Fréttablaðið - 24.11.2022, Blaðsíða 46
SÍÐASTA FIMMTUDAG Í MÁNUÐI BJÓÐA
SÖFN OG SÝNINGARSTAÐIR Í MIÐBORGINNI
UPP Á LENGDAN OPNUNARTÍMA.
UPPLAGT TÆKIFÆRI TIL AÐ BREGÐA
SÉR AF BÆ OG NJÓTA MYNDLISTAR.
FJÖLBREYTTAR SÝNINGAR OG VIÐBURÐIR!
NÁNARI UPPLÝSINGAR UM OPNUNARTÍMA OG DAGSKRÁ Á
WWW.FIMMTUDAGURINNLANGI.IS
Sýningin Hannah Felicia eftir danshöfundinn Láru Stefánsdóttur er gerð fyrir
einn fatlaðan dansara og einn ófatlaðan. Mynd/owen Fiene
Í verkinu Gentle Unicorn leikur
dansarinn og danshöfundurinn
Chiara Bersani sér með goðsögnina
um einhyrninginn. Mynd/owen Fiene
Reykjavík Dance Festival
Hannah Felicia
Tjarnarbíó
danshöfundur: Lára Stefánsdóttir
dansarar: Hanna Karlsson og
Felicia Sparrström
Tónlist: Högni Egilsson
Hljóðmynd: Þórarinn Guðnason
Búningar: Charlotte von
Weissenberg
Lýsingarhönnun: Jónatan
Fischhaber
Gentle Unicorn
Kassinn Þjóðleikhúsinu
Höfundur og flytjandi: Chiara
Bersani
Hljóðhönnun: F. De Isabella
Lýsingarhönnun og tæknistjóri:
Valeria Foti
Stílísering: Elisa Orlandini
Sesselja G. Magnúsdóttir
Í doktorsritgerðinni From Gender
Only to Equality for All frá 2012
fjallar doktor Þorgerður H. Þor-
valdsdóttir um útvíkkun jafnréttis-
hugtaksins og þróun í jafnréttisstarfi
og orðræðu frá áherslu á jafnrétti
kynjanna yfir í jafnrétti ýmissa
minnihlutahópa og margþætta
mismunun. Þar er því haldið fram
að æskilegt sé að útvíkka jafnréttis-
hugtakið því kynjajafnrétti náðist
ekki án þess að tekið væri á mis-
rétti sem byggðist á stétt, kynþætti,
kynhneigð, aldri og fötlun. Síðan þá
hefur hugmyndin um jafnrétti fyrir
alla náð fótfestu og kallað á sjálfs-
skoðun flestra kima samfélagsins
þar sem greina þarf misrétti sem er
innbyggt í hefðir og hugsun okkar og
hvernig hægt er að brjóta upp gömul
viðhorf og hugsanamynstur. Hug-
takið inngilding hefur meðal annars
verið notað til að skoða þessa þætti
og spurt hefur verið: Hver er hér og
hver er ekki hér? Umræðan um inn-
gildingu hefur meðal annars verið
sterk innan sviðslista eins og sést á
nýafstöðnu Reykjavík Dance Festi-
val. Það er þó ekki í fyrsta skipti í ár
sem það er gert heldur hefur nýjum
og fjölbreyttari hópum verið boðið á
svið undanfarin ár.
Í skipulagi og efnisvali Reykja-
vík Dance Festival sem haldin var
dagana 16.-20. nóvember 2022, var
viðteknum hugmyndum um hverjir
eiga rödd og líkama á sviði í dans-
verkum ögrað. Líkamlega fötluðum
var gert hátt undir höfði en tvö
af aðalverkum hátíðarinnar voru
dönsuð af fötluðum einstaklingum.
Í öllu kynningarefni var líka tekið
sérstaklega fram hvernig aðstaða
fyrir fatlaða væri en greinilegt var
að lagður hefur verið metnaður í að
hafa alla viðburði aðgengilega fyrir
hjólastóla sem og aðgengilega sal-
ernisaðstöðu.
Hannah Felicia
Lítið hefur farið fyrir danshöfund-
inum Láru Stefánsdóttur undanfarin
ár. Það var því kærkomið að sjá aftur
verk eftir hana á sviði. Verkið Hann-
ah Felicia var samið fyrir tvo af döns-
urum dansflokksins Spinn sem er
sænskur atvinnudansflokkur skip-
aður fötluðum og ófötluðum ein-
staklingum. Dansverkið var hreint
og hlýtt. Það var áferðarfallegt en
vantaði aðeins upp á spennu. Sam-
dans dansaranna var flæðandi og
endurspeglaði mest væntumþykju
og ró. Sú staðreynd að annar þeirra
gat ekki staðið í fæturna gerði sam-
spil dansaranna síður en svo áhrifa-
minna. Það komu líka skemmtileg
andartök þar sem hjólastóllinn tók
sér stöðu sem þriðji sýnandinn.
Sviðsmyndin og búningarnir voru
tærir, rauður gólfdúkur, búningar
á litinn eins og sápukúlur og lýsing
sem undirstrikaði á skýran hátt það
sem var að gerast á sviðinu. Tónlist
Högna Egilssonar, ágætlega samin,
náði þó ekki nægri tengingu við
annað sem var að gerast á sviðinu og
naut sín því ekki sem skyldi. Sú tón-
list hefði betur átt við annan dans
og þessi dans þarfnaðist aðeins ann-
arrar tónlistar.
Gentle Unicorn
Líkaminn sem lá á sviði Kassa Þjóð-
leikhússins þegar áhorfendur gengu
í salinn til að horfa á verkið Gentle
Unicorn átti ekki margt skylt við
svífandi ballerínur eða unga kröft-
uga virtúósa hefðbundinna dans-
flokka. Chiara Bersani er bundin
hjólastól og getur því ekki gengið,
hlaupið né dansað um sviðið fimum
fótum. Hún getur aftur á móti skriðið
um og hreyft bæði hendur og fætur á
fínlegan og áhrifamikinn hátt. Sviðs-
sjarmi hennar er mikill. Chiara náði
að tengja við áhorfendur og fá þá til
að þykja vænt um sig þar sem hún í
hlutverki einhyrnings ferðast um í
leit að vináttu og nálægð. Endirinn á
verkinu er óvæntur og gefur því nýja
vídd. Verkið er jafn ævintýralegt og
þjóðsagnadýrið sjálf, einhyrningur-
inn. Því var hvíslað að mér að það
yrði bara áhrifameira eftir því sem
maður sæi það oftar. n
niðuRstaða: Sýningarnar
Hannah Felicia og Gentle Unicorn
sýna áhorfendum fegurð fjöl-
breytileikans. Að semja dansverk
er skapa list úr hreyfingum.
Hver er hér og hver ekki
BækuR
Hamingja þessa heims
sigríður Hagalín Björnsdóttir
Fjöldi síðna: 460
Útgefandi: Benedikt
Kristján Jóhann Jónsson
Hamingja þessa heims er söguleg
skáldsaga sem gerist á fimmtándu
öld og aðalpersóna er Ólöf Lofts-
dóttir ríka. Skáldið Sveinn dögg-
skór eða Skáld-Sveinn, sem gengur
reyndar undir f leiri nöfnum, er
einnig fyrirferðarmikill í sögunni
en hann er góðvinur
Ólafar. For mið er
með þeim hætti að
hér er ein saga inni
í annarri. Í ramma-
sögunni er sagt frá
sagnfræðiprófessor
sem hefur hagað sér
fíf lslega gagnvart
kvenfólki og verið
úthrópaður fyrir
það. Þessi hálærði
s a g n f r æ ð i n g u r
er ekki of beldis-
maður eða nauðg-
ari, en hegðun
hans er stórlega
ábótavant. Í refs-
inga r sk y ni er
honum vikið frá
störfum í bili og
hann settur yfir
h á s k ó l a s e t u r
á St að a r fel l i
í Dölum. Þar finnur hann stór-
merkileg handrit um 15. öldina, og
sérstaklega um Ólöfu ríku. Þessi
þrjú, Ólöf, Sveinn og sagnfræðing-
urinn, eru mikilvægustu persónur
sögunnar.
Bræði og skelfing karlmanna
Eftir MeToo er bráðsnjallt að grípa
niður á þessum stað í Íslandssög-
unni. Í sögu Sigríðar brýst Ólöf út úr
því regluverki sem henni er ætlað að
virða og vekur upp bræði og skelf-
ingu hjá karlmönnum. Hún fer sínu
fram, grípur fram fyrir hendurnar á
bróður sínum og ögrar höfðingjum.
Sagan af henni á erindi við okkar
tíma.
Diðrik Píning, höfuðsmaður á
Bessastöðum, reynir að klekkja á
Ólöfu og sanna á hana ósæmileg
og ókristileg kynferðismál. Að því
leyti er Ólöf hliðstæð við sagnfræði-
prófessorinn seinheppna. Um hjá-
kátleg kynferðismál hans vitna að
vísu margar konur og skrifa í tíma-
ritið Sögu en illa gengur að „sanna“
ókristilega hegðun Ólafar.
Lykilmaður í því er skáldið Sveinn
döggskór. Ólöf vill fá rétta útgáfu
af eigin sögu og hana á Sveinn að
skrifa til þess að „sannleikurinn“
komi fram og kveði niður róg og níð.
Píning höfuðsmaður rænir Sveini
og reynir hins vegar að pynta hann
til að skrifa um ill og stórhættuleg
kynferðismál Ólafar. Baráttan um
„sannleikann“ geisar án afláts.
Hér hlýtur lesanda að verða hugs-
að til sagnfræðingsins í rammasög-
unni. Í tímaritið Sögu hafa tuttugu
reiðar konur skrifað um fáránlega
hegðun hans. Sagnfræðingurinn
reynir að bera hönd fyrir höfuð sér
í bréfum til vinar síns en það eru
veikburða tilraunir. Kannski vegna
þess að saga síðustu ára hefur komið
yfir þennan sagnfræðing eins og
köld vatnsgusa
og það er
einkennilegt
hvað hann
er steinhissa.
Sagnfræðing-
ar hugsa oft
u m sög u na
og það þyrfti
að koma ein-
hvern veginn
f ram í mati
hans á eigin
stöðu.
Sekt og
sannleikur
S ö g u r n a r a f
Ólöfu og sagn-
f r æ ð i n g n u m
spegla hvor aðra
á ýmsan hátt en
um sumt eru þær
ósa mbær ilega r.
Réttlát reiði háskólakvennanna
yfir asnaskap prófessorsins er öðru
vísi en heift Pínings höfuðsmanns
yfir því að kona hafi skotið honum
ref fyrir rass. Þriðja aðalpersónan
í bókinni er skáldið Sveinn sem
nauðugur má takast á við hina
sígildu spurningu um það hvort
til sé algildur sannleikur og ef svo,
hvað hann hafi þá með hamingju
mannanna að gera. Sveinn stendur
á 15. öld frammi fyrir spurningum
sem virðast kunnuglegar á þeirri 21.
Verða menn ekki samstundis sekir
ef þeir eru ásakaðir um eitthvað? Er
persónulegur sannleikur ekki alltaf
og örugglega óvéfengjanlegur? Ber
að refsa fólki sem efast um það sem
því er sagt? Og þannig mætti lengi
telja. Að sjálfsögðu er fjöldamargt
í þessari áhugaverðu bók sem ekki
hefur verið minnst á hér. n
niðuRstaða: Bráðskemmtileg,
söguleg skáldsaga um eitt af
forvitnilegustu tímabilum Ís-
landssögunnar. Hentar vel fyrir
lesendur sem telja lífið marg-
breytilegt og efahyggju nauðsyn-
lega.
Saga, samtími og kyn
Sýningarnar Hannah
Felicia og Gentle
Unicorn sýna áhorf-
endum fegurð fjöl-
breytileikans.
38 Menning 24. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFréttablaðið