Fréttablaðið - 24.11.2022, Síða 12

Fréttablaðið - 24.11.2022, Síða 12
Rússneski herinn réðst inn í Úkraínu þann 24. febrúar síð- astliðinn. Tugþúsundir hafa látið lífið og milljónir manna flúið heimili sín. Stríðið mun líklega halda áfram að hafa áhrif á komandi kynslóðir. helgisteinar@frettabladid.is ALÞJÓÐAMÁL Í dag eru liðnir níu mánuðir frá því að Vladímír Pútín fyrirskipaði sína „sérstöku hernað- araðgerð“ og reyndi að hertaka Úkraínu. Hættan á átökum hafði vofað yfir mánuðum saman og höfðu meðal annars tugþúsundir rússneskra hermanna safnast við landamæri Úkraínu skömmu fyrir innrás. Á mánudaginn voru liðin níu ár frá því að mótmælin byrjuðu á Maidan-torginu í Kænugarði. For- seti landsins á þeim tíma, Viktor Viktor Janúkovitsj, hafði ákveðið að hætta við samning um nánara samstarf Úkraínu við Evrópusam- bandið og undirritaði þess í stað samstarfssamning við Rússland. Mikil mótmæli brutust út víðs vegar um landið á meðal Evrópusinnaðra Úkraínumanna og nokkrum mán- uðum síðar átti sér stað raunveru- leg bylting þar sem Janúkovitsj var steypt af stóli og flúði land. Vladímír Pútín leit á þetta sem valdarán, skipulagt af Bandaríkj- unum og vesturveldunum og í kjöl- farið var rússneski herinn sendur á Krímskaga sem var síðan innlim- aður inn í rússneska sambandsríkið eftir atkvæðagreiðslu. Rússneski herinn var einnig sendur til austur- hluta Úkraínu til að styðja við bakið á úkraínskum aðskilnaðarsinnum í Donbas-héraðinu. Þessir atburðir mörkuðu upphaf hernaðardeilna milli Rússlands og Úkraínu og stríðsins sem geisar í dag. Upprunalega virtist sem svo að stjórnvöld í Rússlandi hafi búist við litlum sem engum mótþróa frá úkraínska hernum og að aðgerðir rússneska hersins myndu ganga jafn hratt og greiðilega fyrir sig og árið 2014. Áætlað var að forseti landsins og fyrrum grínistinn, Volodymyr Zelenskyj, myndi flýja land og úkra- ínska þjóðin myndi þar með falla í hendur Mosku. Níu mánuðum síðar er stríðið enn í gangi og ekki er útlit fyrir að átökum muni linna á næstu misser- um. Tugþúsundir hafa látið lífið og fleiri milljónir hafa flúið heimili sín. Pólitíska landslagið um heim allan hefur breyst og í fyrsta sinn í áratugi eru þjóðarleiðtogar daðrandi við þá hugmynd að nota kjarnorkuvopn gegn andstæðingum sínum. Erfitt hefur reynst að sannreyna þær tölur um raunverulegt mannfall í þessu stríði þar sem mögulegt er að lagfæra slíkar staðreyndir í áróðurs- skyni. En ljóst er að efnahagslegur kostnaður stríðsins var rússneskum stjórnvöldum mun meiri en þau gerðu ráð fyrir. Vestræn ríki voru f ljót að beita efnahagsþvingunum og fyrirtæki á borð við Spotify, Coca-Cola, Star- bucks og IKEA hafa öll yfirgefið landið. FIFA tók einnig ákvörðun um að banna Rússlandi að keppa í heimsmeistaramótinu í Katar í ár og veitingastaðurinn McDonald‘s, sem varð nokkurs konar tákn nýs upphafs þegar hann opnaði í Mosku undir lok kalda stríðsins, er farinn líka. Stríðið færði sig einnig nýlega um set þegar tveir létust eftir að eld- f laug lenti í pólskum bæ skammt frá landamæri Úkraínu. Talsmenn NATO og pólsku ríkisstjórnarinnar sögðu að sprengingin hefði verið slys sem kom að öllum líkindum frá úkraínsku loftvarnakerfi. Atvikið var engu að síður lítið alvarlegum augum þar sem árás á eitt NATO ríki er túlkað sem árás á þau öll. Af leiðingar stríðsins munu einnig halda áfram að hafa áhrif á komandi kynslóðir. Samkvæmt samtökunum Save the Children þá hafa 900 börn að meðaltali fæðst á dag í Úkraínu í gegnum stríðið sem hefur haft alvarleg áhrif á heilsu mæðra og ungbarna. Þar að auki hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unin greint frá árásum á 703 heilsu- gæslustöðvar um allt landið. Hans Kluge, forstjóri Evrópu- sk r ifstof u Alþjóðaheilbr igðis- málastofnunarinnar, segir að þær heilsugæslustöðvar sem ekki hafa orðið fyrir árásum séu engu að síður í vandræðum sökum árása á orkuinnviði Úkraínu. „Fæðingar- deildir þurfa hitakassa, blóðbankar þurfa kæliskápa og gjörgæslu- deildir þurfa öndunarvélar,“ segir Kluge og bætir við allir þurfi á orku að halda. n Sígild söguperla fyrir nýja kynslóð múmínálfaaðdáenda. Gerður Kristný íslenskaði. Sígildar söguperlur fyrir nýja kynslóð múmínálfaaðdáenda. Gerður Kristný íslenskaði. FA LLEGT ÆV INTÝR I LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið virka daga 10–18 | Laugardaga 11–17 | Sunnudaga 12–16 | www.forlagid.is Úkraína hefur varist vel í níu mánuði Íbúi í Kherson horfir yfir eyðilagða verslunarmiðstöð eftir rúmlega átta mánaða umsátur. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Vilniansk Úkraína – níu mánuðum e ir innrás Kharkiv Belgorod Ú K R A Í N A Ú K R A Í N A RÚSSLAND RÚSSLAND Mykolajívska KHERSON- HÉRAÐ Izyum Bakhmut Dnípro SVARTAHAF Dnipro-áin Donetsk Lúhansk Kherson Melítopol Mariupol 50 mílur 80 km KRÍMSKAGI 3 Borgir undir stjórn Rússa Rússnesk svæði Rússnesk sókn Úkraína unnið til baka Átakasvæði Rússnesk svæði fyrir 24. febrúar Kyiv: Ukrainian security forces raid HQ of Russian-backed wing of Ukrainian Orthodox Church, suspecting “subversive activities” Belgorod: Russia fortifying “Zasechnaya Line” defences along border amid scaremongering claims of imminent Ukrainian attack © GRAPHIC NEWSHeimildir: DW, Sameinuðu þjóðirnar 1 2 Vilniansk: Russian missile strike destroys maternity ward of hospital near Zaporizhya, killing newborn Sevastopol: Multiple Ukrainian drones shot down near power station and elsewhere in Crimea. Russian authorities raise terrorist threat level to high until at least Dec 7 3 4 LÚHANSK- HÉRAÐ DONETSK- HÉRAÐ ZAPORÍZJA- HÉRAÐ Kænugarður Ú K R A Í N A RÚSSLAND Odesa Sevastopol Svatove 23. nóv. 2022 Vilniansk Úkraína – níu mánuðum e ir innrás Kharkiv Belgorod Ú K R A Í N A Ú K R A Í N A RÚSSLAND RÚSSLAND Mykolajívska KHERSON- HÉRAÐ Izyum Bakhmut Dnípro SVARTAHAF Dnipro-áin Donetsk Lúhansk Kherson Melítopol Mariupol 50 mílur 80 km KRÍMSKAGI 3 Borgir undir stjórn Rússa Rússnesk svæði Rússnesk sókn Úkraína unnið til baka Átakasvæði Rússnesk svæði fyrir 24. febrúar Kyiv: Ukrainian security forces raid HQ of Russian-backed wing of Ukrainian Orthodox Church, suspecting “subversive activities” Belgorod: Russia fortifying “Zasechnaya Line” defences along border amid scaremongering claims of imminent Ukrainian attack © GRAPHIC NEWSHeimildir: DW, Sameinuðu þjóðirnar 1 2 Vilniansk: Russian missile strike destroys maternity ward of hospital near Zaporizhya, killing newborn Sevastopol: Multiple Ukrainian drones shot down near power station and elsewhere in Crimea. Russian authorities raise terrorist threat level to high until at least Dec 7 3 4 LÚHANSK- HÉRAÐ DONETSK- HÉRAÐ ZAPORÍZJA- HÉRAÐ Kænugarður Ú K R A Í N A RÚSSLAND Odesa Sevastopol Svatove 23. nóv. 2022 Vilniansk Úkraína – níu mánuðum e ir innrás Kharkiv Belgorod Ú K R A Í N A Ú K R A Í N A RÚSSLAND RÚSSLAND Mykolajívska KHERSON- HÉRAÐ Izyum Bakhmut Dnípro SVARTAHAF Dnipro-áin Donetsk Lúhansk Kherson Melítopol Mariupol 50 mílur 80 km KRÍMSKAGI 3 Borgir undir stjórn Rússa Rússnesk svæði Rússnesk sókn Úkraína unnið til baka Átakasvæði Rússnesk svæði fyrir 24. febrúar Kyiv: Ukrainian security forces raid HQ of Russian-backed wing of Ukrai ian Ortho ox Church, susp cting “subv rsive activities” Belgorod: Russia fortifying “Zasechnaya Line” defences along border amid scaremongering claims of imminent Ukrainian attack © GRAPHIC NEWSHeimildir: DW, Sameinuðu þjóðirnar 1 2 Vilniansk: Russian missile strike estroy maternity w d f ho pi al near Zaporizhya, killing newborn Sevastopol: Multiple Ukrainian drones shot down near power station and elsewhere in Crimea. Russian authorities raise terrorist threat level to high until at least Dec 7 3 4 LÚHANSK- HÉRAÐ DONETSK- HÉRAÐ ZAPORÍZJA- HÉRAÐ Kænugarður Ú K R A Í N A RÚSSLAND Odesa Sevastopol Svatove 23. óv. 2022 Mannfall – almennir borgarar: n 6.557 látnir n 10.074 særðir n Flóttamenn-7,6 milljónir (Úkr.) n Flóttamenn-2,85 milljónir (Rúss.) Helstu móttökulönd flóttamanna: Úkraína: Rússland - Pólland - Þýskaland Tékkland - Ítalía Rússland: Tyrkland - Georgía - Armenía Serbía - Búlgaría Kostnaður n Tjónið í Úkraínu metið á 252 ma. bandaríkjadollara n Kostnaður við uppbyggingu: 348,5 ma. bandaríkjadollarar kristinnpall@frettabladid.is SKOTLAND Hæstiréttur Bretlands úrskurðaði í gær að Skotland gæti ekki boðað til þjóðaratkvæða- greiðslu um sjálfstæði Skotlands án leyfis bresku ríkisstjórnarinnar. Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra Skotlands, hafði lagt til dagsetningu fyrir kosningar á næsta ári. Hún sagði Skota ekki hafa gefið upp vonina. Sambærileg þjóðaratk væða- greiðsla fór fram árið 2014 þar sem naumur meirihluti hafnaði tillög- unni um Skotland sem sjálfstætt ríki. Breska þingið hefur verið mót- fallið því að kosið yrði að nýju. Forseti hæstaréttar, Robert Reed lávarður, hafnaði hugmyndum Skota um að niðurstöður kosning- anna yrðu bindandi en ekki aðeins til að kanna vilja þjóðarinnar. „Þjóðaratkvæðagreiðsla myndi hafa mikil áhrif á pólitískt samband landanna og rétt breska þingsins.“n Háðir samþykki Breta á kosningu Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra Skotlands. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 55 prósent kjósenda í Skotlandi höfnuðu aðskilnaði árið 2014. gar@frettabladid.is ÚKRAÍNA Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna var kallað saman í skyndi í gærkvöldi eftir að Rússar höfðu með eldflaugaárásum valdið víðtæku raf- magnsleysi í Úkraínu. Árásum Rússa var sérstaklega beint að innviðum í orkugeira Úkraínu og landsmenn voru beðnir að leita skjóls í loftvarnabyrgjum. Höfðu erlendir miðlar eftir lög- reglustjóranum Ihor Klymenko að sex hefðu látist og að 36 væru sárir. n Öryggisráð SÞ á skyndifundi í gær 12 Fréttir 24. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.