Heilbrigðisskýrslur - 03.12.1994, Side 49

Heilbrigðisskýrslur - 03.12.1994, Side 49
Endurhæfing Aö hjálpa fólki til sjálfshjálpar Það er rangt að skera niður fé til endurhæfingar. Góð endurhæfing dregur úr leit fólks til heilbrigðisþjónustunnar. Fólk kemur fyrr til starfa, einnig dregur endurhæfing úr þörf fyrir aðstoð og örorku sem er dýrkeypt. Athyglisvert er að við athugun á ferli kransæðasjúklinga er leituðu til Rannsóknarstöðvar Hjartavemdar á árunum 1974-76 kom í Ijós að yfir 75% þeirra starfa lengur en 40 klukkustundir á viku í aðalvinnu. Félagar þeirra í nágrannalöndum komast ekki með tæmar þar sem þessir menn hafa hælana. Þetta er ágætt svar til þeirra er hamra á því að þessir "fyrrverandi" sjúklingar liggi í hægu fleti á kostnað þess opinbera! Hveijum skal hjálpað til sjálfshjálpar ef ekki þessum aðilum. Vitaskuld á að efla sem mest endurhæfingu og koma upp góðum endurhæfingarstöðvum úti um allt land. Landlæknisembættið hefur ítrekað við stærstu heilsugæslustöðvarinar úti á land að svo verði gert. Kristnesspítali hefur verið mikið í fréttum. Það er þversögn að draga úr endurhæfingarstarfsemi þar. En vissulega má hagræða rekstrinum. Endurhæfingaráætlun fyrir örorkustyrkþega Það á að breyta reglum um örorkuvottorð á þann veg að læknum sé jafnframt skylt að leggja fram áætlun um endurhæfíngu en trúlega þarf lagabreytingu til þess að svo verði. A fundum með fulltrúum tryggingaráðs hefur þetta mál verið ítarlega rætt og vel tekið í að huga að áherslubreytingum í þessum efnum. Hvers vegna er fleira ungt fólk örorkuþegar hér á landi en í nágrannalöndunum? 91 Er endurhæfingaiþörf ekki sinnt? Það er kominn tími til að velja fólk, með kunnáttu í endurhæfingu, til þess að sjá um þessi mál. Endurhæfing hjarta- og æðasjúklinga Miklu fjármagni er nú varið til kransæðaaðgerða og er því vel varið. Um 1/4 sjúklinganna þarfnast enduraðgerðar eftir nokkur ár. Þessar aðgerðir eru dýrari, tæknilega flóknari og áhættusamari fyrir sjúklinginn en fyrstu aðgerðir. í mörgum tilfellum hafa sjúklingar ekki breytt lífsstíl sínum eftir aðgerðina og meðal annars halda ýmsir áfram að reykja. Athyglisverðar tilraunir hafa verið gerðar í nágrannalöndunum í samvinnu við aðgerðardeildir með frœðslunámskeið um áhœttuþœtti í kjölfar aðgerðar. Lögð hefur verið áhersla á að gefa sjúklingum er legið hafa á sjúkrahúsum vegna kransæðasjúkdóms kost á hópráðleggingum (group consultation's), námskeiðum eða æfingum. Lögð er áhersla á fræðslu um áhættuþætti, blóðfitu, blóðþrýsting, offitu, megrun, mataræði og hreyfingu. Lyflækningadeildir gætu haft forgang með slík námskeið ásamt félagi hjartasjúklinga. Endurhæfingadeild Reykjalunds hefur starfað vel að þessum málum en nú eru þar biðlistar. Lífsstflsbreytingar örfárra sjúklinga gætu vel sparað aukinn kostnað við enduraðgerðir. 47
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106

x

Heilbrigðisskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.