Fréttablaðið - 08.12.2022, Síða 6
bth@frettabladid.is
HEILSUGÆSLA „Við viljum benda á
að gjald kann að verða tekið fyrir
símtalið ef meira en mánuður er
liðinn frá komu til læknisins,“ eru
talskilaboð sem óma nú í eyru
þeirra sem hringja í Læknastöðina
Glæsibæ.
Framkvæmdastjóri, Úlfar Þórð-
arson, segir stutt síðan stöðin
ákvað að upplýsa viðskiptavini
með fyrrgreindum hætti. Ástæðan
sé að sumum hafi komið á óvart að
rukkað væri fyrir símtöl.
Í símaviðtali við sér fræðing
getur falist ef t ir f ylg ni, ly f ja-
endurnýjun eða annað og kemur
símtalið þá í stað komu. Oftast
er byggt á faglegu sambandi sem
hefur skapast milli læknis og skjól-
stæðings.
Valkvætt er að sögn Úlfars, að
minnsta kosti að hluta, hvort
læknir rukkar fyrir svona símtal.
Ákvörðun kann að velta á eðli
þjónustu eða félagslegum aðstæð-
um skjólstæðings. Kostnaðarþátt-
taka greiðanda getur orðið mest
4.700 krónur.
Spurður hvort matskennd gjald-
taka orki tvímælis segir Úlfar:
„Fyrir svona þjónustu þar sem
erindið er misjafnt og meðferðin
mismunandi verður það alltaf mat
hvort rukkað sé fyrir þjónustuna.
Það er öðruvísi með formleg og
bókuð viðtöl.“
Úlfar segir að eftir Covid hafi sú
tilhneiging aukist að fólk kjósi að
ná lausn sinna mála í síma í stað
komu. Sem henti vel þegar löng bið
sé eftir viðtalstímum.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins rukka aðrar stöðvar á
höfuðborgarsvæðinu einnig fyrir
sambærilega þjónustu. Glæsibær
virðist þó eina stöðin sem aðvarar
þá sem hringja með talskilaboðum
um að símtöl kunni að kosta skjól-
stæðinga fé. n
Það gilda lög um
háskóla á Íslandi, þau
munu gilda um þessa
ráðningu. Mér finnst
þessi umræða bara
mjög sérstök.
Magnús Ragn-
arsson, stjórnar-
formaður LHÍ
Óánægja er hjá starfsfólki
vegna auglýsingar um emb-
ætti rektors Listaháskólans.
Formaður stjórnar skólans
segir af og frá að auglýsingin
standist ekki háskólalög.
tsh@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Starfsfólk Listaháskóla
Íslands er uggandi vegna orðalags í
auglýsingu um embætti nýs rektors.
Þar kemur fram að umsækjendur
þurfi að hafa víðtæka þekkingu á
rannsóknum og starfi háskóla auk
staðgóðrar þekkingar á listum og
skapandi greinum. „Reynsla á ein-
hverju af fagsviðum Listaháskóla
Íslands er kostur.“
Kennarar LHÍ sem Fréttablaðið
ræddi við en vilja ekki koma fram
undir nafni hafa áhyggjur af því að
orðalagið brjóti í bága við 15. grein
háskólalaga þar sem segir að rektor
skuli hafa starfað „sem háskólakenn-
ari á einu eða fleiri viðurkenndum
fræðasviðum viðkomandi háskóla“.
Umsækjendur skulu hafa þekk-
ingu og reynslu í samræmi við
alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi
starfsheiti á þeirra fræðasviði, stað-
fest með áliti dómnefndar eða með
doktorsprófi frá viðurkenndum
háskóla. Fimm manna stjórn LHÍ
samdi auglýsinguna. Tveir eru full-
trúar mennta- og menningarmála-
ráðuneytisins (nú háskólaráðuneyt-
ið) þar á meðal formaður, Magnús
Ragnarsson, sem hafnar því alfarið
að auglýsingin brjóti í bága við lög.
„Við höfum umhverfi þar sem
gilda lög um háskóla og að sjálf-
sögðu munum við fara eftir þeim.
Við hins vegar teljum það vera kost
að umsækjandi sé með reynslu af
þessum fagsviðum af því þeir sem
koma til greina samkvæmt lögum
eru miklu f leiri en þeir sem hafa
reynslu af fagsviðum okkar,“ segir
Magnús.
Að sögn Magnúsar myndi hæfnis-
nefnd Listaháskólans aldrei taka
annað til greina en að ráða einstak-
ling sem stæðist þær kröfur sem
teknar eru fram í háskólalögum.
„Hún er skipuð af fagmenntuðum
einstaklingum og háskólarektorum.
Hún er skipuð af fagfólki og er bara
sama hæfnisnefnd og er við störf
í dag í háskólum. Það er enginn úr
stjórn í henni.“
Áhyggjur í LHÍ lúta að því að túlka
megi orðalag auglýsingarinnar svo
að lýst sé eftir einstaklingi úr stjórn-
sýslu fremur en einhverjum sem er
með reynslu og fagþekkingu á sviði
lista. Magnús þvertekur fyrir það.
„Nei, guð minn almáttugur. Það
gilda lög um háskóla á Íslandi, þau
munu gilda um þessa ráðningu. Mér
finnst þessi umræða bara mjög sér-
stök,“ segir hann.
Í svari við fyrirspurn Fréttablaðs-
ins segir Áslaug Arna Sigurbjörns-
dóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköp-
unarráðherra, að ráðningarferlið sé
í höndum stjórnar Listaháskólans
sem beri ábyrgð á auglýsingunni.
„Ráðningarferlið hefur því hvorki
komið inn á mitt borð sem ráðherra
né verið í farvegi innan ráðuneytis-
ins,“ segir Áslaug og vísar enn fremur
öllum spurningum um ráðningar-
ferlið til stjórnar LHÍ. n
Nánar á frettabladid.is
Telja háskólalög brotin með
auglýsingu um nýjan rektor
Aukin þjónusta er veitt í gegn um
síma. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Læknar rukka valkvætt
fyrir símaviðtöl
olafur@frettabladid.is
MENNING Játning eftir Ólaf Jóhann
Ólafsson var mest selda bókin í
nóvember, samkvæmt metsölulista
Eymundsson. Reykjavík glæpasaga
eftir Ragnar Jónasson og Katrínu
Jakobsdóttur kom næst á eftir.
Margrét Jóna Guðbergsdóttir,
vörustjóri Pennans-Eymundsson,
segir Játningu hafa verið á mikilli
siglingu allt frá því að hún kom
út. Breiddin á metsölulistanum sé
einkar athyglisverð. Þar séu skáld-
sögur og barnabækur og meira að
segja ein bók á ensku. Í 10. sæti er
bókin Yule lads eftir Brian Pilking-
ton.
„Þetta bendir eindregið til þess að
erlendir ferðamenn og endurkoma
þeirra eftir Covid hafi áhrif á bók-
sölu hér á landi fyrir þessi jól.“
Arnaldur, Yrsa, Sigríður Hagalín,
Auður Ava og Jón Kalman eru einn-
ig með bækur í efstu tíu sætunum.
„Svo eru þarna barnabækur, en
David Walliams gerði allt vitlaust
þegar hann heimsótti Ísland um
miðjan nóvember og troðfyllti
meðal annars verslun Pennans-
Eymundsson í Smáralind þegar
hann kom þar fram og áritaði
bækur.“
Orri óstöðvandi, fimmta bókin
um Orra eftir Bjarna Fritzson, er líka
á listanum yfir mest seldu bækur
nóvember.
Að sögn Margrétar jókst salan í
nóvember milli ára og desember
fer vel af stað. n
Ólafur Jóhann trónir á
toppi metsölulistans
Ólafur Jóhann
Ólafsson,
rithöfundur
Í þessari vönduðu bók Helga Þorlákssonar
er fjallað um sex merka sögustaði á Íslandi,
sagan rakin og grennslast fyrir um það
á hverju hlutverk þeirra byggist.
B E S S A S T A Ð I R
S K Á L H O L T
O D D I
R E Y K H O L T
H Ó L A R
Þ I N G V E L L I R
SÖGUSTAÐIR Í NÝJU LJÓSI
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga til jóla | www.forlagid.is
Nokkrir kennarar sem Fréttablaðið ræddi við en vilja ekki koma fram undir nafni hafa áhyggjur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
6 Fréttir 8. desember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ