
ríkin.
„Kyrrahafssvæðið er ekki bak-
garður neins og ætti heldur ekki
að vera vígvöllur fyrir valdasam-
keppni. Tilraunir til að heyja nýtt
kalt stríð verða aldrei leyfðar af
okkar fólki á okkar tíma,“ segir Xi
og bætir við að allar tilraunir til
að valda tjóni á iðnaði og aðfanga-
keðjum muni aðeins skemma fyrir
efnahagssamstarfi ríkjanna. n
Ráðstefna APEC enn eitt
dæmi um valdaskipti í Asíu
Mótmæli gegn forsætisráðherra Taílands voru áberandi meðan á ráðstefnunni stóð. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
ninarichter@frettabladid.is
TÆKNI Samfélagsmiðillinn Twitter
er í ótryggri stöðu og spurningar
verða sífellt háværari varðandi
getu fyrirtækisins til að halda áfram
rekstri. Hundruð starfsmanna hafa
sagt upp störfum síðustu daga eftir
póst sem eigandi fyrirtækisins, Elon
Musk, sendi starfsmönnum á mið-
vikudag.
Í póstinum setti eigandinn starfs-
fólkinu þá kosti að vinna langa
vinnudaga af mikilli elju eða láta
af störfum. Hann bað fólkið vin-
samlegast að halda áfram að fylgja
stefnu fyrirtækisins og forðast að
ræða trúnaðarupplýsingar tengdar
fyrirtækinu á samfélagsmiðlum, við
fjölmiðla eða annars staðar.
Öllum skrifstofum fyrirtækisins
var í framhaldinu læst fram á mánu-
dag.
Meðal þeirra sem hafa sagt upp
störfum eru lykilpersónur úr starfs-
liði fyrirtækisins sem séð hafa um
rekstur mikilvægra kerfa. Sam-
kvæmt heimildum The Washington
Post er nokkur hluti kerfa alfarið án
eftirlits sem stendur.
Fjöldi notenda hefur hafið undir-
búning og flutning yfir á önnur og
sambærileg kerfi og er samfélags-
miðillinn Mastodon meðal þeirra
sem oftast eru nefndir í því sam-
hengi.
Þá hafa margir þegar afritað
gögn og yfirgefið miðilinn. Þar á
meðal eru frægir einstaklingar með
gríðarlegan fjölda fylgjenda, meðal
annarra fyrirsætan Gigi Hadid, sem
lokaði reikningi sínum eftir tíu ár á
miðlinum. n
Flótti frá Twitter og framtíðin er óljós
Elon Musk,
nýr eigandi
Twitter
16 Fréttir 19. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ