Heilbrigðisskýrslur - 03.12.1994, Blaðsíða 54
Atvinnuleysi
Heilsufarsleg og félagsleg vandamál er fylgja atvinnuleysi
Niðurstöður margra rannsókna sýna að atvinnulausum og þeim sem eiga yfir höfði sér
atvinnuleysi er mun hættara við háþrýstingi en þeim er hafa atvinnu. Jafnframt hækkar blóðfita
og streituhormón (adrenalin) í blóði og þvagi (noradrenalin). Hækkun á streituhormón hefur
fundist í allt að 2 ár eftir að viðkomandi missti vinnu. Svo virðist sem stjómendum, sem standa
að fjöldauppsögnum, og oft að nauðsynjalausu séu ekki ljósar þessar afleiðingar. Eftir að fólkið
hóf störf á ný lækkaði blóðþrýstingur og magn streituhormóna í blóði. Streitu fylgja ýmsir
sjúkdómar og hefur það verið staðfest meðal annars í íslenskum rannsóknum.103-104
Má þar nefna helst:
• Hjartasjúkdóma
• Háþrýsting/heilablóðfall
• Magasár/magabólgur
• Vöðva- og bakverki
• Þreytu
• Svefnleysi
• Höfuðverk
• Geðtruflanir
Á síðastliðnum 15 árum hefur sjálfsmorðum meðal 15-24 ára karla og eldra fólks fjölgað
mikið. Aðallega hefur þessa orðið vart á Austfjörðum, Norðurlandi eystra og á
Reykjavíkursvæðinu. Hugsanlega er hér um "smitun" að ræða því að ekki hefur borið á
atvinnuleysi meðal þessa unga fólks. Á vegum Landlæknisembættisins er unnið að athugun á
þessu fyrirbæri (Wilhelm Norðfjörð, Sigmundur Sigfússon). Litlar eða engar breytingar hafa
orðið á sjálfsmorðstíðni meðal kvenna.105
Niðurstöður margra kannana leiða í ljós að sjúkrahúsvistunum vegna þunglyndis, kvíða,
sjálfsmorðstilrauna og annarra sjúkdóma fjölgar mikið meðal atvinnulausra í samanburði við
þá sem hafa vinnu. Orsakasamband hefur þó ekki verið sannað. Brýnt er að læknar vinni sem
mest gegn atvinnuleysi. Athyglisvert er að meðal 439 handtekinna vegna fíkniefnamisferlis
árið 1989 í Reykjavík reyndust 37% vera atvinnulausir.
Að "vinna fyrir" atvinnubótum
Sú hugmynd hefur kviknað að atvinnulausir starfi jafnframt sem þeim verði greiddar
atvinnuleysisbætur. Ýmsir telja það betri kost en að ríkið greiði þeim fyrir "að gera ekki neitt"
Aðrir telja þetta ekki réttláta skipan því að atvinnulausir hafa misst starfið gegn eigin vilja og
eiga því rétt á atvinnuleysisbótum án vinnu. Lítum á kosti og lesti þessa fyrirkomulags.
Alþekkt er að í kjölfar atvinnuleysis fylgir heilsuleysi og að þeir er fá starf á ný batnar
heilsuleysið. Við vitum ekki um hver áhrif þess að "vinna fyrir atvinnubótum" eru. Vinna
skapar heilsu, velferð og möguleika á fersku atvinnutækifæri. Að "vinna fyrir atvinnubótum"
þýðir að viðkomandi kemst úr þjakandi iðjuleysi og verður þátttakandi í athafnasviði daglegs
lífs á ný, svo að heilsan bamar. Andrúmsloft atvinnubóta vinnunnar mun þó umlykja hann og
"stimpla". Annað er að hvatinn til nýrra atvinnutækifæra gæti minnkað og eftir standa raðir
láglaunamanna er starfa við léleg tryggingaskilyrði og réttindi.
52