Fréttablaðið - 24.11.2022, Qupperneq 50
Ragnar Eyþórsson kynntist þakkargjörðarhátíðinni þegar hann bjó í Bandaríkjunum á níunda áratugnum og kynntist síðar kanadísku útgáfunni sem haldin er í október. Fréttablaðið/Valli
Ragnar Eyþórsson, dag
skrárgerðarmaður á RÚV,
heldur þakkargjörðarhátíð að
amerískum sið, með tilheyr
andi kræsingum. Siðurinn
kom til þegar fjölskyldan bjó
í Bandaríkjunum á níunda
áratugnum.
ninarichter@frettabladid.is
„Við bjuggum í Ameríku frá 1983 til
1987. Okkur fannst þakkargjörðar
hátíðin mjög skemmtileg hátíð.
Hún er fyrir alla í Ameríku, hefur
ekki trúarleg tengsl og er meiri fjöl
skylduhátíð en margt annað,“ segir
Ragnar Eyþórsson dagskrárgerðar
maður, og bætir við að hátíðin sam
eini þannig fólkið af því að allir taki
þátt.
„Svo þegar við f luttum heim til
Íslands fannst okkur gaman að
grípa í þakkargjörðina við og við,
til að minna okkur á þessar stundir
í Ameríku. Seinna fór ég í nám til
Kanada og þeir halda líka þakkar
gjörðina en mánuði fyrr,“ segir
hann. Kanadamenn halda hátíðina í
október. „Þau segja að það sé réttari
dagsetning. Ég veit ekki af hverju,
en þau hafa mánaðar forskot á
Kanann.“
Ragnar segist hafa verið einn í
Kanada, en vinir hans hafi boðið
honum heim, sem eins konar
íslenskum heiðursgesti. „Það var
alltaf mikill heiður að fá að tálga
kalkúninn sem gesturinn,“ segir
hann.
Þegar hann flutti til Íslands ákvað
hann að halda í hefðina. „Við reyn
um að halda upp á þetta á nokkurra
ára fresti og fá alla fjölskylduna
saman,“ segir hann.
Að sögn Ragnars er hátíðin
gríðarlega amerísk og því f lóknari
í aðlögun út fyrir Bandaríkin en
til dæmis Valentínusardagur og
hrekkjavaka. „Þakkargjörðin á sér
sögulegar rætur í Ameríku. En þetta
er náttúrulega bara uppskeruhátíð.
Í amerískum bíómyndum virð
ist mikilvægara að missa ekki af
þakkargjörðarhelginni frekar en til
Töfrar fram kryddaða kalkúnaleggi og kartöflur
Kalkúnaleggir Ragnars í hægeldunarpotti
„Einn mikilvægasti hluti þakkar
gjörðarmáltíðar er kalkúnafyll
ingin. Til að fá góða fyllingu
þarf hún einmitt oftast að vera
inni í kalkúni,“ segir Ragnar.
„En fyrir þau sem vilja fyllingu
en nenna ekki öllu brasinu sem
fylgir að elda heilan kalkún, þá
er hér einföld lausn á því. Til þess
þarf hægeldunarpott eða slow
cooker.“
4–5 kalkúnaleggir
Poki af tvíbökum
1–2 sætar kartöflur
3 gulrætur
1–2 laukar
1–2 paprikur
1 bréf af þykkt skornu beikoni
Nýmalaður pipar
Kalkúnakrydd
Paprikukrydd
2 bollar af vatni
Flysjið og skerið sætar kartöflur
í teninga og komið fyrir í hrúgu
í öðrum enda hægeldunar
pottsins.
Myljið rúmlega hálfan poka
af tvíbökum og raðið þykku lagi
yfir restina af botninum.
Skerið niður gulrætur, lauk og
papriku og raðið yfir tvíbökur.
Þetta verður fyllingin.
Skolið kalkúnaleggina, þerrið
og kryddið. Kryddin hér að ofan
eru uppástungur en passið að
salta alls ekki leggina. Ekkert salt,
takk, það kemur með beikoninu.
Raðið leggjunum hlið við
hlið ofan á grænmetinu og sætu
kartöflum.
Skerið þykkt beikon í minni
búta og raðið vel yfir leggina
svo þeir eru alveg þaktir. Beik
onið heldur leggjunum frá því
að þorna upp og saltar leggina í
leiðinni.
Bakið á lægstu stillingu í 8 klst.
Þegar allt er eldað, byrjið
á að tína beikonið til hliðar í
skál. Leggirnir eru tilbúnir en
þá vantar algjörlega yndislega
stökka yfirbragðið.
Setið því leggina í eldfast mót,
stillið ofninn á grill 220°C og
bakið þá í 10 mín. eða þar til þeir
fá fallega ytri húð. Það má jafnvel
snúa þeim til að ná öllum hliðum.
Meðan leggirnir eru í ofninum,
takið sætu kartöflurnar og setjið
í aðra skál og maukið saman.
Þarna er komin yndisleg sætkart
öflustappa.
Setjið loks beikonið aftur út
í grænmetið og tvíbökurnar og
hrærið vel saman. Þarna verður
fullkomin bragðmikil fylling.
Ragnar ráðleggur fólki að bera
þetta fram með amerískum
hreim og finna eitthvað til að
vera þakklát fyrir, og njóta vel.
dæmis jólunum. Frægasta þakkar
gjörðarmyndin er Plains, Trains and
Automobiles. Það er þakkargjörðar
hátíðin sem hann er að fara heim
til,“ segir Ragnar.
Kvikmyndirnar virðast þó sitja
einar að þakkargjörðinni sem list
form, og aðspurður man Ragnar
ekki til þess að nein tónlist tengist
deginum sérstaklega.
Að sögn Ragnars var þakkargjörð
in í upphafi hálfgerður gálgafrestur
á jólaskreytingar. „Í Bandaríkjunum
þarf ekki að setja upp jólaskrautið
fyrr en þakkargjörðin er búin. Á
Íslandi byrjum við í september og
ekkert er þar á milli nema hrekkja
vakan,“ segir hann.
„Nú er svarti föstudagurinn
búinn að draga rosalega úr mikil
vægi þakkargjörðarhátíðarinnar.
Fyrir tíu árum síðan byrjuðu þessar
rosa útsölur á netinu og fólk fór að
drífa af þakkargjörðina til að kom
ast í biðröð á svörtum föstudegi.
Ljóminn af þakkargjörðarhátíðinni
hefur dofnað,“ segir hann. „Kannski
eru það kaupmenn sem ráða því
hvaða hátíðir koma til Íslands. Það
hefur enginn hag af því að halda
þakkargjörðarhátíðina nema kalk
únabændur. En svo stórgræða þeir á
brunaútsölum á svörtum föstudegi.“
Ragnar og fjölskylda hans halda
í hefðina hvað matinn varðar. „Við
höfum kalkúninn eins stóran og
mögulegt er, reynum að hafa hann
að minnsta kosti átta kílóa. Svo er
reynt að hafa sem stærsta kalkúna
leggi og það er slegist um það ár eftir
ár, hver fær legginn,“ segir Ragnar.
„Eins og við systir mín erum yfirleitt
góð saman hefur það verið helsta
ágreiningsmálið hver hefur fengið
leggina ár hvert,“ segir hann og hlær.
Í fyrra fann Ragnar lausn á ágrein
ingnum. „Ég uppgötvaði að það er
hægt að elda bara leggi í slow coo
ker. Ég gerði fyllinguna og allt sem
fylgdi í einum potti, fór í vinnuna.
Þegar ég kom heim og var þakkar
gjörðin tilbúin án þess að neinn
gerði neitt,“ segir hann.
„Við förum hringinn og þökkum
fyrir og alveg niður í minnstu
krakkana. Það er svo gaman að
heyra hvað þau eru þakklát fyrir.
Kynslóðin undir okkur bjó ekkert
úti, en þau fylgjast með okkur og
þetta er voða fallegur siður og ein
falt að fylgja eftir, hvað það er sem
maður er þakklátur fyrir.“ n
Við förum hringinn og
þökkum fyrir og alveg
niður í minnstu krakk-
ana. Það er svo gaman
að heyra hvað þau eru
þakklát fyrir.
Ragnar Eyþórsson
42 Lífið 24. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFréTTablaðið