Heilbrigðisskýrslur - 03.12.1994, Blaðsíða 22
Tafla 1:
Breytingar á meöfæddum vanskapnaöi
1977-81 1982-86
Heilaleysa 0,4% 0,1%
Hryggrauf 0,8% 0,4%
Gunnar Biering, yfiriasknir, Landspítalinn, 1990
Fóstureyðingar
Með reglulegu millibili frá 1976 hefur Landlæknisembættið gefið út fræðslubæklinga um
getnaðarvamir. Athyglisvert er að heildartíðni fóstureyðinga á 1000 fæðingar hefur fækkað allt
frá 1980-85 og meðal 15-19 ára frá 1987.45-46
Fóstureyðingarpiiian
Landlæknir gerði tillögu til Kvennadeildar Landspítalans um að taka upp notkun
fóstureyðingarpillunnar (RU 486). Verulegur spamaður getur hlotist af, því að aðeins 10% af
konum er gangast undir fóstureyðingu með notkun pillunar þurfa á innlögn á sjúkrahús að
halda. Deildin mun væntanlega gera tilraun með þessa aðferð á árinu 1993.
Erföaráðgjöf
Nú er unnt að greina um 30% bama með mongolisma (Down syndrome) í fósturlífi og því
hægt að gefa móður kost á fóstureyðingu. Þróuð hefur verið aðferð til þess að greina 60-70%
þessara barna í fósturlífi.47 Fyrir tilstilli læknanna Jóhanns Heiðars Jóhannssonar og Stefáns
Hreiðarssonar óskaði Landlæknisembættið eftir fjárveitingu til þessara aðgerða.
Hagfræðistofnun Háskólans hefur unnið, í samvinnu við Landlæknisembættið og áðumefnda
lækna, að úttekt á þeim kostnaði er af þessu hlýst.48 Má ætla að spamaður yrði verulegur þegar
til lengri tíma er litið. Vitaskuld verður slík aðgerð algjörlega á valdi foreldra. Þetta mál er
snertiflötur siðfræði, mannréttinda, lögfræði og læknisfræði. Nær undantekningarlaust óska þó
þær konur er hlut eiga að máli eftir fóstureyðingu ef prófið reynist jákvætt. Fjárlaganefnd
Alþingis veitti 5 milljónir til þessarar aðgerðar.
Forvamir á sviði mæðra- og ungbamaverndar eru skipulagðar af prófessor Gunnlaugi
Snædal, Gunnari Biering dósent, ráðgjafa Landlæknisembættisins, Reyni Tómasi Geirssyni
lækni, í samvinnu við Landlæknisembættið. Haldnir eru samráðsfundir með
heilsugæslustöðvum með vissu millibili.
Vöggudauði
Athyglisvert er að um 50% lækkun hefur orðið á vöggudauða í Bretlandi á síðastliðnum
ámm. Talið er að ástæðan sé ráðleggingar til mæðra, að böm skuli liggja á bakinu en ekki á
maganum 49
20