Fréttablaðið - 24.11.2022, Síða 6
Afstaða til aðildar að Evrópusambandinu eftir flokkum
n Hlynnt(ur) n Hvorki né n Andvíg(ur)
Píratar
Viðreisn
Samfylkingin
Sósíalistaflokkurinn
Vinstri græn
Flokkur fólksins
Framsóknarflokkurinn
Sjálfstæðisflokkurinn
Miðflokkurinn
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Þrátt fyrir að tvö ár séu
liðin frá því að ríkisstjórnin boðaði
mikilvæg skref vegna þjóðarleik-
vangs í knattspyrnu eru Íslendingar
engu nær þegar kemur að vegferð-
inni að skóf lustungu að nýjum
þjóðarleikvangi í knattspyrnu.
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður
Knattspyrnusambands Íslands,
segir að valkostagreining breska
ráðgjafarfyrirtækisins AFL sé enn
gild þar sem gert var ráð fyrir breyti-
legum kostnaði.
Vanda er spurð að því hvort
skýrslan sé orðin einfaldlega úrelt
vegna þeirra breytinga sem hafa átt
sér stað í efnahagsmálum landsins
á þeim tveimur árum sem eru liðin
frá því að skýrslan kom út.
„Allar kostnaðartölurnar eru í
reiknilíkani og það er hægt að upp-
færa þær og breyta eftir því hvaða
leið er farin, hvenær sem það verður.
Það ætti ekki að vera mikið mál að
uppfæra þessar tölur.“
Í skýrslunni sem kom út árið 2020
voru lagðir fram fjórir möguleikar.
Einn þeirra var að ráðast í lágmarks-
endurbætur á núverandi velli og
annar að uppfæra völlinn í takt við
kröfur Alþjóða- og evrópska knatt-
spyrnusambandsins.
Að lokum voru lagðir fram mögu-
leikarnir á 15.000 manna velli eða
fjölnotaleikvangi sem gæti tekið
17.500 í sæti og voru báðir mögu-
leikar skoðaðir með og án opnan-
legs þaks. Ekki var talið fýsilegt til
langs tíma að vinna í úrlausnum á
Laugardalsvelli og taldi AFL völl
með sætum fyrir 15.000 áhorfendur
hagkvæmasta kostinn.
Vanda segist vonast til þess
að markaðskönnun sem Þjóðar-
leikvangur, félag sem var stofnað
af hálfu KSÍ, íslenska ríkisins og
Reykjavíkurborgar í tengslum við
nýjan þjóðarleikvang í knattspyrnu,
verði síðasta skrefið áður en tekin
verður ákvörðun um nýjan leik-
vang.
„Þjóðarleikvangur er að undir-
búa markaðskönnun, sem vonandi
fer af stað sem fyrst. Eftir því sem
mér skilst er þetta eitt af lokaskref-
unum áður en ákvörðun er tekin.
Þarna er verið að kanna mögu-
leika með rekstraraðila og vonandi
verður þetta síðasta púslið áður en
ákvörðun verður tekin.“ n
Undirbúa markaðskönnun vegna nýs Laugardalsvallar
Samkvæmt nýrri könnun
Prósents eru fleiri óákveðnari
en áður hvað varðar aðild að
Evrópusambandinu. Stuðn-
ingurinn hefur minnkað
innan Samfylkingarinnar.
kristinnhaukur@frettabladid.is
STJÓRNMÁL 42,8 prósent eru hlynnt
aðild Íslands að Evrópusambandinu
en 35,1 er andvígt samkvæmt nýrri
könnun Prósents. Stuðningurinn
hefur dalað mest hjá kjósendum
Samfylkingar.
Þegar könnunin er borin saman
við sambærilega könnun Prósents
frá því í júní sést að þeim sem eru
fylgjandi aðild að Evrópusam-
bandinu hefur fækkað um 5,5 pró-
sent. Þeim sem eru andvíg aðild
hefur hins vegar aðeins fjölgað um
1,2 prósent. Fleiri eru hlutlausari
en áður, það er hefur fjölgað úr 17,7
prósentum í 22,1.
Mestu munar um kjósendur
Samfylkingar. Í júní voru þeir Evr-
ópusinnaðastir allra því 84 prósent
þeirra voru hlynnt aðild en aðeins
5 prósent á móti. Nú eru aðeins 67
prósent f lokksmanna fylgjandi
aðild en 12 prósent á móti. Mælist
nú stuðningurinn mestur hjá Píröt-
um og Viðreisn, 74 og 68 prósent, en
Samfylkingin er aðeins í þriðja sæti.
Fleiri eru fylgjandi aðild en á
móti henni innan tveggja annarra
stjórnmálaflokka, það er 51 prósent
Sósíalista styður aðild og 39 prósent
Vinstri grænna. Hjá Flokki fólksins
styðja 26 prósent aðild, 24 prósent
Framsóknarmanna, 19 prósent
Sjálfstæðismanna og aðeins 11 pró-
sent Miðflokksmanna.
„Það getur verið að fólk sem
tengir sig við jafnaðarstefnuna í
grunninn en hefur varnagla gagn-
vart Evrópusambandinu sé að koma
aftur til Samfylkingarinnar og vilji
styðja hana núna,“ segir Kristrún
Frostadóttir, nýkjörinn formaður
Samfylkingarinnar. En eins og
Fréttablaðið greindi frá um helgina
sýnir könnun Prósents meira en 5
prósenta fylgisaukningu flokksins.
„Samfylkingin er Evrópusinn-
aður f lokkur en stór og breiður
jafnaðarmannaflokkur á fyrst og
fremst að sameinast um velferðar-
málin. Mér finnst jákvætt að fólk
styðji þessa velferðarpólitík en að
það séu ekki endilega allir sam-
mála um þetta atriði, Evrópusam-
bandsaðild. Samfylkingin á einmitt
að vera staður þar sem við getum
rökrætt um svona mál,“ segir Krist-
Stuðningur við aðild Íslands að ESB
hefur minnkað innan Samfylkingar
rún. „Ég vil ekki að það hvernig fólk
staðsetur sig gagnvart Evrópusam-
bandinu verði einhver fyrirstaða
þegar kemur að stóra verkefninu
sem Samfylkingin setur í forgang,
að endurreisa velferðarkerfið og
almannaþjónustuna á Íslandi.“
Á höfuðborgarsvæðinu styðja
47 prósent aðild að Evrópusam-
bandinu en 30 prósent eru á móti.
Nokkuð hefur dregið úr stuðningi
við aðild á landsbyggðinni frá því
í júní þegar naumur meirihluti var
fylgjandi aðild. Nú eru 35 prósent
fylgjandi en 44 á móti.
Ekki er mikill munur á afstöðu
kynjanna þegar kemur að Evrópu-
sambandsaðild. Karlar hafa hins
Laugardalsvöllur er þjóðarleikvangur Íslendinga. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Vanda Sigur-
geirsdóttir, for-
maður KSÍ
vegar sterkari skoðanir á málefn-
inu en konur. 45 prósent þeirra eru
fylgjandi aðild en 36 prósent á móti.
Hjá konum eru hlutföllin 40 og 34
prósent.
Ekki er heldur að sjá mikinn mun
á afstöðu út frá aldri. Í öllum aldurs-
hópum mælist stuðningurinn á
bilinu 38 til 48 prósent. Andstaðan
mælist hins vegar áberandi mest
hjá eldri borgurum, 44 prósent, en
aðeins 26 prósent hjá kjósendum
undir 25 ára aldri. 30 prósent þeirra
hafa ekki skoðun á hvort Ísland ætti
að sækja um Evrópusambandsaðild
en aðeins 15 prósent 65 ára og eldri.
Fylgi mælist milli stuðnings við
Evrópusambandsaðild og tekna. 48
prósent þeirra sem hafa 800 þúsund
krónur eða meira í mánaðarlaun
styðja aðild en 38 prósent þeirra
sem hafa undir 600 þúsund krónum
í laun.
Könnunin var netkönnun fram-
kvæmd 14. til 17. nóvember. Úrtakið
var 2.600 og svarhlutfallið 51,3 pró-
sent. n
Kristrún Frosta-
dóttir, formaður
Samfylkingar-
innar
lovisa@frettabladid.is
ÍRAN Í dag fer fram í mannréttinda-
ráði Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í
Genf aukafundur um mannrétt-
indamál í Íran. Fundurinn er að
beiðni Íslands og Þýskalands til að
knýja á um að SÞ hefji markvissa
gagnaöf lun svo síðar megi draga
gerendur til ábyrgðar fyrir dómi.
Utanríkisráðherrar Íslands og
Þýskalands, Þórdís Kolbrún Reyk-
fjörð Gylfadóttir og Annalena
Baerbock, taka þátt í umræðunni
í mannréttindaráðinu sem hefst
klukkan 9.00 og er streymt á vef
Sameinuðu þjóðanna. n
Þórdís í Genf
til að ræða Íran
benediktboas@frettabladid.is
UMFERÐARMÁL Höskuldur R. Guð-
jónsson samgönguverkfræðingur
vildi ekki ræða almenningssam-
göngur og Borgarlínuna á fundi
íbúa ráðs Háaleitis- og Bústaða-
hverfis á kynningu á umferðar,
skipulags- og öryggismálum í borg-
arhlutanum.
Ráðið þakkaði þó fyrir kynn-
inguna en í bókun ráðsins er lögð
áhersla á að öllum framkvæmdum
sem tengjast umferðaröryggi í
hverfinu verði f lýtt eins og auðið
er. n
Vildi ekki ræða
Borgarlínuna
Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfa-
dóttir, utanríkisráð-
herra
benediktboas@frettabladid.is
ÁRBORG Fyrirtækið Ljósleiðarinn
hefur tengt öll heimili og fyrirtæki
á Stokkseyri við ljósleiðara.
„Sveitarfélagið Árborg fagnar
mjög þessu framfaraskrefi sem
mun sannarlega stuðla að auknum
lífsgæðum íbúa okkar og auka sam-
keppnishæfni svæðisins,“ segir
Fjóla Steindóra Kristinsdóttir
bæjarstjóri. n
Stokkseyri tengd
við ljósleiðara
Stuðningurinn við aðild Íslands að ESB hefur dalað mest hjá kjósendum Samfylkingar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
6 Fréttir 24. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ