Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.11.2022, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 24.11.2022, Qupperneq 14
Ólafur Arnarson olafur @frettabladid.is Ekki virðast öll kurl komin til grafar varðandi starfsemi Lindarhvols, skúffufélags fjármálaráðuneytisins sem annaðist sölu ríkiseigna sem fengust frá föllnu bönk- unum. Forseti Alþingis situr á greinargerð og eftir áramót verður mál gegn Lindarhvoli tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. STJÓRNSÝSLA Þann 5. apríl síðast- liðinn sendi Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, bréf til Fjármála- ráðuneytisins og stjórnar Lindar- hvols, félags sem ráðuneytið setti á fót til að halda utan um og selja eignir sem runnu til ríkisins sem stöðugleikaframlag frá slitabúum föllnu bankanna, og upplýsti að forsætisnefnd hefði samþykkt að af henda fjölmiðlum greinargerð sem Sigurður Þórðarson, fyrrverandi settur ríkisendurskoðandi, um starf- semi Lindarhvols skilaði til alþingis í júlí 2018, og afhending færi fram 25. apríl kl. 12. Forsaga málsins var sú að Jóhann Óli Eiðsson, blaðamaður, hafði óskað eftir að fá greinargerðina afhenta. Þann 28. apríl 2021 sendi Stein- grímur J. Sigfússon, þáverandi forseti Alþingis, stjórn Lindarhvols bréf og upplýsir að forsætisnefnd hyggist veita Jóhanni Óla aðgang að greinar- gerðinni og óskar eftir því að Lindar- hvoll „lýsi afstöðu sinni til þess hvort greinargerðin geymi upplýsingar um fjárhagsmálefni einstaklinga eða fyrirtækja eða mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari, sbr. 9. gr. upplýsingalaga.“ Þrátt fyrir ítrekuð erindi frá for- seta Alþingis tók stjórn Lindarhvols og fjármálaráðuneytið enga afstöðu til þeirra atriða sem óskað var eftir heldur lögðust alfarið gegn því að greinargerðin yrði birt með vegna þess að óheimilt væri með öllu að birta hana. Forsætisnefnd leitaði eftir lögfræðiáliti sérfróðs lögmanns hjá Magna-lögmönnum sem komst að þeirri niðurstöðu að andstaða ráðuneytisins við birtingu byggði ekki á haldbærum lögfræðirökum. Við svo búið var ráðuneytið upplýst um fyrirhugaða birtingu. Forseti Alþingis tekur u-beygju 20. apríl bárust mótmæli frá bæði fjármálaráðuneytinu og Ríkisendur- skoðun við fyrirhugaðri birtingu. Engin ný rök voru færð fram heldur voru endurtekin gömlu rökin, sem forsætisnefnd hafði þegar úrskurðað að væru léttvæg andspænis lögfræði- álitinu frá Magna. Engu að síður tók Birgir Ármanns- son þá ákvörðun að veita ekki aðgengi að greinargerðinni. Hafði hann þó sjálfur gert tillöguna um það til forsætisnefndarinnar. Í umræðu undanfarinna vikna hefur mikið verið rætt um mikil- vægi gagnsæis og jafnræðis við sölu ríkiseigna. Fjármálaráðherra hefur sérstaklega mælt fyrir um nauðsyn þess að tryggja að ekkert sé í skugg- anum og þar með hulið leyndar- hyggju þegar kemur að meðhöndlun og ráðstöfun ríkiseigna. Þá hafa allir formenn ríkisstjórnarflokkana lýst því yfir opinberlega að öll gögn um sölu ríkiseigna skuli vera opinber. Fjármálaráðherra birti nýlega lista yfir kaupendur í hlutafjárútboði Íslandsbanka, þvert á lögfræðiálit Bankasýslu ríkisins, vilja og ráðlegg- ingar Bankasýslunnar og almennra hefða í fagfjárfestaútboði. Greinargerðin sem deilt er um er mjög gagnrýnin á marga þætti í starfsemi Lindarhvols. Í grundvall- aratriðum stangast hún á við skýrslu sem Skúli Eggert Þórðarson ríkisend- urskoðandi skilaði til Alþingis um starfsemi Lindarhvols en sú skýrsla fer fögrum orðum um starfsemi og umgjörð félagsins. Í byrjun næsta árs verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur mál félagsins Frigus II á hendur Lindar- hvoli. Tilefni málshöfðunarinnar er útboð og sala Lindarhvols á hlut ríkisins í Klakka haustið 2016. Um var að ræða sölu á hlutafé og sam- hangandi kröfum í Klakka. Stjórn Lindarhvols, sem var skúffufélag í Fjármálaráðuneytinu, hafði falið Íslögum, lögfræðistofu í eigu lögmannsins Steinars Þórs Guð- geirssonar, að sjá um rekstur félags- ins. Steinar var jafnframt stjórnar- maður í Klakka, auk þess að sinna margvíslegum störfum og verkefn- um á vegum Lindarhvols, Fjármála- ráðuneytisins og Seðlabanka Íslands. Stjórn Lindarhvols hafði látið Deloitte meta virði hlutar ríkisins í Klakka og var niðurstaðan úr því verðmati tæpur milljarður. Helmingsafsláttur á ríkiseign Steinari Guðgeirssyni var falið að sjá um sölu hlutarins í Klakka þrátt fyrir að hann væri þá stjórnarmaður í félaginu. Afar takmarkaðar upp- lýsingar voru veittar um eignina í söluferlinu þrátt fyrir að um verulega flókna eign væri að ræða. Kröfur á Klakka skiptust í misjafnlega verð- mæta flokka en það mun ekki hafa komið fram í söluferlinu. Síðar kom í ljós að aðilar sem hugðust bjóða í eignina treystu sér ekki til þess vegna skorts á upplýsingum. Eignin var auglýst til sölu í smá- auglýsingum DV og á heimasíðu Lindarhvols. Þegar upp var staðið nam sölu- verðmæti eignarhlutarins í Klakka 505 milljónum króna. Þetta felur í sér u.þ.b. 50 prósenta afslátt frá því verði sem stjórn Lindarhvols og Steinari Þór var kunnugt um að væri verðmat Deloitte á hlutnum. Þessu til viðbót- ar voru eignir Klakka færðar upp um 15 prósent tveimur mánuðum eftir undirritun kaupsamnings. Kaupendur að hlut ríkisins í Klakka voru nátengdir fyrirtækinu. Forstjóri Klakka undirritaði kaup- tilboðið. Seljandinn, sem tók við til- boðum á ódulkóðuðu rafrænu formi, var stjórnarmaður í Klakka. Þegar salan fór fram lá fyrir fjárhagsupp- gjör félagsins sem forstjóri og stjórn Klakka höfðu undir höndum en ekki aðrir vegna þess að það hafði ekki verið gert opinbert. Uppgjörið sýndi mun betri af komu en aðrir en stjórnendur Klakka hefðu mátt gera ráð fyrir eða rúmlega 600 milljón króna hagnað. Í þeim málaferlum sem síðan hafa sprottið hefur Steinar tekið að sér að vera lögmaður Lindarhvols. Ríkislög- maður ætti að sinna því en í undan- teknwingartilfellum má kalla til utanaðkomandi lögmenn, en til þess þarf sérstakt leyfi frá viðkomandi ráðuneyti samkvæmt lögum um ríkislögmann. Þessi heimild mun undir eðlilegum kringumstæðum einungis vera notuð þegar ríkislög- maður er vanhæfur í málum, sem ekki mun eiga við í þessu tilfelli. Tvískinnungur ráðuneytis Sigurður Valtýsson, forsvarsmaður Frigusar II, segir Lindarhvol hafa gert allt til að koma í veg fyrir sjálfsagða afhendingu gagna í söluferli á ríkis- eign frá því að söluferlinu lauk, tapað 10 úrskurðum hjá Úrskurðarnefnd um upplýsingamál og enn séu ekki öll kurl komin til grafar. Í ljósi þess að óeðlilegt þykir að starfsmenn miðlunar í Íslands- banka hafi keypt í nýliðnu útboði, segist Sigurður velta fyrir sér hvað megi þá segja um þá staðreynd að stjórnarmaður Klakka hafi verið umsjónarmaður með útboði á hlut ríkisins í félaginu og haldið leyndum fyrirliggjandi gögnum um hið selda og mælt svo með því að tilboði for- stjóra Klakka yrði tekið. Harðort bréf frá Sigurði Þórðar- syni um rangfærslur í skýrslu Ríkis- endurskoðunar, sem kom út í maí 2020, liggur hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Málið hefur verið hjá stjórn- skipunar- og eftirlitsnefnd frá því á síðasta kjörtímabili og Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að fyrrver- andi stjórnarmenn í Lindarhvoli hafi neitað að koma fyrir nefndina nema með ákveðnum skilyrðum. Málshöfðun Frigusar II snýr meðal annars að því að hefðbundin vinnu- brögð hafi ekki verið viðhöfð við söl- una. Til dæmis hafi tilboð ekki verið opnuð í viðurvist bjóðenda. Í grein sem birtist í Morgunblað- inu 12. nóvember 2016 undir yfir- skriftinni „Gengið á svig við megin- reglur við sölu ríkiseigna“ er haft eftir forstjóra Ríkiskaupa að þrátt fyrir að ekki sé skylt að styðjast við lög um opinber innkaup við sölu ríkiseigna að þá séu þau „sá vett- vangur sem tryggir gagnsæi og jafn- ræði milli bjóðenda“. Birgir Ármannsson, forseti Alþing- is, segist ekki ætla að tjá sig um málið að svo stöddu. „Málið er enn til umfjöllunar á vettvangi forsætis- nefndar og á meðan ætla ég ekki að fara út í umræður á opinberum vett- vangi um einstaka þætti þess.“ Oddný Harðardóttir, 2. varaforseti Alþingis, segir það vera sína skoðun að eftir að forsætisnefnd samþykkti að veita aðgang að greinargerð Sigurðar Þórðarsonar hafi ekkert nýtt komið fram sem ætti að koma í veg fyrir að sú ákvörðun standi og greinargerðin opinberuð.n Forseti Alþingis þaggar að ósk ráðuneytisins Lindarhvoll, skúffufélag fjármálaráðu- neytisins, er sakað um að hafa mismunað tilboðsgjöfum í ríkiseign. FRÉTTABLAÐIÐ/SIG- TRYGGUR ARI Tímalína sölunnar á Klakka Í málshöfðun Frigusar II kemur fram að BLM fjárfestingar ehf. hafi 30. september 2016 gert til- boð í hluti ríkisins í Klakka upp á 428 krónur. Forstjóri Klakka er eini stjórnarmaðurinn í BLM fjárfestingum. Klukkan 15.54 þann 14. október 2016 sendir Kvika banki inn tilboð fyrir hönd Frigusar II í tölvupósti upp á 501 milljón króna í tölvupósti á netfangið soluferli@lindarhvolleignir.is. Móttaka staðfest mínútu síðar. Tilboðið er 16,9 prósent hærra en tilboð BLM. Klukkan 15.55 þann 14. október er fulltrúi BLM sagður hafa afhent Steinari Þór Guð- geirssyni persónulega nýtt tilboð frá BLM. Tilboðið er upp á 505 milljónir. Klukkan 15.59 þann 14. októ- ber sendir Ásaflöt (félag í eigu starfsmanna Klakka) tilboð í hlutinn í Klakka. Tilboðið, sem er upp á 502 milljónir, er undir- ritað af forstjóra Klakka. Klukkan 16.00 þann 14 október rennur út frestur til að skila til- boðum í hlut ríkisins í Klakka. Þann 1. nóvember 2016 er undirritaður kaupsamningur við forstjóra Klakka fyrir hönd BLM með vaxtaákvæði, sem ekki var inni í samþykktu kaup- tilboði og varð endanlegt kaup- verð því 508 milljónir. Þann 16. nóvember 2016 birtir stjórn Klakka árshlutauppgjör félagsins sem sýnir 603 milljóna hagnað. Birgir Ármannsson, forseti Alþingis Steinar Þór Guð- geirsson var stjórnarmaður í Klakka 14 Fréttir 24. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐFRÉTTASKÝRING FRÉTTABLAÐIÐ 24. nóvember 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.