Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1972, Page 49
III. kafli.
FÆBINGAR A ISLMDI 1972.
III, 1. Skráning og söfnun upplýsinga.
Hér fara á eftir niðurstöður úrvinnslu úr fæðingatil-
kynningum ársins 1972.
Verður fylgt sömu niðurröðun efnis, sem fæðingatilkynning
veitir upplýsingar um. Þar er fyrst lýst þætti mæðra og
síðar barna.
Hagstofa Islands, sem fær fyrsta eintak fæðingatilkynninga,
vinnur einnig margvíslegar upplýsingar úr sömu gögnum í Mann-
Ijöldaskýrslur. Hagstofan gefur einstaklingum nafnnúmer, fæð-
inganúmer, og vinnur úr þeim þáttum er snerta lögheimili, stöðu-
eða atvinnu, ríkisborgararétt og kirkjufélag bæði hjá móður og
föður. Er þar gerð skýrsla um hjúskap, óvígða sambúð og unnið
úr viðbótaráritun presta á fæðingatilkynningum, sem Hagstofan ein
fær til úrvinnslu. Höfundar hafa því leitast við að vinna ekki
'’ir þeim atriðum fæðingatilkynninga, sem Hagstofan sinnir fyrst og
íremst.
Hins vegar verður ekki hjá því komizt að nokkur atriði komi til
úrvinnslu hjá báðum aðiljum, þrátt fyrir nána samvinnu á milli.
Mynd 9 sýnir eyðublað fyrir nýju fæðingartilkynninguna og
ennfremur eru birtar þær skýringar sem henni fylgja.
47