Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1972, Qupperneq 92
2.
Flestar tilkynningar berast reglulega til Fæðingadeildar
Landspítalans, þar sem skráning þeirra og undirbúningur
tölvuúrvinnslu er gerður jafnharðan og þær berast.
Er því auðvelt ao fylgjast með fæðingum í landinu allt
árið. Heldur það við þeim nánu tengslum, sem eru á milli
deildarinnar og annarra fæðingastofnana landsins.
3. Tölvuúrvinnsla fer fram reglulega á þriggja mánaða fresti,
og því ætti framvegis að vera auðvelt að Ijúka úrvinnslu
hvers árs í marz-apríl á næsta ári.
4. Góð samvinna og þjálfun þeirra, sem við úrvinnslu starfa
og náin samvinna við Hagstofu Islands og landlæknisembættið
skipta einnig máli.
Skv. fyrstu reynslu eru helstu vankantar þessir:
1. Stöku sinnum hefur skort nákvæmni f skráningu fæðingartil-
kynningar og stundum dregist að senda tilkynningu til úr-
vinnslu. Ber þetta við einkum, ef óvant fólk leysir vanar
Ijósmæður og lækna af eða tilkynning misferst í sendingu.
Ávallt er þegar bætt úr með beinu sambandi við viðkomandi
aðilja og viðbótarupplýsinga aflað. Þó ber við, að deild-
inni sé ekki kunnugt um, að fæðing hafi átt sér stað á stöku
stað. Örfáar tilkynningar berast ekki fyrr en eftir nokkrar
vilcur, en slíkt raskar að sjálfsögðu heildarútkomu, ef úr-
vinnslu er annars lokið ákveðið tímabil. Kemur þó aðeins að
sök, þegar ársuppgjöri á að vera lokið. Ofannefnd vandkvæði
heyra nú til undantekninga.
2. Þeir liðir fæðingartilkynningar, þar sem skrá á afbrigði við
meðgöngu og fæðingar og sjúkdóma nýbura, hafa ekki verið nægi-
lega skilgreindir frá upphafi. Er þessum vandkvæðum lýst í
kafla I, 2 og III, 8. Nú eru fyrirhugaðar nákvæmar breytingar
ingar á fæðingartilkynningum í samráði við Hagstofu Islands.
Verður þar, auk breytinga á röð atriða, skilgreint nánara,
hvað telja skuli fram af sjúkdómum, og samdar leiðbeiningar
þar að lútandi, sem auðvelda samræmingu í skráningu. Mun
endurskoðun gerð haustið 1974 og endurbætt fæðingartilkynning
taka gildi l.janúar 1975.
90