Fréttablaðið - 08.12.2022, Side 24
Við höfum oft náð
að virkja þá þekk-
ingu betur, oft með því
að ráða viðkomandi
námsmann til sumar-
starfa eða fastráðið hann
að loknu námi.
Sigmar Guðbjörnsson
Star-Oddi hefur átt gott sam-
starf við Nýsköpunarsjóð
námsmanna og hefur fengið
námsmenn til starfa til að
afla grunnþekkingar á nýjum
sviðum. Fyrirtækið fram-
leiðir margs konar skynjara
til að mæla hegðun dýra.
„Nemarnir okkar hafa meðal
annars unnið að öflun þekk-
ingar á skynjurum, sem við erum
ekki að bjóða upp á í núverandi
skynjaraframboði okkar og við
viljum skoða að þróa og selja til
viðskiptavina okkar í framtíðinni.
Þróunar- og framleiðsluferlar og
notendaforrit hafa síðan verið
uppfærð með hjálp þessara náms-
manna,“ segir Sigmar Guðbjörns-
son framkvæmdastjóri Star-Odda.
„Við höfum náð að virkja þá
þekkingu betur, oft með því að
ráða viðkomandi námsmann til
sumarstarfa eða fastráðið hann
að loknu námi. Að keyra verkefni
gegnum Nýsköpunarsjóð náms-
manna er, frá okkar bæjardyrum
séð, kjörið tækifæri fyrir náms-
menn til að koma sér á framfæri
við fyrirtæki í nýsköpun.“
Vörurnar sem Star-Oddi fram-
leiðir eru skynjarar sem græddir
eru í dýr til að mæla hegðun og
atferli þeirra.
„Það tekur nokkur ár að þróa,
hanna og setja skynjara í vörurnar
okkar. Þetta er því langhlaup sem
byggist upp á umtalsverðum
prófunum á vörunni bæði innan-
húss og hjá notendum vörunnar.
Eitt skýrasta dæmið um árangur
af svona þróunarvinnu er hvernig
okkur hefur tekist að hanna
hjartaskynjara sem græða má í
dýr. Námsmaðurinn sem vann að
verkefninu á sínum tíma er Ásgeir
Bjarnason og hlaut hann Nýsköp-
unarverðlaun forseta Íslands árið
2010. Ásgeir er í dag heilbrigðis-
verkfræðingur og starfar sem
sérfræðingur hjá Star-Odda,“ segir
Sigmar, en Nýsköpunarsjóður
námsmanna styrkti verkefnið.
„Styrkurinn fór í að færa okkur
grunnþekkingu á nemunum,
síðan tekur við teymi sem vinnur
vöruna. Þetta verðlaunaverkefni
hefur haft þau áhrif að við erum
með eina hjartsláttarskynjarann
á markaðnum sem er án víra. Allir
aðrir skynjarar á markaði fyrir dýr
eru með útistandandi vírum. En
það kostar meiri tíma í ígræðingu
í dýrin, tíma sem er oft dýrmætur
þar sem dýrin þola mörg hver ekki
langar aðgerðir, til dæmis fiskar.
Þennan skynjara er hægt að græða
undir húð á dýrinu eða setja hann
innvortis. Skynjarinn hefur verið
notaður í fjöldann allan af dýra-
tegundum af ýmsum stærðum
bæði á láði og legi, allt frá elgum
niður í litla svartþresti.“
Mikil aukning á eftirspurn
Sigmar segir að þekking á hegðun
rafboða hjartans skipti miklu máli
þegar kemur að rannsóknum á
dýrum.
„Það er markmið okkar að auka
þekkingu rannsakenda á tengingu
hjartsláttar meðal annars við
hegðun dýra. Síðan við komum
með hjartsláttarskynjarann á
markað hafa þeir verið framleiddir
í þúsundum eintaka, og sjáum við
fram á myndarlega aukningu á
eftirspurn eftir þessum skynjurum
á komandi árum bæði í rann-
sóknum á sjávar- og landdýrum,“
segir hann.
Auk fleiri þróunarverkefna er
Star-Oddi að þróa súrefnismett-
unarskynjara en hann er ekki
kominn í framleiðslu ennþá.
Sigmar segir þróun hans ganga vel
og ekki langt að bíða að hann fari í
prófanir.
„Þegar hann er kominn á
markað getum við boðið upp á
skynjara sem nema flest þau lífs-
viðbrögð í dýrum sem eru mæld í
mönnum, sem er eitthvað sem við
erum ákaflega stolt af.“
Að lokum nefnir Sigmar að
undantekningarlaust hafi verið
góð samvinna milli Star-Odda og
þeirra nemanda sem hafa unnið að
NSN-verkefnum hjá þeim.
„Við munum áfram bjóða náms-
mönnum að vinna með okkur, en
við höfum haft mest fimm náms-
menn á sama tíma á mismunandi
stigum í náminu, allt frá B.Sc.-,
M.Sc.- og doktorsnema.“ n
Hjartsláttarskynjarar skýra hegðun dýra
Sigmar Guðbjörnsson heldur á litlum nema, en fyrirtækið framleiðir nema til að mæla til dæmis hjartslátt dýra.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Framlög úr Nýsköpunarsjóði
námsmanna hafa gert Nox
Medical kleift að vinna að
framsæknum verkefnum
sem hafa leitt til nýrra lækn-
ingavara sem fyrirtækið
hefur gefið út í Evrópu og
Bandaríkjunum. Þær vörur
hafa skipt sköpum við að
aðgreina Nox Medical á
markaði.
Nox Medical er hátæknifyrirtæki
sem þróar og framleiðir mælitæki,
hugbúnað, skýjalausnir og gervi-
greind sem notuð eru af læknum og
heilbrigðisstarfsmönnum til þess
að mæla lífmerki í svefni og greina
svefnraskanir og svefnsjúkdóma.
„Algengustu svefnraskanirnar sem
tæki okkar eru notuð til að greina
eru kæfisvefn, þegar sjúklingur
hættir að anda á nóttunni eða
verður fyrir endurtekinni skerð-
ingu á öndun, fótaóeirð í svefni, og
raskanir á svefni eins og svefnleysi
eða drómasýki,“ segir Jón Skírnir
Ágústsson, yfirmaður gagna og
gervigreindar hjá Nox Medical.
Nox Medical hefur fjórum
sinnum hlotið styrk Nýsköpunar-
sjóðs námsmanna og hafa styrkir
sjóðsins stutt við verkefni sem
alls tíu nemendur hafa unnið
að í samstarfi við Nox Medical.
„Nemendurnir hafa unnið að mjög
framsæknum verkefnum sem Nox
Medical hefði að öllum líkindum
ekki unnið nema fyrir tilstilli fram-
lags sjóðsins og stuðnings nem-
enda. Verkefni nemendanna hafa
leitt til nýrra lækningavara sem
Nox Medical hefur markaðssett
í Evrópu og Bandaríkjunum. Þær
vörur sem framleiddar hafa verið
í kjölfar verkefna nemendanna
hafa verið mjög mikilvægar og hafa
skipt sköpum við að aðgreina Nox
Medical á markaði.“
Náðu öðru sæti í
alþjóðlegri keppni
Síðasta verkefni fyrirtækisins
sem var styrkt af Nýsköpunar-
sjóði námsmanna snerist um að
þjálfa gervigreindarlíkan til að
greina örvökur í heilariti úr svefn-
mælingu, segir Jón. „Þetta var mjög
flókið verkefni og hafði ekki verið
leyst áður í heiminum. Verkefnið
var framlag Nox Medical í alþjóð-
legri keppni þar sem beita átti
gervigreind til að greina örvökur
í svefnmælingum. Nemendurnir
unnu yfir þriggja mánaða tímabil
að lausn sem var framlag Nox
Medical í keppnina.“
Lausn þeirra á verkefninu varð
í öðru sæti í keppninni, en 20
lið tóku þátt, þar á meðal lið frá
þekktum háskólum og fyrirtækj-
um á borð við Philips og Verily Life
Sciences sem er eitt af fyrirtækjum
Google/Alphabet. „Verkefnið hlaut
síðan Nýsköpunarverðlaun forseta
Íslands árið 2018. Niðurstöður
verkefnisins urðu grunnurinn
að lækningavöru sem innbyggð
hefur verið í hugbúnaðarlausn
Nox Medical og hjálpar læknum
og heilbrigðisstarfsfólki að greina
örvökur í svefnmælingum.“
Nemendurnir sem unnu að verk-
efninu hafa síðan lokið framhalds-
námi í tölvunarfræði, gervigreind
og verkfræði. „En þau eru öll ein-
staklega hæfileikarík og metnaðar-
full. Það er ljóst að þetta verkefni
veitti þeim einstakt tækifæri á að
taka þátt í að þróa ný lækninga-
tæki og sum af þeim verkefnum
sem þau unnu hjá Nox Medical
hafa breytt því hvernig kæfisvefn
er greindur hjá sjúklingum.“
Verkefni sem skiptu miklu máli
Það má því segja að Nýsköpunar-
sjóður námsmanna hafi gert Nox
Medical kleift að taka inn nem-
endur sem hafa nýlokið B.Sc.-
gráðum og nýtt krafta þeirra til að
vinna í áhættumiklum verkefnum,
sem hafa haft umtalsverð áhrif á
stefnu fyrirtækisins og vörur þess,
segir Jón. „Með stuðningi Nýsköp-
unarsjóðs námsmanna hefur
Nox Medical fjármagnað þrjá
mánuði af fimmtán mánaða veru
nemendanna. Nox Medical hefur
fjármagnað starfsnámið til móts
við styrki og Tækniþróunarsjóður
Rannís hefur stutt við mörg þau
verkefni sem nemendurnir hafa
unnið að.“
Hann segir stuðning bæði
Nýsköpunarsjóðs námsmanna
og Tækniþróunarsjóðs hafa verið
Nox Medical afar mikilvægan og
hafa leyft fyrirtækinu að halda
uppi metnaðarfullu nýsköpunar-
starfi sem hefur gert það að því
leiðandi fyrirtæki sem það er í dag.
„Sú vinna sem við höfum unnið
í þessum nýsköpunarverkefnum
hefur svo gefið okkur færi á að
sækja um og fá 2 milljóna evra
styrk úr Horizon 2020 áætlun
Evrópusambandsins og við höfum
fengið að taka þátt í stærstu rann-
sóknarverkefnum í svefnlæknis-
fræði bæði í Bandaríkjunum og
Evrópu. Það er því óhætt að segja
að við séum afar þakklát fyrir
Nýsköpunarsjóð námsmanna og
þau tækifæri sem hann hefur veitt
okkur.“ n
Grunnur að blómstrandi nýsköpun
Jón Skírnir Ágústsson.
Eitt verkefni sem fékk styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands árið 2018.
4 8. desember 2022 FIMMTUDAGURNSN 30 ÁR A