Fréttablaðið - 08.12.2022, Side 1
2 6 7 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 8 . D E S E M B E R 2 0 2 2
Kúbönsk sveifla
í myrkrinu
Pólsk-íslensk
ástarsaga
Lífið ➤ 24Menning ➤ 22
Allt til jóla
Kammólína
Jólablað Nettó
Allt fyrir jólin á einum stað
Skannaðu
QR kóðann
Steinunn Ása Þorvaldsdóttir tók við kærleikskúlu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra á Listasafni Reykjavíkur í gær. Þetta var í tuttugasta sinn sem kúlan er afhent. Steinunn Ása afhenti einmitt fyrstu
kúluna, árið 2003, til Ólafs Ragnars Grímssonar, þáverandi forseta Íslands. Þýska listakonan Karin Sander hannaði kúluna í ár en ágóðinn rennur til sumarbúða í Reykjadal. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
1.200 mál berast Neytenda-
samtökunum árlega þar sem
leigjendur telja á sér brotið.
65 ára kona er á leið á götuna
eftir húsaleiguhækkun.
bth@frettabladid.is
NEY TENDUR „Við höfum leigu-
samninga sumra hagnaðardrifinna
leigufélaga til skoðunar, ekki þó
Ölmu,“ segir Breki Karlsson, for-
maður Neytendasamtakanna.
Alma íbúðafélag, hagnaðar-
drifið leigufélag, hefur tjáð Brynju
Bjarnadóttur leigjanda að kostn-
aður hennar við húsaleigu hækki
um 75.000 krónur eftir áramót
vegna vísitölu- og vaxtahækkana.
Mánaðarleg leiga hennar hækkar
úr 250.000 krónum í 325.000.
Brynja er 65 ára einstæð kona og
sjúklingur og leigir á Hverfisgötu.
„Ég var nú búin að sætta mig við
að geta ekki haldið jól vegna pen-
ingaleysis, en ég bjóst ekki við að
ég færi á götuna líka,“ segir Brynja
í samtali við Fréttablaðið. Alma
íbúðafélag svaraði ekki fyrirspurn-
um Fréttablaðsins.
Leigjendur eru sá hópur sem
verst hefur farið út úr vaxtahækk-
unum og verðbólgu, að sögn Breka.
„Ég get ekki tjáð mig um Ölmu
enda höfum við ekki skoðað það
félag sérstaklega, en það er ekki
bara við hækkanir að etja, sum
gjöld sem lögð eru á leigjendur eru
ekki í samræmi við lög,“ segir Breki.
Fjöldi ábendinga vegna leigu-
mála fer vaxandi. 1.200 leigjendur
telja á sér brotið árlega.
Leigusalar hafi reynt að ráðstafa
tryggingafé í kostnað á úttektum
í blóra við lög. Dæmi eru um hót-
anir um riftun á leigusamningi sem
ekki átti sér stoð í lögum. Einn-
ig hefur verið hótað riftun vegna
upploginna vanefnda og kostnaður
vegna almenns viðhalds settur á
herðar leigjanda. Þá hafa Neyt-
endasamtökin gert ýmsar athuga-
semdir við sektarákvæði.
„Leigusali getur ekki sektað
leigutaka en það hefur verið reynt
hjá stórum leigufélögum,“ segir
Breki.
Stórfelldar leiguhækkanir þýða
að sumt fólk fer úr þröngri stöðu í
vonlausa, að sögn Breka.
„Ég er mjög hugsi yfir því að
okkur berast vísbendingar um að æ
f leiri leiti nú í skyndilán, yfirdrátt,
smálán eða fresti greiðslum.“
Á heimasíðu Ölmu kemur fram
að félagið rukkar umsýslugjald,
40.000 krónur, f lutningsgjald er
120.000 krónur ef viðskiptavinur
f lytur sig milli íbúða innan eigna-
safns Ölmu og þrifagjald er allt að
65.000 krónur.
Breki segir að rúmur fimmtung-
ur leigjenda sem leiti réttar síns
hafi ekki íslensku að móðurmáli.
Það gefi vísbendingu um ójafn-
vægið. n
Stórfjölgun í töku smálána til marks
um versnandi fjárhag landsmanna STJÓRNSÝSLA Óánægja er hjá kenn-
urum vegna auglýsingar um emb-
ætti rektors Listaháskóla Íslands og
telja sumir hana ekki standast lög.
Þar stendur aðeins að reynsla á ein-
hverju af fagsviðum Listaháskólans
sé kostur en ekki skylda.
Að sögn Magnúsar Ragnarssonar
stjórnarformanns myndi hæfnis-
nefnd aldrei taka annað til greina
en að ráða einstakling sem stæðist
þær kröfur sem teknar eru fram í
háskólalögum. SJÁ SÍÐU 6
Telja auglýsingu
stangast á við lög
Magnús Ragn-
arsson, stjórnar-
formaður LHÍ